Fótbolti

Simeone efins: „Sástu hann snerta boltann tvisvar?“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Diego Simeone hlýtur að vera orðinn þreyttur á að detta út leik fyrir Real Madrid í Meistaradeild Evrópu.
Diego Simeone hlýtur að vera orðinn þreyttur á að detta út leik fyrir Real Madrid í Meistaradeild Evrópu. ap/Bernat Armangue

Diego Simeone, knattspyrnustjóri Atlético Madrid, efast um að dómarar leiksins gegn Real Madrid hafi tekið rétta ákvörðun er þeir dæmdu mark Juliáns Alvarez í vítakeppninni af.

Atlético vann leikinn í gær, 1-0, með marki Conors Gallagher strax eftir 27 sekúndur. Real Madrid vann fyrri leikinn, 2-1, og því var staðan samanlagt jöfn, 2-2, eftir venjulegan leiktíma. Ekkert var skorað í framlengingunni og því þurfti vítakeppni til að knýja fram úrslit.

Real Madrid vann vítakeppnina, 4-2, en um fátt var rætt meira eftir leik en aðra vítaspyrnu Atlético sem Alvarez skoraði úr. Eða hélt hann hefði skorað úr en markið var blásið af eftir að VAR-dómarar komust að þeirri niðurstöðu að Alvarez hefði snert boltann tvisvar þegar hann skaut að marki.

Simeone vonast til að dómarar leiksins hafi haft rétt fyrir sér þegar þeir dæmdu spyrnu Alvarez ólöglega en er efins.

„Dómarinn sagði að þegar Julián fór á vítapunktinn hafi hann snert boltann með fætinum sem hann stóð í en boltinn hreyfðist ekki. Ég hef aldrei séð víti þar sem VAR hefur blandað sér í málin en þeir hafa séð að hann snerti boltann. Ég vil trúa því að þeir hafi séð hann snerta boltann,“ sagði Argentínumaðurinn eftir leikinn.

„Sástu hann snerta boltann tvisvar? Fyrir alla muni, þið sem sáuð hann snerta boltann tvisvar, stígið fram og réttið upp hönd. Ég sé engan með höndina á lofti svo ég hef ekki meira að segja.“

Síðan Simeone tók við Atlético 2011 hefur liðið fimm sinnum verið slegið úr leik af Real Madrid í Meistaradeildinni.


Tengdar fréttir

Real Madrid áfram eftir vítaspyrnukeppni

Real Madrid varð í kvöld áttunda og síðasta liðið til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar en það þó ekki fyrr en eftir 120 mínútur og vítaspyrnukeppni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×