Venezia vann afar mikilvægan sigur á Monza, 1-0, í fallbaráttu ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag.
Mikael Egill Ellertsson var í byrjunarliði Venezia og hann lagði upp sigurmark liðsins fyrir Daniel Fila á 72. mínútu. Bjarki Steinn Bjarkason sat allan tímann á varamannabekk Venezia.
Þetta var önnur stoðsending Mikaels í ítölsku úrvalsdeildinni á tímabilinu en hann hefur einnig skorað tvö mörk.
Sigurinn í dag var aðeins sá fjórði hjá Venezia á tímabilinu. Liðið er í nítjánda og næstneðsta sæti deildarinnar með 24 stig, tveimur stigum frá öruggu sæti.
Svekkjandi endir hjá Birki og félögum
Birkir Bjarnason kom inn á sem varamaður á 89. mínútu þegar Brescia gerði 1-1 jafntefli við Cosenza í ítölsku B-deildinni. Brescia var manni færri frá 38. mínútu þegar Andrea Cistana fékk rauða spjaldið.
Brescia náði forystunni á 26. mínútu með sjálfsmarki Aldos Florenzi en Massimo Zilli jafnaði fyrir Cosenza þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.
Brescia er í 14. sæti deildarinnar með 35 stig.