Nefndin lauk rannsókn sinni á föstudag og sendi til yfirlestrar yfir helgina. Henni verður dreift til þingmanna í dag, birt á vef Alþingis á morgun en þá verður þing sett.
Meðal þess sem nefndin hafði til skoðunar var hvort ástæða væri til endurtalningar atkvæða í Suðvesturkjördæmi eins og farið hefur verið fram á í kæru. Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, er formaður nefndarinnar sem er skipuð fulltrúum allra þingflokka.
„Nefndin var einróma um það eftir ítarlega yfirferð að niðurstaða kosninganna stæði. Útbýting þingsæta sem landskjörstjórn komst að stæðist líka,“ segir Dagur. Þetta séu meginniðurstöður nefndarinnar.
Nefndin hafi þurft að fara yfir ágreiningsseðla úr kosningunum og skoða þær kærur sem bárust. Leysa hafi ýmsa hnúta og vinnan hafi verið nokkuð meiri en reiknað var með. Stjórnarskrá geri ráð fyrir að þingið sjálft þurfti að staðfesta úrslit kosninganna. Dagur útskýrir fyrirkomulagið á morgun þegar Alþingi verður sett með pompi og prakt.
„Þing verður sett með því sem tilheyrir, ávarpi forseta og þar fram eftir götunum. Svo er kosin kjörbréfanefnd, gert hlé í rúma klukkustund, nefndin fundar um greinargerðina og gerir tillögu til þingsins á hennar grunni,“ segir Dagur.
Hefðin sé sú að fólkið í undirbúningsnefndinni skipi kjörbréfanefndina enda gefist ekki rými til rannsóknar á málinu á miðjum þingfundi. Samþykki þingið tillögu kjörbréfanefndar teljast þingmenn kjörnir.
Dagur segist ánægður með að nefndin hafi komist að einróma niðurstöðu. Það skipti máli því enginn bragur hefði verið á því ef áfram hefðu verið ágreiningsefni vegna kosninganna. Hann segist í störfum nefndarinnar hafa fengið forsmekk að andanum á þingi.
„Mér fannst fólk mjög málefnalegt og tók hlutverk sitt af mikilli ábyrgð. Það er gott að finna það. Ég vissi ekki hvort það yrðu einhverjir pólitískir leikir. Svo var ekki. Það veit á gott.“