Viðskipti innlent

Lands­bankinn hagnaðist um 7,9 milljarða á fyrsta árs­fjórðungi

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Landsbankinn birti ársfjórðungsuppgjör sitt í gær.
Landsbankinn birti ársfjórðungsuppgjör sitt í gær. Vísir/Vilhelm

Hagnaður Landsbankans á fyrsta ársfjórðungi 2025 nam 7,9 milljörðum króna, sem er ellefu prósent aukning frá sama tímabili í fyrra. Þetta er fyrsta ársfjórðungsuppgjörið eftir kaup Landsbankans á tryggingarfyrirtækinu TM.

Lesa má um ársfjórðungsuppgjörið í tilkynningu á vef Landsbankans. Þar kemur fram að arðsemi eiginfjár á tímabilinu var einnig meiri en í fyrra, tíu prósent samanborið við 9,3 prósent.

„Óró­leiki á mörkuðum og óvissa í alþjóðamálum setti mark sitt á fjórðunginn með ýmsum hætti. Hægt hefur á útlána­vexti, bæði hjá ein­stak­lingum og fyrir­tækjum, sem sum hver bíða átekta með fjár­festingar og aðrar ákvarðanir,“ sagði Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, í tilefni uppgjörsins.

Aukinn rekstrarkostnaður bankans vegna kaupa á TM, sem fór í gegn 28. febrúar 2025, hefur einnig áhrif á uppgjörið.

Heildarafkoman neikvæð í mars

„Uppgjörið nú er það fyrsta síðan bankinn tók við rekstri TM og samvinnan fer vel af stað. Á þessum fyrstu vikum frá því kaupin gengu í gegn hefur mikið áunnist, m.a. hafa þrjú útibú bankans og TM verið sameinuð og lokið var við flókna yfirfærslu á tölvukerfum,“ sagði Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, í tilefni uppgjörsins.

Bankinn muni kynna ýmsar nýjungar í tryggingaþjónustu áður en langt um líður. Rekstur tryggingafélags og banka færi vel saman og byði upp á möguleika á betri og fjölbreyttari fjármálaþjónustu.

„TM kemur inn í uppgjör bankans frá byrjun mars og uppgjörið sýnir því einn mánuð af rekstri félagsins. Afkoma af vátryggingarstarfsemi var góð í mars en lækkun á fjárfestingareignum vegna óróa á fjármagnsmörkuðum varð til þess að heildarafkoman var neikvæð,“ sagði Lilja.

Kostnaðarhlutfall eykst nokkuð

Heildar­eignir Lands­bankans námu 2.257 milljörðum króna í lok mars, sem er 3,5% hækkun frá áramótum og 11,1 prósent aukning frá 31. mars í fyrra.

Hreinar vaxtatekjur bankans á tímabilinu voru 14,8 milljarðar króna og hreinar þjónustutekjur þrír milljarðar króna. Báðir þessir liðir hækka milli ára.

Kostnaðarhlutfall bankans var 38,7 prósent, samanborið við 33,6 prósent á sama tímabili í fyrra. Skýrist það meðal annars af gjaldfærðum kostnaði vegna kaupa bankans á TM og auknum launakostnaði vegna fjölgunar starfsfólks.

Eiginfjárhlutfall bankans var 23,6 prósent sem er nokkuð yfir kröfu fjármálaeftirlits Seðlabankans um 20,4 prósent eiginfjárgrunn.

Betra lánshæfismat og 18,9 milljarðar í arð

Landsbankinn lauk í febrúar við sölu verðbréfa sem telja til viðbótar eiginfjárþáttar 1 (e. Additional Tier 1 securities - AT1) að fjárhæð 100 milljónir bandaríkjadala en um var að ræða fyrstu AT1-útgáfu bankans. 

Þá gaf bankinn út víkjandi forgangsbréf fyrir 500 milljónir í norskum krónum annars vegar og 1.300 milljónir í sænskum krónum hins vegar.

Uppgjör og afhending hlutafjár vegna kaupa Landsbankans á TM tryggingum hf. fór fram 28. febrúar 2025 og tók bankinn þá við rekstri félagsins.

Samþykkt var að greiða 18,9 milljarða króna í arð til hluthafa á aðalfundi bankans 19. mars 2025. Heildararðgreiðslur bankans frá 2013 munu því nema 210,6 milljörðum króna í lok árs.

Á mánudaginn síðastliðinn var tilkynnt um að alþjóðlega matsfyrirtækið S&P hefði hækkað lánshæfismat bankans upp í A-flokk, úr BBB+ í A-.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×