Innlent

Fá að rukka fyrir geymslu á líkum

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Haustið 2024 ráku tveir kirkjugarðar á landinu líkhús, Kirkjugarðar Reykjavíkur og Kirkjugarðar Akureyrar.
Haustið 2024 ráku tveir kirkjugarðar á landinu líkhús, Kirkjugarðar Reykjavíkur og Kirkjugarðar Akureyrar. Vísir/Vilhelm

Dómsmálaráðherra hefur lagt fram drög að frumvarpi til breytinga á lögum sem heimila kirkjugörðum að rukka geymslugjald á líkum. Er þetta gert til að garðarnir geti staðið undir þeim kostnaði sem hlýst af rekstri líkhúsa. 

Drögin voru birt í samráðsgátt í dag, en þar kemur fram að breytingin sé lögð fram til að bregðast við alvarlegri rekstrarstöðu á mikilvægum samfélagslegum innviðum sem skapast hefur hjá þeim kirkjugörðum sem reka líkhús.

Upp sé komin sú staða að Kirkjugarðar Reykjavíkur muni ekki geta haldið áfram rekstri líkhússins án fjármagns til rekstursins. Verði ekki brugðist við stefni í óefni og kirkjugarðar hætti hugsanlega alfarið rekstri líkhúsa.

Því sé nauðsynlegt að búa svo um í lagaumgjörð kirkjugarðanna að þeim verði heimilt að innheimta gjald til að standa undir þeim kostnaði sem hlýst af rekstri líkhúsa.

Nái breytingin fram að ganga er kirkjugarði, sem komið hefur sér upp líkhúsi, heimilt að innheimta gjald vegna geymslu líka. 

Við ákvörðun gjalds verði í gjaldskrá lagður til grundvallar kostnaður vegna reksturs líkhússins, meðal annars kostnaður vegna launatengdra gjalda, húsnæðis, rafmagns, viðhalds, ræstinga, tækja, áhalda, öryggiskerfis og trygginga.

Fram kemur að kirkjugarðar fái áfram fjármagn úr ríkissjóði á grundvelli samkomulags sem gert var árið 2005. Samkomulagið byggi á þrennskonar viðmiðunum þegar reiknað er framlag úr ríkissjóði til starfsemi kirkjugarða og rekstur líkhúsa sé ekki þar á meðal.

Því verði gripið til breytinganna til þess að ráða bót á þeim vanda sem upp er kominn í rekstri líkhúsa. Við endurskoðun laganna og samkomulagsins verði hægt að skoða aðrar leiðir sem kunni að þykja ákjósanlegri þegar til framtíðar er litið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×