„Við erum að skora yfir fjörutíu mörk og það er bara frábært. Sóknarleikurinn frábær hjá okkur, þannig að ég er bara glaður og mjög gott að vinna ÍBV… Ég held að það hafi skilið á milli að við náðum smá vörn [síðustu mínúturnar] á meðan þeir náðu því ekki“ hélt hann svo áfram.
Kaflinn þar sem Fram náði varnarstoppum og tók fram úr kom eftir að Eyjamaðurinn Kristófer Ísak fékk tveggja mínútna brottvísun og settist á bekkinn.
„Já, hann var náttúrulega að hitta á svakalegan leik, það má vel vera sko en mér fannst við bara þéttast líka. Ég tók svosem ekkert eftir því að hann hafi verið rekinn út af en það er ágætis greining hjá þér. Miðað við hvernig hann spilaði í dag var ekkert verra að hafa hann út af.“
Miklar líkur eru á því að liðin tvö muni mætast í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Þau sitja í þriðja og sjötta sæti deildarinnar, en það gæti auðvitað breyst í lokaumferðinni. Einar reiknar ekki með því, ef að því að kemur, að þeir leikir verði eins og þessi.
„Ekki svona, nei. Við erum búnir að spila í Eyjum, hörkuleik þar, og ég veit alveg að ÍBV er frábært lið. Ef svo verður veit ég að það verður hörkueinvígi, þeir eru drullugóðir og það er bara svoleiðis. Eiga mikið inni frá þessum leik. Við eigum líka mikið inni. Ef það verður, þá verður það bara hrikalega skemmtilegt verkefni.“