
Uppgjör og ársreikningar

Hagnaður Isavia rúmir fimm milljarðar
Rekstrarafkoma samstæðu Isavia fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) á árinu 2024 var jákvæð um 10,7 milljarð króna samanborið við jákvæða rekstrarafkomu upp á 8,1 milljarð króna árið 2023. Heildarafkoma ársins var jákvæð um 5,2 milljarð króna

Afkoma ársins undir væntingum
Rekstrarhagnaður samstæðu Sýnar nam 739 milljónum króna árið 2024 samanborið við 3.544 milljónir króna árið 2023. Tap eftir skatta fyrir virðirýrnun nam 357 milljónum samanborið við 2.109 króna hagnað í fyrra.

Heildarfjöldi farþega 4,7 milljónir í fyrra
Heildartekjur Icelandair á 4. ársfjórðungi jukust um 10 prósent og námu 48 milljörðum króna eða 349 milljónum Bandaríkjadala. EBIT afkoma batnaði um 2,5 milljarða króna (18 milljónir USD), EBIT á fjórða ársfjórðungi var neikvætt um 4,4 milljarða króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair um ársreikning þeirra fyrir árið 2024. Þar kemur ennfremur fram að tap félagsins á síðasta ári hafi verið 2,5 milljarðar króna.

Afkoma Arion lengst yfir spám greinenda
Drög að uppgjöri Arion banka fyrir fjórða ársfjórðung 2024 liggja nú fyrir og samkvæmt þeim er afkoma fjórðungsins um 8,3 milljarðar króna, sem leiðir til 13,2 prósenta arðsemi eiginfjár á árinu 2024. Afkoma fjórðungsins er um 28 prósentum yfir meðaltalsspá greiningaraðila.

Hagnaðurinn dregst saman
Hagnaður Ölgerðarinnar eftir skatta nam 1.160 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi síðasta árs. Það gerir 22 prósent lækkun hagnaðar milli ára.

Afkoma Orkuveitunnar 44 prósentum betri en í fyrra
Rekstur Orkuveitunnar skilaði 5,1 milljarðs króna afgangi fyrstu níu mánuði ársins. Það er 44 prósenta aukning frá sama tímabili fyrra árs og góð undirstaða fyrirhugaðs vaxtar Orkuveitunnar á næstu árum, að mati Sævars Freys Þráinssonar forstjóra.

Hagnaður Arion banka eykst um tæpa tvo milljarða
Hagnaður Arion banka á þriðja ársfjórðungi var 7,9 milljarðar króna, sambanborið við 6,1 milljarð á sama tímabili í fyrra. „Núverandi vaxtaumhverfi er þess valdandi að við erum varfærin í okkar niðurfærslum,“ segir bankastjórinn um sögulega háa verðtryggða vexti.

Bein útsending: Kynna afkomuna og fara nánar yfir breytingarnar
Flugfélagið Play boðar til fundar í Sykursalnum í Vatnsmýrinni þar sem afkoma þriðja ársfjórðungs verður kynnt. Þá verður farið nánar yfir þegar tilkynntar grundvallarbreytingar sem til stendur að gera á rekstrarmódeli félagsins. Sýnt verður frá fundinum hér á Vísi.

Fimm milljarðar í tekjur af vöxtum á mánuði
Landsbankinn hefur hagnast um 26,9 milljarða króna eftir skatta á árinu, þar af um 10,8 milljarða á þriðja ársfjórðungi. Hreinar vaxtatekjur bankans á árinu nema 44,1 milljarði króna eða sem nemur tæplega fimm milljörðum á mánuði að meðaltali.

Tekjur jukust um sjö prósent milli ára
Tekjur Símans á þriðja ársfjórðungi námu 6.955 milljónum króna samanborið við 6.501 milljónir króna á sama tímabili í fyrra og jukust því um 7 prósent. Tekjur á kjarnaþjónustum Símans, farsíma, gagnaflutningi og sjónvarpsþjónustu jukust einnig um rúmlega þrjú prósent milli tímabila.

Hagnaður dregst saman um tæpa tvo milljarða króna
Hagnaður Icelandair eftir skatta var 9,5 milljarðar króna á þriðja ársfjórðungi og dregst saman um 1,7 milljarða á milli ára. Heildarfjöldi farþega var 1,7 milljónir og jókst um 200 þúsund á milli ára.

Rekstur Rammagerðarinnar gaf vel í fyrra
Rammagerðin ehf., sem rekur samnefndar gjafavöruverslanir, hagnaðist um 76 milljónir króna í fyrra. Tekjur ársins voru 41 prósenti meiri en árið áður, alls 2,2 milljarðar króna.

Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman
Bananalýðveldið ehf., eignarhaldsfélag í eigu skemmtikraftsins Björns Braga Arnarssonar, hagnaðist um rúmar tíu milljónir króna á síðasta ári. Hagnaðurinn árið áður nam tæpum fjörutíu milljónum króna.

Hagnaður Arion banka dregst saman milli ára
Hagnaður Arion banka á öðrum ársfjórðungi 2024 var 5,5 milljarðar, samanborið við 7,1 milljarð á sama tímabili í fyrra. Hagnaður fyrstu sex mánuði ársins var 9,9 milljarðar, samanborið við 13,4 milljarða fyrstu sex mánuði 2023. Bankastjóri segir margt gott í uppgjöri bankans þrátt fyrir að arðsemismarkmiði hafi ekki verið náð.

Play tapaði milljarði en staðan „mjög traust“ að mati forstjórans
Flugfélagið Play tapaði 8,1 milljón Bandaríkjadala eða rúmlega 1,1 milljarði króna á öðrum ársfjórðungi. Tapið er töluvert meira en á sama ársfjórðungi árið 2023 þegar Play tapaði 4,6 milljónum Bandaríkjadala eða sem nemur rúmlega 600 milljónum króna

Horfurnar versna hjá Play sem kippir afkomuspá úr gildi
Flugfélagið Play hefur fellt úr gildi afkomuspá sína fyrir yfirstandandi ár. Félagið fetar í fótspor Icelandair sem gerði slíkt hið sama í maí. Play birtir uppgjör fyrir annan ársfjórðung á fimmtudaginn.

Móðurfélag Össurar hagnaðist um 2,8 milljarða á metfjórðungi
Embla Medical, móðurfélag stoðtækjafyrirtækisins Össurar skilaði 2,8 milljarða króna hagnaði á öðrum ársfjórðungi 2024 og jókst hann um 26 prósent frá sama tíma í fyrra.