Erlent

Sex látnir eftir að þyrla brot­lenti í New York

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Skjáskot úr myndbandi af vettvangi þar sem þyrlan hrapaði í Hudson-á.
Skjáskot úr myndbandi af vettvangi þar sem þyrlan hrapaði í Hudson-á. AP

Sex eru látnir eftir að þyrla brotlenti í Hudson-á í New York. Þrír fullorðnir og þrjú börn voru um borð. Eric Adams, borgarstjóri New York-borgar, segir að um hafi verið að ræða spænska ferðamenn. Fimm manna fjölskylda og flugmaður þyrlunnar séu öll látin. 

AP hefur fjölda látinna eftir viðbragðsaðilum á vettvangi og CBS hefur eftir New York-lögreglu að búið sé að draga líka allra farþeganna sex úr vatninu.

Slökkviliði New York-borgar barst tilkynning um að þyrla hefði lent í vatninu um 15:17 að staðartíma (19:17 að íslenskum tíma). 

Í kjölfarið var mikið viðbragð virkjað og er fjöldi viðbragðsaðilar á vettvangi, bæði á landi og bátar á ánni. Búið er að koma fólkinu úr ánni en þyrlan er þar enn.

Brak sást falla úr þyrlunni áður en hún lenti í ánni

Þyrlan er talin vera af gerðinni Bell 206L-4 LongRanger IV, sem getur rúmað allt að sjö farþega, og  í einkaeign. Hún hrapaði við ströndina, við hlið bryggju 40, hinum megin við New Jersey.

Eftir að þyrlan tók á loft flaug hún í átt að frelsisstyttunni, hélt síðan upp Hudson-ánna, sneri við eftir að hafa flogið yfir George Washington-brú og flaug þá meðfram Jersey-hlið árinnar áður en hún hrapaði til jarðar við Jersey-borg. 

Talið er að þyrlan hafi verið á lofti í um fimmtán mínútur áður en hún splundraðist og hrapaði til jarðar. Brak úr þyrlunni sást falla úr þyrlunni áður en hún brotlenti í ánni.

Flugmálastjórn Bandaríkjanna (FAA) hefur hafið rannsókn á slysinu.

Fjöldi flugslysa í Bandaríkjunum síðustu mánuði

Þyrlur og flugvélar eru ekki sjaldséðar yfir Manhattan, bæði einkaflugvélar og farþegaflugvélar. Fjöldi þyrlupalla er vítt og breitt um borgina og notfærir fjöldi forstjóra og efnameira fólks sér þyrlur til að komast á milli staða.

Gegnum árin hafa þó nokkur flug- og þyrluslys orðið í borginni. Árið 2009 létust níu manns í árekstri flugvélar og ferðamannaþyrlu og fimm létust þegar þyrla hrapaði í Austurá í borginni.

Þekktasta þyrluslys síðustu ára er án efa þegar einkaþyrla Kobe Bryant, fyrrverandi körfuboltamanns, hrapaði til jarðar í Calabassas í Kaliforníu með þeim afleiðingum að allir níu farþegar hennar létust, það á meðal Bryant og dóttir hans, Gigi.

Töluvert hefur borið á flugslysum í Bandaríkjunum undanfarin misseri, 28 létust í flugslysi í Potomac-á í Washington-borg í janúar og sex létust þegar sjúkraflugvél hrapaði til jarðar í Fíladelfíu-borg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×