Innlent

Al­var­legt um­ferðar­slys á Þingvallavegi

Jón Þór Stefánsson skrifar
Slysið varð á Þingvallavegi. Myndin er úr safni.
Slysið varð á Þingvallavegi. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Alvarlegt umferðarslys varð á Þingvallavegi í morgun. Lögreglan á Suðurlandi greinir frá þessu.

Í tilkynningu lögreglunnar segir að einn einstaklingur hafi verið í ökutæki sem lenti í slysinu og að ekki sé hægt að segja til um ástand hans að svo stöddu. Rannsókn stendur yfir á vettvangi.

Vegna málsins er Þingvallavegur lokaður við Álftavatn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×