Skoðun

Vöxtur hug­verka­iðnaðar á bið­stofunni

Erla Tinna Stefánsdóttir og Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifa

Hugverkaiðnaður hefur vaxið hratt á undanförnum árum og fest sig í sessi sem fjórða stoð útflutnings þjóðarbúsins. Mikil tækifæri eru til frekari vaxtar í greininni en hún glímir við skort á sérfræðimenntuðu starfsfólki. Vegna þess að innlent menntakerfi nær ekki að mæta þörf greinarinnar fyrir mannauði er þörf á sækja það vinnuafl erlendis frá. Umsóknarferli um dvalar- og atvinnuleyfi eru hins vegar flókin, tímafrek og ófyrirsjáanleg. Þetta skapar óvissu og tafir sem draga úr vaxtarmöguleikum fyrirtækja í greininni. Samtök iðnaðarins kalla eftir markvissum aðgerðum stjórnvalda til að tryggja að framboð sérfræðinga haldist í hendur við vöxt greinarinnar.

Árið 2024 voru útflutningstekjur hugverkaiðnaðar 309 milljarðar króna og höfðu þær þá tvöfaldast á aðeins fimm árum. Útflutningstekjur greinarinnar höfðu aldrei áður verið þetta háar. Með vexti greinarinnar er hagkerfið að verða hugverkadrifið og ef rétt er haldið á spilunum eru tækifærin til frekari vaxtar óþrjótandi til hagsbóta fyrir lífsgæði landsmanna. Ef áætlanir fyrirtækjanna í greininni ganga eftir mun greinin tvöfalda útflutningstekjur sínar aftur á næstu fimm árum og að líkindum verða verðmætasta útflutningstoð hagkerfisins.

Sérfræðimenntað starfsfólk er lykillinn að þessari þróun en fyrirtæki í greininni eiga erfitt með að manna mikilvæg störf. Fyrirtækin nefna bæði tæknigreinar og stuðningshlutverk, til að mynda er þörf fyrir forritara, sérfræðinga í stafrænni vöruþróun, viðmótshönnuði, gervigreindarsérfræðinga, rafmagnsverkfræðinga, sérfræðinga í mekatróník, reynslumikla sölumenn og markaðsfólk með alþjóðlega sýn, ásamt sérfræðingum í gæðastjórnun og sjálfbærni.

Samtök iðnaðarins hafa á síðastliðnum árum ítrekað bent á þessa þróun og gáfu m.a. út greiningu árið 2024 byggðri á könnun á meðal félagsmanna í greininni sem sýndi fram á að fyrirtækin þyrftu að fjölga sérfræðingum um allt að 9.000 á næstu fimm árum til að fylgja eftir vaxtaáætlunum sínum. Mörg fyrirtæki í hugverkaiðnaði bíða nú eftir úrlausn umsókna og í þeirri bið glatast dýrmæt tækifæri til vaxtar. Það skiptir máli að Ísland bjóði upp á samkeppnishæf skilyrði annars bíða vaxtartækifæri greinarinnar á biðstofunni. Auðlind hugverkaiðnaðarins er hugvit og nýsköpun sem byggir á rannsóknar- og þróunarstarfi. Í greininni er framleiðni meiri en að jafnaði í öðrum greinum hagkerfisins og viðfangsefni hennar mörg hver að finna lausnir á helstu áskorunum samfélagsins hvort sem er í loftslagsmálum, heilbrigðisþjónustu eða innviðum.

Leiðin til að auka lífsgæði landsmanna er að styðja við áframhaldandi vöxt hugverkaiðnaðar. Til þess þarf að tryggja að nægjanlegt framboð sérfræðinga sé fyrir hendi. Það krefst bæði öflugs menntakerfis og markvissra aðgerða til að einfalda aðgengi að alþjóðlegum sérfræðingum. Samtök iðnaðarins leggja áherslu á að slíkar aðgerðir séu nauðsynlegar ef nýsköpun, verðmætasköpun og útflutningur á grunni hugverka eigi að halda áfram að vaxa í þágu íslensks samfélags.

Erla Tinna er viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði Samtaka iðnaðarins og Hulda Birna er sérfræðingur í mennta- og mannauðsmálum hjá Samtökum iðnaðarins.




Skoðun

Sjá meira


×