Íhaldsmenn sigruðu en munu eiga erfitt með að mynda meirihluta Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 24. febrúar 2025 06:56 Íhaldsmenn voru að vonum glaðir með úrslitin. AP/Martin Meissner Íhaldsmenn báru sigur úr býtum í þýsku þingkosningunum sem fram fóru í gær. Það eru því allar líkur á því að formaður Kristilegra demókrata, Friedrich Merz, verði næsti kanslari Þýskalands.
CDU/CSU fékk 28,6 prósent atkvæða, sem er rétt undir þeim 30 prósentum sem fylkingunni hafði verið spáð. CDU er flokkur kristilegra demókrata sem býður fram í öllum ríkjum Þýskalands utan Bavaríu, þar sem CSU stillir upp lista. Stóru fréttir kosninganna eru hinsvegar þær að harðlínuflokkurinn AFD, eða Annar kostur fyrir Þýskaland, vann sögulegan sigur. Flokkurinn, sem var stofnaður árið 2013 og náði ekki inn á þing í fyrstu kosningunum sínum, fékk nú rúm 20 prósent atkvæða og er næststærsti flokkurinn á þingi. Staðan eftir kosningarnar er sú að í austurhluta landsins ráða AFD nær alfarið ríkjum og eru stærsti flokkurinn þar en í vesturhlutanum eru það kristilegir Demókratar. Sósíaldemókratar, flokkur núverandi kanslara, Olaf Scholz, eru aðeins með sextán prósenta fylgi en Græningjar fengu rúm ellefu prósent og Vinstrimenn tæp níu. Þrátt fyrir sigurinn er Merz ákveðinn vandi á höndum, því hann hefur útilokað að vinna með AFD og leiðtoga þeirra Alice Weidel. Hann hafði því vonast eftir sterku umboði til að mynda stjórn með einum öðrum flokki. Það virðist nú vera ómögulegt og því þarf að fá fleiri flokka að borðinu. Alice Weidel var sigurreif á kosningakvöldinu og sagði ljóst að Merz muni ekki ganga vel að mynda samsteypustjórn með hinum flokkunum og því verði kosið á ný í Þýskalandi innan tíðar.
Þýskaland Mest lesið „Sorglegt að sjá hversu gaman þetta var fyrir þá“ Innlent Flestir starfsmenn USAid sendir í leyfi og 2.000 störf lögð niður Erlent Kafað eftir reiðhjóli í Reykjavíkurhöfn Innlent Kristrún og fleiri leiðtogar mæta til Kænugarðs Innlent Hefur áhyggjur af mikilli notkun melatóníns hjá börnum Innlent Kynnti tveggja milljarða viðbótarstuðning við Úkraínu í Kænugarði Innlent Grét þegar hún kom á Ásbrú og hélt að lífið væri búið Innlent Íhaldsmenn sigruðu en öfgahægrið náði sögulegum árangri Erlent Sendu skriðdreka inn á Vesturbakkann í fyrsta sinn í 23 ár Erlent Jón undir feldi eins og Diljá Innlent Fleiri fréttir Væntanlegur kanslari segir Evrópu þurfa sjálfstæði frá Bandaríkjunum Formaður sænska Miðflokksins hættir Íhaldsmenn sigruðu en öfgahægrið náði sögulegum árangri Flestir starfsmenn USAid sendir í leyfi og 2.000 störf lögð niður Sendu skriðdreka inn á Vesturbakkann í fyrsta sinn í 23 ár Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Tilbúinn að stíga til hliðar Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Sjá meira