Innlent

Þor­steinn Vil­hjálms­son er látinn

Atli Ísleifsson skrifar
Þorsteinn Vilhjálmsson gerði sér far um að kynna eðlisfræði og önnur vísindi fyrir almenningi.
Þorsteinn Vilhjálmsson gerði sér far um að kynna eðlisfræði og önnur vísindi fyrir almenningi.

Þorsteinn Vilhjálmsson, prófessor emeritus við Háskóla Íslands í eðlisfræði, er látinn, 84 ára að aldri. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi síðastliðinn laugardag.

Greint er frá andlátinu í Morgunblaðinu í dag.

Á vef Vísindavefs Háskóla Íslands er fjallað um rannsóknir Þorsteins og segir að hann hafi sérstaklega stundað rannsóknir og ritstörf um sögu eðlisvísinda á nýöld og um sögu stjörnufræði, tímatals og siglingakunnáttu á Norðurlöndum á miðöldum. Meðal helstu ritverka eru Heimsmynd á hverfanda hveli I-II frá 1986-1987 og Einstein, eindir og afstæði frá 2015 sem Þorsteinn ritstýrði og samdi að hluta.

Þorsteinn fæddist árið 1940 og lauk stúdentsprófi frá MR 1960 og meistaraprófi í öreindafræði árið 1967 frá Bohr-stofnuninni í Kaupmannahöfn. Hann starfaði fyrst í tvö ár við norrænu rannsóknastofnunina Nordita, sem þá var í Kaupmannahöfn. Hann réðst til starfa við Raunvísindastofnun árið 1967 og við Raunvísindadeild tveimur árum síðar,“ segir á Vísindavefnum.

Varð prófessor 1989

Fram kemur að Þorsteinn hafi orðið prófessor 1989 og verið forseti deildarinnar frá 1995 til 1997. Auk eðlisfræðinnar hafi hann hafið kennslu í sögu og heimspeki vísinda um 1980. Þorsteinn hafði áhuga á tilhögun háskólakennslu og var formaður kennslumálanefndar Háskóla Íslands 1985 til 1992. Hann fór svo á eftirlaun 2010 en stundaði þó áfram rannsóknir og ritstörf.

Þorsteinn gerði sér far um að kynna eðlisfræði og önnur vísindi fyrir almenningi, hélt erindi af því tagi, skrifaði greinar og samdi bækur eða ritstýrði.

„Hann var aðalritstjóri Orðaskrár Eðlisfræðifélagsins sem kom út árið 1996. Hann vann að stofnun Vísindavefsins árið 2000 og var aðalritstjóri hans 2000-2010. Árið 2005 fékk Þorsteinn sérstaka viðurkenningu menntamálaráðuneytisins fyrir störf sín að vísindamiðlun og var síðan tilnefndur til Descartes-verðlauna Evrópusambandsins. Þorsteinn hlaut riddarakross fálkaorðunnar árið 2011 „fyrir framlag til vísinda, kennslu og miðlunar fræðilegrar þekkingar til almennings,“ segir á Vísindavefnum.

Um rannsóknir Þorsteins á vísindum og fræðum norrænna miðalda segir að þær hafi beinst bæði að því að greina norrænar frumheimildir, rekja uppruna þeirra þegar hafi átt við og að átta sig á því sem menn hafi líklega ráðið af umhverfinu með beinum athugunum og reynslu.

Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Þor­steins er Sigrún Júlí­us­dótt­ir, fædd 1944. Son­ur þeirra er Viðar, fæddur 1979. Áður var Þor­steinn gift­ur Ingi­björgu Björns­dótt­ur, fædd 1940, og eru börn þeirra Vil­hjálm­ur, fæddur 1965, Björn, fæddur 1967, og Þór­dís Katrín, fædd 1971. Son­ur Sigrún­ar og upp­eld­is­son­ur Þor­steins er Orri Vé­steins­son, fæddur 1967. Barna­börn­in eru tólf og langafa­börn­in tvö.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×