Innlent

Glussakerfið ó­nýtt eftir brunann

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Frá störfum slökkviliðsins í dag. 
Frá störfum slökkviliðsins í dag.  Vísir/Anton brink

Glussakerfi ruslabílsins sem brann í Vesturbæ Reykjavíkur í dag er ónýtt. Frá því er greint í dagbók lögreglunnar frá deginum í dag. 

Tilkynnt var um eld í ruslabíl við Kaplaskjólsveg í Reykjavík upp úr hádegi í dag. Einn dælubíll og einn sjúkrabíll voru sendir á staðinn upp úr klukkan hálf tvö.

Samkvæmt upplýsingum fréttastofu slasaðist enginn og gekk slökkvistarf greiðlega. Ólíklegt er þó að bíllinn nýtist í fleiri verkefni þar sem glussakerfi hans eyðilagðist í brunanum. 

Fram kemur í dagbók lögreglu að eldurinn hafi kviknað inni í ruslagáminum, glussakerfið verið ónýtt og því hafi slökkvilið sagað gat á gáminn til að komast að eldinum. 


Tengdar fréttir

Eldur í rusla­bíl vestur í bæ

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu vinnur nú að því að slökkva eld í ruslabíl við Kaplaskjólsveg í vesturbæ Reykjavíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×