Tónlist

Varð að fara gubbandi í Herjólf

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
GDRN hefur svo sannarlega marga fjöruna sopið.
GDRN hefur svo sannarlega marga fjöruna sopið. Vísir/Anton Brink

GDRN þurfti að svara ýmsum óþægilegum spurningum frá Andra Björns útvarpsmanni á FM957 í Víkinni. Hún segir meðal annars frá degi þar sem hún tók þrjú gigg sama daginn, eitt þeirra í Eyjum þannig að tónlistarkonan varð að fara gubbandi í Herjólf.

Þau GDRN og Andri Björns hituðu upp fyrir Hlustendaverðlaunin í Víkinni þar sem þau fóru í hina margfrægu „Hitt í slána keppni.“ Í hvert sinn sem GDRN hitti fótboltanum ekki í slána þurfti hún að svara ýmsum spurningum frá Andra á meðan hann varð að sætta sig við að gera ýmsar æfingar eftir óskum söngkonunnar.

GDRN kemur fram á Hlustendaverðlaununum sem fara fram á Nasa næsta fimmtudagskvöld. Hún er jafnframt tilnefnd í nokkrum flokkum.  Uppselt er á viðburðinn en hægt að er að ná sér í miða með því að hlusta á FM957 þar sem verða gefnir nokkrir miðar fram að hátíðinni. Hátíðin verður líka í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi. GDRN gaf ekkert eftir í keppninni við Andra líkt og myndbandið ber með sér.


Tengdar fréttir

Bað Youtube um að fjarlæga myndbandið

Friðrik Dór segir að eitt sitt vandræðalegasta augnablik hafi verið þegar hann tók lag sitt „Fyrir hana“ á sínum fyrstu Hlustendaverðlaunum. Flutningurinn var svo arfaslakur að Frikki endaði á að biðja Youtube um að fjarlæga myndband af flutningnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.