Skoðun

Kosningar í VR

Ólafur Reimar Gunnarsson skrifar

Þeir eru orðnir nokkrir, áratugirnir sem ég hef verið félagi í VR og ég hef sinnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir félagið í áranna rás. Ég hef setið í stjórn með smá hléi, frá 2015 og um tíma var ég stjórnarmaður í Lífeyrissjóði verzlunarmanna. Ég hef fylgt félaginu í gegnum ýmsar breytingar, sameiningar og nafnabreytingu og fleiri formannsskipti en hollt getur talist! Nú ríður á að kjósa góðan formann og góða stjórn. Ég vil hvetja allt félagsfólk VR til að veita Höllu Gunnarsdóttur brautargengi og nýta kosningaréttinn sinn. Og ekki væri verra ef fólk væri til í að smella atkvæði á mig í leiðinni í stjórnarkjöri!

Í þessum kosningum gengur í gildi breyting sem samþykkt var á síðasta aðalfundi þar sem kjörtímabilið var lengt úr tveimur árum í fjögur. Það er því mikið undir fyrir okkur VR-félaga að velja gott fólk í brúna! Sjálfur gef ég kost á mér til áframhaldandi setu í stjórn. Þótt ég sé farinn að eldast þá er ég enn í fullu fjöri og tel ég að reynsla mín og þekking komi að góðum notum fyrir félagið og ég hef tekið hvatningu meðstjórnenda minna og fjölmargra annarra félagsmanna um að bjóða mig áfram fram til stjórnar.

Öllu mikilvægari er þó kosning til formanns enda er það sá einstaklingur sem mest mæðir á í starfi félagsins og við eigum hvað mest undir. Halla Gunnarsdóttir tók við því embætti laust fyrir áramót og gefur nú kost á sér til áframhaldandi setu. Ég get vottað að í Höllu eigum við hörkugóðan formann og það væri mikill happafengur fyrir félagið ef okkur tækist að halda í hana áfram. Halla er greind, reynd og fylgin sér og er fljót að setja sig inn í mál. Hún hefur stýrt starfi og fundum stjórnar og trúnaðarráðs með miklum myndarbrag, enda hefur hún bæði til að bera félagsþroska og hressleika (sem er ekki síður mikilvægt!). Hún tekur afstöðu í erfiðum málum með hagsmuni félagsfólks VR að leiðarljósi og hleypur aldrei í felur eða skilar auðu þegar á reynir. En hún ástundar líka lýðræðisleg vinnubrögð, hlustar á ólík sjónarmið og reynir alltaf til þrautar að finna lausn á ágreiningsmálum. Allt eru þetta eiginleikar sem formaður VR þarf að hafa, enda er VR stórt félag og innan þess bæði ólíkar skoðanir og hagsmunir.

Höfundur er varaformaður VR.




Skoðun

Sjá meira


×