Fótbolti

Borgaði ósáttum að­dáanda eftir rot­högg Stefáns Inga

Sindri Sverrisson skrifar
Per-Mathias Högmo og hans menn voru teknir í bakaríið af Sandefjord með Stefán Inga Sigurðarson fremstan í flokki.
Per-Mathias Högmo og hans menn voru teknir í bakaríið af Sandefjord með Stefán Inga Sigurðarson fremstan í flokki. Samsett/Getty/Sandefjord

Eftir að Stefán Ingi Sigurðarson hafði farið illa með lið Molde í fyrradag sá þjálfari Molde, Per-Mathias Högmo, sig tilneyddan til að greiða kröfu frá ósáttum stuðningsmanni.

Stefán Ingi skoraði tvö fyrstu mörk Sandefjord sem vann frábæran 3-0 sigur gegn Molde á sunnudaginn, í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Mörkin hans og fleiri hápunkta úr leiknum má sjá hér að neðan.

Eftir leikinn var einn aðdáanda Molde sem ferðast hafði á leikinn svo ósáttur að hann krafði Högmo um 3.000 norskar krónur, eða hátt í 40 þúsund íslenskar krónur. Þá kröfu kveðst þjálfarinn hafa greitt, eftir að hafa ráðfært sig við konuna sína.

„Já, það passar. Þegar ég kom heim hafði ég fengið skilaboð frá stuðningsmanni sem var á leiknum, sem var allt annað en sáttur. Hann sendi mér greiðslukröfu á Vipps og þá sagði Hilde konan mín: „Þetta finnst mér að þú ættir að borga!““ sagði Högmo við TV 2 í Noregi.

Eftir greiðsluna fylgdu strax fleiri kröfur en Högmo lét nægja að borga í þetta eina sinn.

„Það komu þrjár kröfur í viðbót. En þetta var sú eina sem ég greiddi,“ sagði Högmo og hló.

Högmo hafði meðal annars verið orðaður við íslenska landsliðið í vetur, án þess þó að KSÍ boðaði hann nokkru sinni í viðtal, áður en hann var ráðinn til Molde. Eftir að hafa komist í 16-liða úrslit Sambandsdeildar Evrópu og fallið þar naumlega úr keppni í mars hefur Molde nú tapað fyrstu tveimur deildarleikjunum undir hans stjórn og það án þess að skora mark.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×