Sport

„Heyrðu, það þarf ein­hver að skutla syni okkar á leik­skólann“

Sindri Sverrisson skrifar
Tvíburarnir Daníel Þór og Patrick Örn Hansen, og Sólveig Heiða Foss eiginkona Patricks voru glaðbeitt í viðtali fyrir keppni.
Tvíburarnir Daníel Þór og Patrick Örn Hansen, og Sólveig Heiða Foss eiginkona Patricks voru glaðbeitt í viðtali fyrir keppni. Vísir

Tvíburarnir Daníel Þór og Patrick Örn Hansen, og Sólveig Heiða Foss eiginkona Patricks, hafa öðlast ákveðna reynslu af bakgarðshlaupi og ætla að taka keppnina fastari tökum í ár. Þau keppa í Bakgarðshlaupi Náttúruhlaupa í Öskjuhlíð um helgina.

„Ég vona bara að við segjum á sunnudagskvöldið: Heyrðu, það þarf einhver að skutla syni okkar á leikskólann. Við erum enn hlaupandi,“ segir Patrick hlæjandi í viðtali við Garp Elísabetarson fyrir keppnina sem hefst nú í morgunsárið, klukkan 9 í Öskjuhlíð.

Viðtalið má sjá hér að neðan en að vanda er fylgst með keppninni frá upphafi til enda hér á Vísi.

Klippa: Tvíburarnir og Sólveig betur undirbúin í ár

Bakgarðshlaup snýst um að hlaupa 6,7 kílómetra hring á hverjum klukkutíma, eins lengi og fólk getur, og hefur Daníel mest náð að hlaupa 15 hringi en hjónin Patrick og Sólveig fóru 17 hringi þegar þau kepptu í blíðviðri í Heiðmörk síðasta haust.

„Þetta er ekki bara það að hlaupa í hringi. Þetta snýst um félagsskapinn í kringum þetta. Þetta er geggjað. Maður getur eiginlega ekkert útskýrt þetta fyrr en maður hefur prófað þetta sjálfur,“ segir Patrick og Sólveig tekur undir:

„Þú ert að kynnast svo mikið af fólki, ná að spjalla mikið, og það er svo skemmtilegt. Þetta er í fyrsta sinn sem ég get „actually“ verið með honum í keppnishlaupi, því annars er hann alltaf lengst á undan mér.“

Með fólk til að hjálpa sér í sokkana

Það gagnast nefnilega ekkert að geta hlaupið mikið hraðar en aðrir í bakgarðshlaupi. Íþróttin snýst um að endast lengur en aðrir.

Daníel var fyrstur þeirra þriggja til að prófa bakgarðshlaup en nú vita þau öll út í hvað þau eru að fara:

„Núna erum við loksins komin með þetta. Þetta verður svolítið skipulagt í ár,“ sagði Patrick.

„Við verðum með fólk til að hjálpa okkur. Við vorum ekki með neitt þannig í fyrra,“ sagði Sólveig og Patrick bætti við:

„Maður verður svo steiktur eftir sautján hringi. Það er fínt að fá einhvern til að klæða mann í sokkana.“

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×