Handbolti

„Þetta var góður gluggi fyrir marga“

Hinrik Wöhler skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson getur leyft sér að fagna sæti á lokamóti EM eftir stórsigur á Grikkjum í dag.
Snorri Steinn Guðjónsson getur leyft sér að fagna sæti á lokamóti EM eftir stórsigur á Grikkjum í dag. Vísir/Anton Brink

Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari karlalandsliðsins í handbolta, var léttur í lund eftir sigur á Grikkjum fyrir framan fulla Laugardalshöll í dag. Ísland sigraði gríska liðið í annað sinn á fjórum dögum en í þetta sinn sigraði Ísland með tólf marka mun, 33-21.

Snorri Steinn var ánægður með einbeitinguna í liðinu en sér þó ávallt tækifæri til bætingar.

„Ég er mjög sáttur og ánægður með strákana. Það var mikil einbeiting og kraftur í þeim, sérstaklega í byrjun og fyrri hálfleikur var góður. Ef ég ætla að vera aðeins frekur þá hefðum við getað verið meira yfir í hálfleik og nýtt færin aðeins betur,“ sagði Snorri Steinn skömmu eftir leik.

„Við gáfum þeim nokkur auðveld mörk í fyrri hálfleik en heilt yfir góð frammistaða og fagmannlega gert hjá mínu liði,“ bætti þjálfarinn við.

Ísland lék á móti gríska liðinu úti í Grikklandi á miðvikudaginn síðasta og það var fátt sem kom óvart í leik þeirra í dag. Eins og Snorri kemur inn á þá var gangurinn í leikjunum svipaður og enduðu þeir báðir með stórsigri Íslands.

„Einhverjar mannabreytingar hjá þeim og eitthvað sem við vissum alveg fyrir leikinn. Mér fannst við gera hlutina betur heldur en í fyrri leiknum þannig leikirnir voru kannski keimlíkir og báðir þessir leikir, þannig lagað, búnir í hálfleik,“ sagði Snorri þegar hann spurður hvort eitthvað hafi komið á óvart í leik gríska liðsins.

Næsti landsliðshópur gæti orðið hausverkur fyrir Snorra

Íslenska liðið lék án margra leikmanna í þessu landsliðsverkefni og nýttu margir leikmenn þennan glugga til að sýna sig fyrir landsliðsþjálfaranum. Snorri segir að valið verði flókið þegar leikmenn koma af meiðslalistanum.

Leikmenn gripu gæsina í fjarveru lykilleikmanna.Vísir/Anton Brink

„Engin spurning, þetta var góður gluggi fyrir marga. Til þess er þetta nú að fá tækifæri og þú þarft að nýta það. Það voru margir sem stimpluðu sig inn og það er mjög ánægjulegt. Ef við verðum alla okkar handboltamenn heila þegar að því kemur að velja næsta hóp eða lokamót þá er það bara hausverkur sem ég þarf að glíma við,“ sagði Snorri að lokum.

Með sigrinum tryggði Ísland sér sæti á lokamóti EM sem fer fram í janúar á næsta ári en næstu leikir landsliðsins eru á móti Georgíu og Bosníu í byrjun maí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×