Erlent

Trump aftur­kallar styrki til 5.800 þróunar­verk­efna

Anna Gunndís Guðmundsdóttir skrifar
Sérfræðingar telja að afturköllun fjárstuðnings muni leiða til dauðsfalla fjölda barna þar sem ekki verður lengur hægt að bólusetja þau gegn lífshættulegum sjúkdómum.
Sérfræðingar telja að afturköllun fjárstuðnings muni leiða til dauðsfalla fjölda barna þar sem ekki verður lengur hægt að bólusetja þau gegn lífshættulegum sjúkdómum. EPA

Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur afturkallað fjárhagsaðstoð við fjölmörg þróunar- og mannúðarverkefni og er ákvörðunin tekin í hagræðingarskyni og með hagsmuni ríkisstjórnar Bandaríkjanna að leiðarljósi. Afturköllunin nær til um 5.800 verkefna um heim allan.

New York Times greinir frá. Umsjónarfólk flóttamannabúða, heilsugæslustöðva sem sjá um bólusetningar gegn berklum, aðgerðir sem snúa að bólusetningum gegn lömunarveiki og fjölda annarra samtaka sem hafa þegið mikilvægan fjárstuðning fyrir verkefni, sem miða að því að bjarga mannslífum, hafa nú misst allan fjárstuðning frá Bandaríkjunum

Skrifstofa alþjóðlegra þróunarmála Bandaríkjanna dró styrkina til baka og staðfesti þar með að þeir styrkir sem áður höfðu verið frystir tímabundið yrðu nú einnig afturkallaðir og engin von um frekari aðstoð frá Bandaríkjunum. Mörg verkefnanna höfðu fengið tímabundna frystingu þar sem þau voru skilgreind sem lífsnauðsynleg og myndu bjarga mannslífum.

Þróunarverkefni sem missa fjárstuðning

Meðal verkefna sem fá ekki frekari stuðning eru meðal annars HIV-meðferðarstofnanir sem hafa veitt milljónum þjónustu, miðstöðvar sem hafa haft umsjón með þeim löndum sem verst eru sett gagnvart malaríu í Afríku og alþjóðlegt átak til að eyða lömunarveiki á heimsvísu.

Dr. Catherine Kyubutungi, framkvæmdastjóri African Population and Health Research Center, staðhæfir að þetta muni leiða til dauðsfalla en fjárstuðningur til verkefna sem halda utan um fjölda dauðsfalla hafa einnig misst fjárstuðning og því verður erfitt að átta sig á áhrifunum sem þetta mun hafa.

Meðal þróunarverkefnanna eru bólusetningar milljóna barna gegn lömunarveiki, fyrirbyggjandi aðgerðir og meðferðir við malaríu sem hefðu veitt vernd fyrir 53 milljónir manna og aðgerðir gegn vannæringu barna í Jemen. 

Aðallyfjadreifing Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar við berklum verður fyrir miklum áhrifum og þjónusta við þá sem smitaðir eru af HIV-veirunni og aðgerðir til að koma í veg fyrir að smitaðar, þungaðar konur smiti börn sín í fæðingu. 

Alvarlegar afleiðingar

Þá mun eftirlit með ebólu-smitum í Úganda missa fjárstuðning, dreifing lyfja í Kenía meðal annars við HIV-veirunni og malaríu, einnig neyðarskýli í Suður-Afríku fyrir konur og börn sem eru fórnarlömb nauðgana og heimilisofbeldis. Einnig hefur þetta áhrif á aðgengi að hreinu vatni í flóttamannabúðum í Austur-Kongó, heilbrigðisþjónustu fyrir konur og börn í Nepal, mannúðarverkefni í Nígeríu sem vinnur að því að koma í veg fyrir vannæringu barna og kvenna, heilbrigðisþjónusta sem mun leggjast af í hluta Súdan, heilbrigðisþjónusta fyrir fólk sem hefur þurft að flýja heimili sín í Eþíópíu ásamt fjölda annarra þróunarverkefna sem munu leggjast af vegna afturköllunar styrkjanna frá Bandaríkjastjórn sem getur haft ófyrirséðar og alvarlegar afleiðingar víða um heim.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×