Styttir víða upp og kólnar Atli Ísleifsson skrifar 30. apríl 2025 07:08 Hiti verður á bilinu fimm til þrettán stig, hlýjast fyrir norðan. Vísir/Vilhelm Lægð suðvestur af Reykjanesi nálgast nú landið en skil hennar fóru allhratt yfir landið í nótt með tilheyrandi vindi og vætu.
Á vef Veðurstofunnar segir að lægin fari svo til austurs með suðurströndinni í dag og verði vindur því norðvestlægari. Það mun víða stytta upp og kólna heldur. Þó geri spár ráð fyrir að rigni áfram á Suðausturlandi. Hiti verður á bilinu fimm til þrettán stig, hlýjast fyrir norðan. „Á morgun, fimmtudaginn 1. maí er síðan komin vestan gola eða kaldi með smá skúrum á víð og dreif og fremur svölu veðri, en bjart og hlýtt suðaustantil. Líkur eru á súld um landið vestanvert annað kvöld,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Vestan 3-13 m/s og víða smáskúrir, en þurrt og hvassast suðaustanlands. Hiti 4 til 15 stig, hlýjast á Suðausturlandi. Á föstudag: Vestan- og síðar norðvestanátt, strekkingur austast, annars hægari. Skýjað með köflum og fremur milt veður, en skýjað og dálitlar skúrir og svalara fyrir norðan. Á laugardag: Suðlæg átt 3-8, skýjað og sums staðar lítilsháttar væta, einkum vestantil um kvöldið, en bjartviðri fyrir norðan og austan. Hlýnandi veður. Á sunnudag: Suðvestan 5-10 með rigningu eða súld, en þurrviðri eystra. Fremur hlýtt í veðri, einkum norðaustantil. Á mánudag og þriðjudag: Suðvestanátt og vætusamt, en þurrt að kalla eystra og fremur svalt í veðri.
Veður Mest lesið Birgir Guðjónsson er látinn Innlent Börnum haldið innilokuðum í „hryllingshúsi“ í fleiri ár Erlent Tilkynnt um mann vopnaðan skotvopni og einn handtekinn Innlent Kaffistofa leigubílstjóra orðin „nyrsta moska í heimi“ Innlent Verkalýðsdagurinn haldinn í skugga sjálftöku forystumanna Innlent Mun sjá eftir árásinni alla ævi Innlent Yfirgefa Svíþjóð til að hraða þróun rafmagnsflugvélar Erlent Var svo „þreyttur á öllu“ að hann ákvað að aka inn í þvögu barna Erlent Pilturinn muni líklega afplána þriðjung átta ára dóms fyrir manndráp Innlent Getur frelsað El Salvador-fangann en vill það ekki Erlent Fleiri fréttir Hiti gæti náð fimmtán stigum Styttir víða upp og kólnar Von á allhvössum vindi og rigningu Gengur á með skúrum sunnan- og vestanlands Útlit fyrir þokkalegt veður Hægfara lægð yfir landinu Víða væta með köflum en rigningin samfelld á Suðausturlandi Bjart veður víðast hvar en víða frost í nótt Bjart suðvestantil en skýjað fyrir norðan og austan Víða bjart yfir landinu í dag Svona gæti veðrið litið út á sumardeginum fyrsta Norðan kaldi eða stinningskaldi í dag Hæglætisveður um páskana Snjókoma eða slydda norðan- og austantil Misstu bílinn af veginum og þorðu ekki að bíða í honum Rigning í flestum landshlutum og kaldara loft Fremur hlýtt en bætir í vind í kvöld Rigning sunnan- og vestantil Hiti gæti farið í sextán stig norðantil Hiti gæti náð átján stigum fyrir norðan og austan Allt að 18 stiga hiti á morgun en súld og léttskýjað í dag Allt að 14 stiga hiti á Austurlandi í dag Hvassir vindstrengir á Snæfellsnesi en milt loft yfir landinu Hlýnar í veðri en kólnar ört eftir sólsetur Síðasta lægðin í bili gengur norður yfir landið Víða snjókoma, slydda eða rigning í nótt Sjá meira