Skoðun

Kveðjur úr Grafar­vogi til þeirra sem kasta steinum úr gler­húsi

Davíð Már Sigurðsson skrifar

Það er á hæsta máta einkennilegt að kollegi minn fyrir norðan sé svona uppsigað við græn svæði í Grafarvoginum. Eða að íbúar þar vilji að hægt sé að leggja þar einkabíl. Ef það eitthvað sem nóg er af á Akureyri þá eru það bílastæði og einbýlishús. Glerhús og steinar einhver…

Ef ég ætlaði að gera honum upp skoðanir, líkt og hann, gæti ég alteins eins vænt hann um andúð á börnum og ungmennum, því hverjir munu líða fyrir skort á grænum svæðum ef ekki börn og ungmenni. Ég gæti líka sakað hann um ódýra dygðaskreytingu. En það geri ég að sjálfsögðu ekki, hef ekki áhuga að leggjast á á sama plan.

En pistillinn lyktaði óneitanlega eins og framboðsræða úr fórum pólitíkusa sem er engin eftirspurn eftir. Allavega ekki í verðleikríkisstjórnarinnar valkyrjanna. Það er bara ekki í tísku lengur að berja sér á brjóst og móðgast fyrir hönd annarra. Hvern er verið að blikka?

Að sama skapi er jafn skondið að halda því fram að enginn sem heldur á hamri, malbikar eða múrar geti haft eitthvað milli handanna og talist til millistéttar. En ég er auðvitað bara grunnskólakennari sem vinnur á gólfinu og bý líklega ekki yfir jafn magnaðri innsýn í raunveruleika tekjulágra eins og háskólakennari að norðan. En síðast þegar ég gáði var þó ekki gífurlegur munur á fermetraverði fasteigna í Grafarvogi og á Akureyri svo þeir sem eru tekjulágir eiga nokkuð svipaða möguleika á húsnæði á báðum stöðum. En ég færi seint að saka minn gamla heimabæ um að vera andverkalýðslegur líkt og kollegi minn að norðan gerði um Grafarvoginn. Enda elska ég Akureyri, og keyri þangað reglulega úr blokkaríbúðinni minni, að heimsækja vini og vandamenn, á nelgdu dekkjunum mínum, hvernig sem viðrar.

En svona öllu gamni slepptu þá snýst gremja um innviði hverfisins sem planið er að ganga fram af, ásamt því að ræna okkur grænu svæðunum. Því bara gert ráð fyrir fleiri íbúðum, sumum jafnvel upp við dyrnar á grunnskólanum. Og þar sem skólamálin standa mér næst hef ég svo sannarlega áhyggjur.

Höfundur er stoltur Grafarvogsbúi og grunnskólakennari.




Skoðun

Skoðun

Konur og menntun

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar

Sjá meira


×