Jöfnuðu erki­fjendurna að stigum á toppnum

Vincius Jr. fagnar marki sínu í dag.
Vincius Jr. fagnar marki sínu í dag. Vísir/Getty

Real Madrid mætti til leiks í dag eftir að hafa slegið Manchester City úr leik í Meistaradeild Evrópu í vikunni. Í dag mætti liðið Girona sem var í 12. sæti spænsku deildarinnar fyrir leikinn.

Gamla brýnið Luka Modric braut ísinn fyrir Real á 41. mínútu og sá til þess að Madrídarliðið var með forystu í leikhléi.  Real var mun sterkari aðilinn og átti forystuna skilið.

Real hélt forystunni allan seinni hálfleikinn og þegar sjö mínútur voru til leiksloka tvöfaldaði Vincius Jr. forystuna eftir sendingu Kylian Mbappe. Sigurinn innsiglaður og Real nú jafnt Barcelona á toppi deildarinnar en nágrannliðið Atletico er í þriðja sætinu einu stigi á eftir.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira