Innlent

Nýr borgar­stjóri studdi til­lögu sátta­semjara

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Einar Þorsteinsson fráfarandi borgarstjóri heilsar Heiðu Björgu Hilmisdóttur augnablikum áður en Heiða var kjörin borgarstjóri í Reykjavík.
Einar Þorsteinsson fráfarandi borgarstjóri heilsar Heiðu Björgu Hilmisdóttur augnablikum áður en Heiða var kjörin borgarstjóri í Reykjavík. Vísir/Vilhelm

Fjöldi kennara minnti á kjarabaráttu sína bæði á pöllunum í borgarstjórnarsal Ráðhúss Reykjavíkur og sömuleiðis fyrir utan húsið. Kjaradeila kennara er í hnút eftir að Samband íslenskra sveitarfélaga hafnaði tillögu sáttasemjara í hádeginu í dag. Nýr borgarstjóri og formaður sambandsins segist hafa stutt tillögu sáttasemjara og skoði sín mál.

Aukafundur borgarstjórnar stendur yfir í ráðhúsinu þar sem greidd eru atkvæði um borgarstjóra, forseta borgarstjórnar og í ráð og nefndir borgarinnar. Fram kom á blaðamannafundi oddvita nýs meirihluta Samfylkingarinnar, Flokks fólksins, Vinstri grænna, Pírata og Sósíalistaflokksins að Heiða Björg Hilmisdóttir yrði nýr borgarstjóri í Reykjavík.

Vísir/Vilhelm

Eins og sjá má á myndinni að ofan var fjöldi kennara á pöllum borgarstjórnarsalsins og sömuleiðis fyrir utan.

Atkvæðagreiðsla gekk nokkuð greiðlega fyrir sig. Borgarfulltrúar nýs meirihluta greiddu atkvæði með nýjum borgarstjóra en fulltrúar í minnihlutanum skiluðu auðu.

Líf Magneudóttir minnti á að nýr borgarstjóri ætti afmæli í dag. Heiða Björg er 54 ára í dag.Vísir/Vilhelm

Einar Þorsteinsson fráfarandi borgarstjóri þakkaði fyrir sig og sagði heiður að hafa fengið að stjórna borginni. Hann óskaði nýjum borgarstjóra og nýjum meirihluta góðs gengis.

Heiða Björg, sem fagnar 54 ára afmæli í dag, sagðist mjög auðmjúk að fá að leiða samstarfið í borginni sem sé mótað af félagshyggju. Til standi að bæta lífsgæði íbúa og þar sé nýr meirihluti með háleitar hugmyndir. Nú verði breyttar áherslur en vonast eftir góðu samstarfi í borgarstjórn. 

Bros á hverju andliti á blaðamannafundi nýs meirihluta.Vísir/vilhelm

Heiða Björg, sem er formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, sagði mjög leiðinlegt að kennaraverkfall skylli á þennan sama dag. Þá kölluðu kennarar á pöllunum inn í og Sanna Magdalena, nýr forseti borgarstjórnar, bað um hljóð á fundinum.

Heiða Björg sagði að henni þætti ótrúlega sorglegt að deilan væri komin í þennan hnút. Ekkert launungarmál sé að hún hafi stutt innanhússtillögu sáttasemjara og ætli að skoða sín mál í framhaldinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu var Heiða Björg ekki á stjórnarfundi Sambands íslenskra sveitarfélaga í gærkvöldi þar sem tillaga sáttasemjara var rædd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×