Skoðun

Sem doktors­nemi styð ég Silju Báru til Rektors Há­skóla Ís­lands

Eva Jörgensen skrifar

Sem doktorsnemi við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands hef ég fylgst með rektorskosningum háskólans af miklum áhuga og stendur Silja Bára upp úr sem sá leiðtogi sem mér finnst háskólinn þarfnast á þessum tíma.

Í fyrsta lagi tel ég mikilvægt fyrir Háskóla Íslands að hafa einstakling úr félagsvísindum í forsvari sínu. Félagsvísindi eru oft ekki álitin „alvöru vísindi” sem hefur endurspeglast í ágangi á heiður greinarinnar undanfarið, ásamt gengisfellingu á fræðum okkar og framlagi til íslensks samfélags. Þetta viðhorf kristallast enn fremur í lokun deilda og niðurfellingu samfélagsrannsókna, meðal annars í Ungverjalandi og Bretlandi. Dæmin eru víða og má nefna hið nýlegasta frá Bandaríkjunum en þar hafa doktorsnemar og nýdoktorar misst stöður og rannsóknarverkefni í stórum stíl sem annars hefðu auðgað þekkingu okkar á málefnum svo sem hnattrænni heilsu og samfélagslegum ójöfnuði. Vegið er að akademísku frelsi, ekki sér fyrir endann á því og því er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að hafa öflugan málsvara samfélagsrannsókna sem skilur mikilvægi þeirra í menntunar- og rannsóknarlandslagi bæði innan lands og utan.

Stefnumál Silju Báru snúa að styrkingu háskólans á öllum sviðum. Hún leggur áherslu á að bæta fjármögnun og innviði skólans, vernda rannsóknir og akademískt frelsi. Einnig vill hún bæta starfs- og námsumhverfi, auka jafnrétti og fjölbreytileika sem og að efla sjálfbærni og nútímavæða kennslu. Einnig tek ég undir með hugmyndum hennar um að greiða fyrir ráðningu akademísks starfsfólks sem myndi lyfta Grettistaki fyrir okkur sem stöndum snemma í okkar starfsferli og höfum margt að bjóða til að styrkja stöðu Háskóla Íslands en búum engu að síður við mikið starfsóöryggi og verulega lág launakjör sem hamlar starfsþróun okkar og framlagi.

Það sem gerir Silju Báru því einstaka meðal frambjóðenda að mínu mati er raunverulegur áhugi hennar á að hlusta á og vinna með öllum aðilum háskólasamfélagsins. Sem dæmi þá sótti hún eftir því að setjast niður með doktorsnemum á Félagsvísindasviði til að hlusta á sjónarmið okkar og áhyggjuefni. Þessi nálgun endurspeglar stefnu hennar um gagnsæi og uppbyggingu trausts og samvinnu innan háskólans.

Sem doktorsnemi er ég viss um að Silja Bára hafi þá sýn og leiðtogahæfni sem þarf til að leiða Háskóla Íslands inn í framtíðina og tryggja að rödd ungs fræðafólks, og þá sérstaklega doktorsnema, sé heyrð og virt. Því mun ég setja X við Silju þann 18. mars.

Höfundur er doktorsnemi á Félagsvísindasviði, stundakennari við Háskóla Íslands og gjaldkeri Seiglu, félags doktorsnema á Félagsvísindasviði.




Skoðun

Sjá meira


×