Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík segir ákvörðun Einars Þorsteinssonar, borgarstjóra um að slíta meirihlutasamstarfinu ekki hafa komið á óvart enda gaf atburðarás síðustu daga til kynna að svona gæti farið, þó að hlutirnir hafi farið hratt af stað.
Meirihlutaviðræður Sjálfstæðisflokks, Framsóknar, Viðreisnar og Flokks fólksins hafi farið vel af stað og því kom það Hildi á óvart þegar Inga Sæland, formaður Flokks fólksins sagði flokkinn ekki ætla að halda þeim viðræðum áfram enda myndi hann ekki taka þátt í því að koma Sjálfstæðisflokknum til valda í borginni.
„Og það er vegna einhverja atburða sem tengjast auðvitað borgarstjórnarhópnum ekki neitt. Við höfum átt virkilega farsælt samstarf við Flokk fólksins í borgarstjórn síðastliðin sjö ár.“
Áttu góðan fund á föstudag
Oddvitar þessara fjögurra flokka hafi átt góðan fund á föstudagskvöldinu og aftur í gær þar sem mikill samhljómur var um málefnin.
„Þannig já það kom auðvitað svolítið að óvörum þegar grasrót Flokks fólksins stígur inn með þessum hætti en það hefur auðvitað verið hamagangur í þinginu og ákveðin umfjöllun um Flokk fólksins á síðum miðlana en það er auðvitað ekkert sem Sjálfstæðisflokkurinn stýrir og allra síst borgarstjórnarhópur Sjálfstæðisflokksins.“
Þannig hljóðið í borgarfulltrúa Flokks fólksins var bara gott á laugardaginn og virtist sem hún hefði umboð til að halda þessum viðræðum áfram?
„Já Helga Þórðar er bara yndisleg kona og við áttum gríðarlega gott samtal við hana og hún var með umboð til þess en svo gerist bara eitthvað í gærdag. Það eiga sér stað einhverjir fundir í grasrót flokksins sem hefur þessi áhrif.“
Málefnalegur grundvöllur þessara tveggja flokka hafi verið mikill í borginni síðustu ár, sér í lagi varðandi húsnæðisuppbyggingu.
„Við höfum lagt áherslu á að þéttingastefnan hafi beðið ákveðið skipbrot og við verðum að fara að brjóta nýtt land. Þannig talar Flokkur fólksins bæði á þingi og í borginni og ég veit að þau stefna á að leiða ákveðin átaksverkefni í húsnæðismálum á þinginu og það verður auðvitað erfitt ef hér verður vinstrimeirihluti í borginni, að knýja á um einhverja frekari húsnæðisuppbyggingu í Reykjavík vegna þess að þar myndu vera við völd flokkar sem geta ekki hugsað sér til að mynda að brjóta nýtt land.“
Ræða saman í dag
Hildur segir ekkert útilokað þó að Flokkur fólksins hafi tilkynnt um ákvörðun sína í gær. Mörg mynstur séu möguleg og dagurinn í dag og næstu dagar fari í samtöl milli fólks.
Tíminn sé naumur og brýn verkefni bíði, fjármál borgarinnar, húsnæðismálin, leikskóla- og daggæslumál auk heitu kartöflunnar: Reykjavíkurflugvallar.
„Og vandræðagangur með hann, þessi störukeppni í pólitíkinni og ómálefnaleg sjónarmið sem hafa leitt til þess að flugbraut var lokað. Við getum auðvitað ekki staðið í þessu og það þarf að mynda meirihluta flokka sem geta staðið saman um skynsamlega nálgun um þessi stóru mál.“