Uppgjörið: Fram - Afturelding 3-0 | Mosfellingum kippt niður á jörðina Hinrik Wöhler skrifar 28. apríl 2025 21:15 Fyrirlið Fram, Kennie Chopart, var á skotskónum í kvöld. Vísir/Diego Fram sigraði Aftureldingu sannfærandi 3-0 á Lambhagavellinum í fjórðu umferð Bestu-deildar karla í kvöld. Sigur Fram var aldrei í hættu og náðu Mosfellingar ekki að fylgja eftir frábæri frammistöðu á móti Víkingum í síðustu umferð. Fram fékk kjörið tækifæri strax á fyrstu mínútu eftir mistök í vörn Aftureldingar. Magnús Þórðarson komst einn á móti Jökli Andréssyni en markvörðurinn var fljótur út á móti og varði vel. Framarar byrjuðu leikinn af krafti og komu boltanum í netið örfáum mínutum síðar þegar Kyle McLagan skallaði boltann í markið en aðstoðardómarinn lyfti flagginu og stóð markið ekki. Heimamenn héldu áfram að sækja og á 20. mínútu kom fyrsta markið. Vuk Oskar Dimitrijevic tók á rás upp vinstri kantinn og og gaf nákvæma sendingu inn á miðjan vítateig. Þar var Kennie Chopart mættur og náði föstum skalla í fjærhornið sem Jökull Andrésson náði ekki til. Mosfellingar vöknuðu til lífsins eftir fyrsta mark Framara en voru slegnir niður á jörðina á 35. mínútu þegar Framarar skoruðu aftur. Haraldur Einar Ásgrímsson átti lúmska fyrirgjöf af vinstri vængnum sem fór í gegnum vörn Aftureldingar þar sem Kyle McLagan kláraði örugglega við fjærstöng. Kyle var einn og óvaldaður við markteiginn og renndi boltanum auðveldlega í netið. Framarar gáfu ekkert eftir og héldu áfram að sækja að marki Aftureldingar. Fred Saraiva tók góðan sprett að vítateigslínunni og lét vaða að marki en Jökull Andrésson náði að blaka boltanum frá. Framarar fóru með tveggja marka forskot í hálfleik og ljóst var að Mosfellingar þurftu að bæta verulega í til að fá stig út úr leiknum í kvöld. Það var kraftur í Mosfellingum í upphafi seinni hálfleiks og voru gestirnir hársbreidd að minnka muninn snemma í seinni hálfleik. Elmar Kári Cogic slapp inn fyrir vörn Framara og vippaði laglega yfir Viktor Frey Sigurðsson, boltinn var á leið í netið en Kennie Chopart náði að skalla frá á elleftu stundu. Það var hins vegar ekki Mosfellingar sem skoruðu næsta mark heldur var það Vuk Oskar Dimitrijevic sem opnaði markareikning sinn með Fram á 74. mínútu. Freyr Sigurðsson vann boltann af Aroni Jónssyni í vörn Aftureldingar og lagði hann út á Vuk Oskar sem gat ekki annað en skorað í autt markið. Leikurinn fjaraði hægt og rólega út eftir þriðja markið og Framarar gátu því fagnað sannfærandi sigri eftir svekkjandi tap gegn ÍBV í síðustu umferð. Atvik leiksins Stórbrotin björgun Kennie Chopart í upphafi seinni hálfleiks kom í veg fyrir að Mosfellingar fengju vonarneista. Elmar Kári Cogic var nærri því að minnka muninn í 2-1 og koma Mosfellingum aftur inn í leikinn en danski bakvörðurinn bjargaði meistaralega á línu. Stjörnur og skúrkar Það voru margir ljósir punktar í liði Fram og átti fimm manna varnarlína Fram stórgóðan leik. Fyrirliði Fram, Kennie Chopart, var fremstur meðal jafningja í kvöld. Hann skoraði fyrsta mark Fram með föstum skalla en lét það ekki nægja og bjargaði meistaralega á marklínu í upphafi seinni hálfleiks. Vuk Oskar Dimitrijevic átti sinn besta leik síðan hann kom til Fram og lagði upp fyrsta markið með hnitmiðaðri sendingu og kórónaði góðan leik með þriðja markinu. Það var endurtekið stef hjá Mosfellingum og þeir eiga í mestum vandræðum með að breyta góðu uppspili í mörk. Sköpuðu góðar stöður og álitleg færi í leiknum en mörkin standa á sér. Dómarar Helgi Mikael Jónasson dæmdi leikinn í kvöld og fékk litlar þakkir frá Mosfellingum í aðdraganda þriðja marks Fram. Aron Jónsson, miðvörður Aftureldingar, féll við í baráttunni um boltann og kláruðu Framarar leikinn í kjölfarið. Snertingin var til staðar þó hún væri ekki mikil og hefði Helgi mögulega getað flautað á Framara. Þess fyrir utan var Helgi með góð tök á leiknum og hélt fínni línu í gegnum leikinn. Stemning og umgjörð Margir Mosfellingar virðast hafa valið handboltann fram yfir fótboltann í kvöld en handknattsleikslið Aftureldingar lék í undanúrslitum Olís-deildar karla í kvöld og var góðmennt í stúkunni hjá gestunum. Það var þó ágætis stemning á Lambhagavellinum, tæplega 800 manns létu sjá sig og heyrðist ágætlega í stuðningsmönnum. Viðtöl Magnús Már: „Þetta er heiðarlegasti maður í heimi“ Vafaatriðin féllu ekki með Magnúsi Má og lærisveinum hans í Aftureldingu í kvöld.vísir / ívar fannar Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, vildi sjá meiri ákefð og áræðni frá leikmönnum sínum í leiknum í kvöld. „Mér fannst þeir bara vera grimmari á svona lykil mómentum í leiknum, þar sem þeir skoruðu mörkin sín á kafla í fyrri hálfleik þar sem við erum ekki nógu góðir,“ sagði Magnús. „Í síðari hálfleik spilum við á eitt mark og þeir verjast vel. Við vorum ekki nægilega grimmir í teignum, fáum fínar stöður en náum einhvern veginn ekki að gera okkur mat úr þeim. Eigum fullt af marktilraunum og komust oft inn í teiginn þeirra en það vantaði meiri grimmd, því miður,“ bætti Mosfellingurinn við. Samkvæmt Magnúsi þá vantaði djörfung og baráttu hjá leikmönnum Aftureldingar í kvöld, sér í lagi inn í vítateig andstæðingana og herslumuninn hefði vantað upp á til að brjóta ísinn. „Ég sagði við strákana eftir leik að við vorum ekki nægilega áræðnir þegar við vorum komnir inn í. Boltinn var að detta dauður í teignum og það vantaði meiri grimmd og það var það sem ég var ósáttastur við. Út á velli vorum að spila ágætis fótbolta á köflum og koma okkur í fínar stöður og vantaði bara að reka endahnútinn á þær.“ Magnús Már var allt annað en sáttur við Helga Mikael Jónasson, dómara leiksins, eftir að hann leyfði þriðja marki Fram að standa og segir að þetta hafi verið augljóst brot þegar Aron Jónsson lá óvígur eftir. „Já, mér fannst þetta pjúra brot. Ég get lofað ykkur því að þetta er heiðarlegasti maður í heimi og hann myndi ekki liggja eftir í eina mínútu ef hann hefði runnið. „Augljóslega fer hann í hann og það þarf ekki einu sinni að ræða það. Það drap mómentið, við vorum búnir að setja á þá og 20 mínútur voru eftir. Það hefði verið skemmtilegur lokakafli ef við hefðum ekki lent í því mómenti en þeir mátu þetta svona, Helgi og félagar, og þá verður það að vera þannig,“ sagði Magnús sannfærður í sinni sök. Jökull Andrésson, markvörður Mosfellinga, fór út af í hálfleik en Magnús Már hefur ekki þungar áhyggjur af meiðslum hans. „Smá stífur í náranum og ákváðum ekki að taka sjénsa. Reikna með að hann verði ekki lengi frá, þetta er ekki alvarlegt,“ sagði Magnús um meiðsli Jökuls. Mosfellingar leita leiða til að styrkja sóknarleik liðsins og hafa einn dag til stefnu til að bæta við leikmanni. Magnús segist vera skoða markaðinn um þessar mundir. „Já, við erum að skoða. Ekkert í hendi og við sjáum bara, það eru 27 tímar í þetta. Sjáum hvað gerist,“ sagði Magnús að lokum. Besta deild karla Fram Afturelding Fótbolti Íslenski boltinn
Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 91-105 | Grindavík hélt sér á lífi með langþráðum sigri utan heimabæjarins Körfubolti
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-1 | Jafntefli sanngjarnt þegar hvorugt lið sækir til sigurs Íslenski boltinn
Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 91-105 | Grindavík hélt sér á lífi með langþráðum sigri utan heimabæjarins Körfubolti
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-1 | Jafntefli sanngjarnt þegar hvorugt lið sækir til sigurs Íslenski boltinn