Íslenski boltinn

„Skil bara ekki að KSÍ leyfi þetta“

Sindri Sverrisson skrifar
Mist Edvarsdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir voru ekki hrifnar af þeirri ákvörðun að heimaleikur Þórs/KA við Tindastól skyldi fara fram inni í Boganum í stað Greifavallarins.
Mist Edvarsdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir voru ekki hrifnar af þeirri ákvörðun að heimaleikur Þórs/KA við Tindastól skyldi fara fram inni í Boganum í stað Greifavallarins. Stöð 2 Sport

Tveir leikir af fimm í 2. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta fóru fram innanhúss, í Boganum á Akureyri og Fjarðabyggðarhöllinni. Þetta var til umræðu í Bestu mörkunum á Stöð 2 Sport.

„Mér finnst ógeðslega leiðinlegt að horfa á leiki inni í þessum höllum, bæði Boganum og Fjarðabyggðarhöllinni,“ sagði Mist Edvardsdóttir umbúðalaust í síðasta þætti en brot úr þættinum má sjá hér að neðan.

Klippa: Bestu mörkin - Umræða um hallirnar

Fjarðabyggðarhöllin verður heimavöllur nýliða FHL fyrir austan í sumar á meðan að ekki er fullnægjandi aðstaða á öðrum völlum.

Þór/KA ákvað svo að byrja tímabil sitt í Boganum á meðan að grasvöllur Þórs er að ná sér eftir veturinn en sérfræðingarnir í Bestu mörkunum furðuðu sig á að leikur liðsins við Tindastól skyldi ekki frekar fara fram á gervigrasvellinum sem karlalið KA spilar sína heimaleiki á.

Í þættinum voru sýnd dæmi um það þegar boltinn fór upp í þakið á Boganum svo að stöðva þurfti leik og hefja hann að nýju.

„Þetta er bara fáránlegt. Þær fá gott færi af því að boltinn fór upp í loftið í einhverri höll. Mér finnst bara leiðinlegt að horfa á fótbolta svona. Í Fjarðabyggðarhöllinni er þetta líka svo þétt að maður sá ekki hvað var að gerast þegar boltinn var úti við hliðarlínu,“ sagði Mist.

Á það var bent að Þór/KA hefði lokið síðasta tímabili á Greifavellinum á KA-svæðinu og velt vöngum yfir því af hverju Akureyringar spiluðu ekki þar núna:

„Þetta hlýtur að vera þeirra val. Þau hljóta að hugsa með sér að þeim líði best þarna, með sinn klefa. Eitthvað umhverfi sem leikmenn vilja. Við hin verðum þá bara að bíta í það súra epli,“ sagði Margrét Lára Viðarsdóttir og Mist greip þá inn í:

„Ég skil alveg að þær vilji þetta en ég skil bara ekki að KSÍ leyfi þetta. Mér finnst þurfa að vera ákveðinn standard á höllunum til að það sé hægt að spila þar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×