Veður

Slydda og snjó­koma víða um land

Atli Ísleifsson skrifar
Eftir hádegi nálgast úrkomusvæði nýrrar lægðar úr suðri.
Eftir hádegi nálgast úrkomusvæði nýrrar lægðar úr suðri. Vísir/Vilhelm

Djúp og kröpp lægð úti fyrir Norðvesturlandi beinir nú éljalofti til landsins, en hiti er nærri frostmarki víða hvar.

Á vef Veðurstofunnar segir að lægðin hreyfist rösklega austur á bóginn og fari því fljótlega að draga úr vindi og éljum.

Veðurviðvaranir eru í gildi víða um land, en benda þurfi á að aðstæður til ferðalaga sé víða varasamar fram eftir morgni.

„Eftir hádegi nálgast úrkomusvæði nýrrar lægðar úr suðri og með kvöldinu má búast við slyddu eða snjókomu víða um land. Hlýnar þó smám saman syðra og fer að rigna þar.

Á morgun, þriðjudag snýst svo aftur í suðvestanátt með éljum, en styttir jafnframt upp um landið norðaustanvert. Dregur síðan úr vindi og kólnar smám saman seinnipartinn.

Útlit er fyrir að hlé verði á umhleypingum þegar nær dregur helgi og er þá von á nokkrum rólegheitadögum, a.m.k. hvað veðrið varðar,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag: Gengur í suðvestan 13-20 m/s með éljum, en birtir til norðaustanlands. Hiti kringum frostmark síðdegis og dregur þá heldur úr vindi.

Á miðvikudag: Gengur í austan og suðaustan 13-18 m/s með snjókomu eða slyddu, en rigningu syðst. Hlýnandi veður.

Á fimmtudag: Fremur hæg norðlæg átt og snjókoma norðanlands, en annars hægviðri og víða él. Hiti kringum frostmark.

Á föstudag og laugardag: Hæg breytileg átt, dálítil él á víð og dreif og talsvert frost.

Á sunnudag: Hægviðri, víða bjart og áfram kalt veður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×