Sport

Dag­skráin í dag: Stútfullur sófasunnudagur til sigurs

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Manchester City mætir Nottingham Forest í undanúrslitum FA-bikarsins í dag.
Manchester City mætir Nottingham Forest í undanúrslitum FA-bikarsins í dag. Martin Rickett/PA Images via Getty Images

Óhætt er að segja að nóg verði um að vera á sportrásum Stöðvar 2 og Vodafone á þessum síðasta sunnudegi aprílmánaðar. Alls verður boðið upp á sextán beinar útsendingar þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Bestu-deildir karla og kvenna, úrslitakeppnin í Subway-deild kvenna, enski bikarinn og NBA er meðal þess sem boðið verður upp á þennan sunnudaginn á Sportrásum Stöðvar 2 og Vodafone.

Stöð 2 Sport

Íslenskur fótbolti á sviðið á Stöð 2 Sport í dag og í kvöld og við hefjum leik á viðureign FH og FHL í Bestu-deild kvenna klukkan 13:50. 

Klukkan 16:05 er svo komið að beinni útsendingu frá viðureign KA og FH í Bestu-deild karla áður en KR og ÍA eigast við klukkan 19:00. Subway Tilþrifin verða svo á sínum stað að leik loknum þar sem farið verður yfir allt það helsta úr leikjum dagsins í Bestu-deild karla.

Þá verður A&B á dagskrá klukkan 22:10 þar sem fjallað er um fótboltatvíburana Arnar og Bjarka Gunnlaugssyni.

Stöð 2 Sport 2

Minnesota Timberwolves og Los Angeles Lakers eigast við í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta klukkan 19:30.

Stöð 2 Sport 4

The Chevron Championship á LPGA-mótaröðinni í golfi heldur áfram á Stöð 2 Sport 4 frá klukkan 18:00.

Stöð 2 Sport 5

Njarðvík og Keflavík eigast við í Suðurnesjaslag í úrslitakeppni Bónus-deildar kvenna klukkan 18:45. Njarðvíkingar leiða einvígið 2-0 og geta því sent nágranna sína í sumarfrí.

Að leik loknum verður Bónus Körfuboltakvöld kvenna svo á dagskrá þar sem leiknum verða gerð góð skil.

Stöð 2 BD

Vestri og Breiðablik eigast við á hliðarrás Bestu-deildarinnar í Bestu-deild karla klukkan 13:50 áður en Valur tekur á móti Þór/KA í Bestu-deild kvenna klukkan 16:50.

Stöð 2 BD 2

Á hinni hliðarrás Bestu-deildarinnar eigast Tindastóll og Stjarnan við í Bestu-deild kvenna klukkan 16:50.

Vodafone Sport

Kristianstad og Pieta eigast við í sænsku úrvalsdeildinni klukkan 10:50 áður en Djurgarden tekur á móti Rosengard klukkan 12:55.

Klukkan 15:20 er svo komið að viðureign Nottingham Forest og Manchester City í undanúrslitum enska bikarsins, FA Cup.

Að lokum verður svo bein útsending frá Jack Link´s 500 í Nascar kappakstri frá klukkan 18:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×