Danir urðu í gær heimsmeistarar í fjörða skipti í röð er liðið vann sex marka sigur gegn Degi Sigurðssyni og lærisveinum hans í króatíska landsliðinu.
Danska liðið hefur verið gjörsamlega óstöðvandi undanfarin ár og hefur ekki tapað einum einasta leik á síðustu fjórum heimsmeistaramótum.
Einnig er óhætt að segja að Mathias Gidsel hafi verið óstöðvandi undanfarin ár, en hann hefur nú endað sem markahæsti leikmaður HM fjögur heimsmeistaramót í röð. Þá var hann einnig valinn í úrvalslið HM og hefur nú verið valinn í úrvalslið á stómóti sjö stórmót í röð, sem er met.
Mathias Gidsel the first player ever with 7 allstar team announcements in a row!#handball pic.twitter.com/5qexNWohLv
— Rasmus Boysen (@RasmusBoysen92) February 2, 2025
Þá bætti Gidsel einnig annað met í gær, en hann er nú sá leikmaður sem hefur skorað flest mörk úr opnum leik á einu heimsmeistaramóti. Það er, mörk sem eru ekki skoruð úr víti.
Gidsel skoraði 73 af 74 mörkum sínum úr opnum leik og bætti þar með met kóreska handboltamannsins Yoon Kyung-shin, sem skoraði 70 af 82 mörkum sínum úr opnum leik á HM á Íslandi fyrir sléttum 30 árum síðan.
Mathias Gidsel with 74 goals! Topscorer for the 4 championship in a row!
— Rasmus Boysen (@RasmusBoysen92) February 2, 2025
73 goals without 7m shots - and breaks the 30 years old record of Yoon:
73 goals: Mathias Gidsel (2025)
70 goals: Kyung-shin Yoon (1995)#handball pic.twitter.com/wZISmO3wDp