Tveir af stærstu íþróttaviðburðum heims fara fram í Bandaríkjunum á næstu þremur árum. Sumarið 2026 fer heimsmeistaramótið í knattspyrnu fram í ellefu borgum í Bandaríkjunum auk þriggja borga í Mexíkó og tveggja í Kanada. Þá fara Ólympíuleikarnir fram í Los Angeles árið 2028.
Í síðustu viku kom út skýrsla US Travel Association sem eru hagsmunasamtök ferðamála í Bandaríkjunum en þjónustuaðilar á öllum stigum ferðamála í landinu eiga aðild að samtökunum.
Í skýrslunni eru viðraðar miklar áhyggjur af innviðum í Bandaríkjunum en við skýrslugerðina var leitað til fyrrum starfsmanna ríkisstjórnar Bandaríkjanna auk sérfræðinga í ferðamálaiðnaðnum. Þar kemur fram að ónægir innviðir, seinagangur vegabréfsáritana og úrelt öryggistækni á flugvöllum séu stórar hindranir í móttöku allra þeirra gesta sem búist er við að heimsæki landið vegna viðburðanna.
Gætu tapað 2600 milljörðum króna
Fram kemur að gert sé ráð fyrir sex milljónum gesta á heimsmeistaramótinu eftir rúmt ár og Geoff Freeman, stjórnarformaður US Travel, segir að ekki sé mögulegt að taka á móti öllum þessum fjölda miðað við núverandi innviði.
„Forsetinn hefur verið skýr að þetta eigi að verða besta heimsmeistaramótið og bestu Ólympíuleikar sögunnar. Ef það á að takast þá þarf að fjárfesta.“
Freeman segir að seinagangur í afgreiðslu vegabréfsáritana verði til þess að fólk hætti við að koma til Bandaríkjanna á viðburðina. Stungið er upp á að nefnd undir forystu Hvíta hússins verði skipuð til að flýta ferlinu og til að vinna að nútímavæðingu öryggisgæslu á flugvöllum.
Þá er vísað í rannsókn Oxford Economics sem fullyrðir að Bandaríkin geti tapað allt að 2600 milljörðum króna í tekjur vegna ferðamanna verði ekki gerð bragarbót á áritunum vegabréfa.