Viðskipti innlent

Gefa út afkomuviðvörun vegna dómsins

Árni Sæberg skrifar
María Björk Einarsdóttir er forstjóri Símans.
María Björk Einarsdóttir er forstjóri Símans. Síminn

Síminn hefur tilkynnt að dómur Hæstaréttar, um 400 milljóna króna stjórnvaldssekt, muni lækka afkomuspá félagsins um sömu upphæð. Dómurinn er sagður valda verulegum vonbrigðum.

Hæstiréttur birti í dag dóm í máli milli Símans og Samkeppniseftirlitsins þar sem ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 25/2020 var staðfest og úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála um lækkun sektar var felldur úr gildi. Klofinn Hæstiréttur sneri þar með við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem og dómi Landsréttar um að ákvörðunin skyldi felld úr gildi og sektaði Símann um 400 milljónir króna.

„Síminn telur dóminn veruleg vonbrigði, sérstaklega í ljósi þess að snúið er við bæði dómi Héraðsdóms og Landsréttar sem og að hluta úrskurði áfrýjunarnefndar. Um er að ræða sams konar tilboð og tíðkast hafa á markaði af öðrum félögum sem bundin eru af sömu ákvæðum og Síminn. Fyrir liggur að Síminn heldur ekki á sýningarrétti að ensku úrvalsdeildinni frá og með næsta tímabili og ljóst er að niðurstaða dómsins er fordæmisgefandi um það hvernig unnt er að selja aðgang að ensku úrvalsdeildinni,“ segir í tilkynningu Símans til Kauphallar.

Dómur Hæstaréttar muni hafa áhrif á afkomu Símans þar sem sektin verði gjaldfærð á fyrsta ársfjórðungi 2025. Áður birt EBITDA-spá Símans fyrir árið 2025 hafi verið 7,0 til 7,4 milljarðar króna og EBIT spá 3,6 til 4,0 milljarðar króna. Með tilliti til niðurstöðu Hæstaréttar sé EBITDA-spá Símans 6,6 til 7,0 milljarðar króna og EBIT-spá 3,2 til 3,6 milljarðar króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×