Skoðun

Magnús Karl er trú­verðugur tals­maður vísinda á Ís­landi

Hannes Jónsson skrifar

Háskólar hafa gríðarlega mikil áhrif á samfélagið. Þetta sést hvað skýrast í þeim löndum sem fjármagna háskóla sína vel og mynduglega og hafa með því byggt upp hátæknisamfélög. Háskóli Íslands hefur, þrátt fyrir vanfjármögnun til fjölda ára, náð merkilega miklum árangri. Útskrifaðir nemendur hafa eflt íslenskt atvinnulíf og samfélag með þeirri þekkingu og vinnubrögðum sem þeir tileinkuðu sér við skólann.

Rannsóknastarf Háskóla Íslands er ekki jafn áberandi úti í samfélaginu og kennslan. En rannsóknastarfið hefur mikil áhrif á samfélagið, án þess að margir veiti því eftirtekt. Það er helst á undanförnum árum að tekið hefur verið eftir gríðarlegri þróun í reiknilíkanagerð, hugbúnaðargeiranum, líftækni og lyfjaþróun svo eitthvað sé nefnt en þessi þróun hófst í öllum tilfellum í Háskólanum með rannsóknum, kennslu og drifkrafti háskólakennara og þá oftast áratugum áður en áhrifin urðu almenningi ljós. Eitt eldra dæmi er stofnun fyrirtækisins Marel sem byggði á þróunarvinnu við Raunvísindastofnun Háskólans.

Magnús Karl Magnússon hefur verið leiðandi í samfélagsumræðu um Háskóla Íslands, fjármögnun hans og uppbyggingu í yfir tuttugu ár. Og hann hefur ítrekað bent á hlutverk Háskólans í samfélaginu og hvernig skólinn og rannsóknir stundaðar við hann eru drifkraftur uppbyggingar í landinu. Magnús Karl hefur einnig bent á alvarlega vanfjármögnun vísindarannsókna í landinu og þau neikvæðu áhrif sem hún hefur.

Ég veit að Magnús Karl mun berjast dyggilega fyrir bættri stöðu Háskóla Íslands, verði hann kosinn rektor. Hann skilur hvað þarf að gera til að tryggja áframhaldandi og vaxandi árangur: tala fyrir háskólamenntun, berjast fyrir bættri fjármögnun Háskólans og efla samkeppnissjóði. Ég treysti Magnúsi Karli sérlega vel til þess að gegna stöðu rektors Háskóla Íslands og fagna því að hann sé reiðubúinn að takast á við þetta mikilvæga verkefni. Í krafti þekkingar sinnar og reynslu verður hann einmitt trúverðugur talsmaður háskólasamfélagsins, enda hefur hann nú sem endranær talað skýrt um mikilvægi háskóla sem grunn margvíslegra verðmæta á sviðum vísinda, nýsköpunar, menningar og lista. Rektor Háskóla Íslands hefur einstaka stöðu til að vera málsvari þessara gilda.

Ég styð því Magnús Karl Magnússon prófessor í rektorskosningunum sem fram undan eru og hvet þig til þess að gera slíkt hið sama!

Höfundur er prófessor við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands.




Skoðun

Skoðun

Lokum.is

Alma Hafsteinsdóttir skrifar

Sjá meira


×