Ari og Arnór mættust á miðjunni Ágúst Orri Arnarson skrifar 12. apríl 2025 17:35 Ari Sigurpálsson fór með sigur af hólmi í Íslendingaslagnum í Svíþjóð. Ari Sigurpálsson og Arnór Ingvi Traustason mættust á miðjunni í leik Elfsborg og Norrköping, sem lauk með 2-0 sigri Elfsborg í þriðju umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.
Arnór Ingvi spilaði allan leikinn djúpur á miðju Norrköping. Ari byrjaði fremstur á miðju hjá Elfsborg, sem var mun sterkari aðilinn, og spilaði sjötíu mínútur, en var síðan tekinn af velli fyrir Frederik Ihler sem tvöfaldaði forystuna á þriðju mínútu uppbótartíma. Taylor Silverholt skoraði fyrra markið á 33. mínútu. Ísak Andri Sigurgeirsson kom inn af varamannabekk Norrköping á sjötugustu mínútu en tókst ekki að setja mark sitt á leikinn. Júlíus Magnússon, miðjumaður Elfsborg, var fjarverandi vegna meiðsla. Fyrsti sigur Elfsborg skilaði sér þar með í þriðju umferð, eftir jafntefli gegn Mjallby í fyrstu umferð og tap gegn Malmö í annarri umferð. Norrköping vann Öster í fyrstu umferðinni en hefur síðan tapað gegn AIK og Elfsborg. Ari er nýgenginn til liðs við Elfsborg og fer vel af stað, skoraði í fyrsta leik og hefur verið í byrjunarliðinu í fyrstu þremur leikjunum. Davíð framar á vellinum en vanalega í Póllandi Davíð Kristján Ólafsson spilaði fyrri hálfleikinn í 2-4 tapi Cracovia gegn Slask í 28. umferð pólsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Davíð var framar á vellinum en vanalega, spilaði sem vinstri vængmaður frekar en vængbakvörður. Liðið situr í sjötta sæti deildarinnar þegar sex umferðir eru eftir.
Sænski boltinn Mest lesið Íslensk hjón fóru holu í höggi á sama hring Golf Freyr á toppnum: „Ég elska Bergen“ Fótbolti Staðfestir brottför frá Liverpool Enski boltinn „Loksins fæ ég að hafa hann í mínu liði“ Körfubolti Heimamaður setti met í fjölmennasta utanvegahlaupi Íslands Sport Kane fékk loksins að syngja sigurlagið Fótbolti Pirraður Hamilton biðst ekki afsökunar Formúla 1 Sendu Houston enn á ný í háttinn Körfubolti Piastri fagnaði þriðja sigrinum í röð Formúla 1 Dagskráin í dag: Oddaleikur og þrír leikir í Bestu deild karla Sport Fleiri fréttir Staðfestir brottför frá Liverpool Freyr á toppnum: „Ég elska Bergen“ Kane fékk loksins að syngja sigurlagið Uppgjör: FH - Valur 3-0| FH skellti Valsmönnum „Vantar hjarta og baráttu í mína menn“ „Náðum að nýta kröftuga byrjun með mörkum“ Lille bjargaði mikilvægu stigi Nik sendi Ástu skeyti: „Mikil eftirvænting fyrir þessari frumraun“ Hörður í hóp eftir tæplega tveggja ára meiðsli Uppgjörið: ÍA - KA 3-0 | Skagamenn risu upp og Viktor fann markaskóna Bayern varð sófameistari Logi skoraði í tapi en Stefán setti sigurmark Erfitt hjá Íslendingunum í Svíþjóð Uppgjörið: ÍBV - Vestri 0-2 | Vestramenn aftur á toppinn Vont tap hjá Alberti í Rómarborg Meistaraþynnka hjá Liverpool og Chelsea græddi mikilvæg stig Isak tryggði Skjórunum stig gegn Mávunum Sjö marka leikur í Lundúnum og enn eitt tap United Hamrarnir jöfnuðu gegn Spurs en biðin eftir sigri lengist enn Titilvonir Real Madrid lifa og El Clásico framundan Yngstur til að byrja leik fyrir United í ensku úrvalsdeildinni Leikmaður Palace vann tvær og hálfa milljón á skákmóti Sjáðu markaveislu Breiðabliks og FH og mörkin úr sögulegum sigri Fram Ætla að nýta reiðina í Meistaradeildinni Markmaðurinn á batavegi eftir harkalegt höfuðhögg Börsungar sneru við blaðinu gegn botnliðinu „Við gátum ekki farið mikið neðar“ Fyrsta mark Eggerts í fimmta sigri Brann í röð Uppgjörið: Stjarnan - Valur 1-0 | Stjarnan fyrst til að skora gegn Val Kirsuberin komu til baka og stálu sigri af Skyttunum Sjá meira