

Ferðalög
Greinar um ferðalög, ferðasögur og frábæra staði til að heimsækja.

Play flýgur til Króatíu
Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á áætlunarferðum til strandborgarinnar Split í Króatíu. Fyrsta flug Play til Split verður 28. maí en til stendur að fljúga þangað einu sinni í viku á þriðjudögum yfir sumarmánuðina.

Ferðalag til Íslands varð kveikjan að ævintýrinu
Hin 28 ára gamla Gabby Beckford er bandarískur áhrifavaldur sem heldur úti afar vinsælum aðgangi á TikTok, Instagram og Youtube. Þar deilir hún myndefni úr ferðalögum sínum víða um heiminn. Með mikilli vinnu hefur henni tekist að gera ferðalögin að aðalstarfi sínu en á seinasta ári þénaði hún hátt í fjörtíu milljónir íslenskra króna í gegnum samstarf við fyrirtæki og ýmislegt fleira.

Bjöggi og Kristín með leikarahjónunum í draumaferð
Leikarahjónin Gísli Örn Garðarsson og Nína Dögg Filippusdóttir fóru í sannkallaða ævintýraferð um Suður-Ameríku ásamt athafnamanninum Björgólfi Thor Björgólfssyni, Kristínu Ólafsdóttur og börnum þeirra.

„Computer says no“ hjá Play vegna ónýts farangurs
„Mér finnast þau bara alveg ömurleg,“ segir Kristján Sævald Pétursson um viðbrögð Play en hann varð fyrir því á dögunum að taskan hans eyðilagðist í flugi með flugfélaginu.

Fordæmir viðbrögð Play eftir að taska gjöreyðilagðist í flugi
„Við komuna á Kastrup fór ég eins og venja er að ná í töskuna mína en í stað þess að fá hana til baka eins og venjulega þá kom taskan til mín gjörsamlega í henglum brotin á alla kanta og hékk bókstaflega saman á lyginni einni saman.“

Hver er vinsælasta jólagjöfin?
Samverustund hefur verið valin jólagjöf ársins samkvæmt könnun Rannsóknarseturs verslunarinnar. Valið snýst því ekki lengur um mjúka eða harða pakka, heldur er það samvera með fólkinu okkar sem hefur vinningin.

Þau komu til Íslands 2023
Hópur svokallaðra Íslandsvina stækkaði umtalsvert á árinu sem er að líða. Vegna fjölda funda sem fóru fram hér á landi bættust erlendir stjórnmálaleiðtogar í umræddan hóp. Þá tróð heimsfrægt tónlistarfólk upp á Íslandi á árinu. Aðrir voru komnir á klakann í öðrum erindagjörðum, sumir voru einfaldlega í fríi.

Flugumferðarstjórar bjóði upp á gula viðvörun
Forstjóri Icelandair líkir verkfallsaðgerðum flugumferðarstjóra við óveður sem olli félaginu um eins milljarðs króna tjóni fyrir sléttu ári. Aðgerðirnar valdi félaginu miklu tjóni en bitni fyrst og fremst á fólki sem stefnir á ferðalög í kringum hátíðirnar.

Vann á Íslandi í hálft ár og náði að safna fyrir sex mánaða ferðalagi
Dawid Siódmak er tæplega þrítugur Pólverji sem lifir nokkuð óhefðbundnum lífsstíl. Hann og unnusta hans vinna sex mánuði á ári, lifa mjög spart og safna pening. Hinn helminginn á árinu nýta þau í ferðalög víðsvegar um heiminn þar sem þau lifa á sparifénu. Hafa þau meðal annars heimsótt Víetnam, Kambódíu, Marokkó, Mexíkó og Spán. Undanfarna sex mánuði þau dvalið og unnið á gistiheimili á Íslandi og safnað fyrir næsta ferðlagi.

Ólíklegt að allir komist heim fyrir jól
Icelandair segir það ólíklegt að allir farþegar komist á áfangastað fyrir jól að öllu óbreyttu. Er það vegna verkfalls flugumferðastjóra sem hefur valdið umtalsverðri truflun og töfum á flugáætlun flugfélagsins.

Ævintýrið á Spáni breyttist í martröð
Fjórir mánuðir eru liðnir síðan María Gomez hélt til Spánar í það sem hún hélt að yrði aðeins nokkurra vikna dvöl. Hún keypti ættaróðal látinnar frænku og huggðist gera upp, en óvæntar uppákomur settu strik í reikninginn. Þrátt fyrir mótlæti segist María nú hafa lært að elska hægaganginn á Spáni sem hún þoldi ekki í upphafi.

Vinnur þú 500.000 kr. gjafabréf út í heim?
Hvernig á að velja jólagjafir? Þessi árlegu heilabrot eru í fullum gangi á heimilum um allt land. Öll langar okkur að gefa gjafir sem hitta í mark. Eitthvað sem viðtakandinn elskar að fá og nýtur í botn. En hvað á það að vera? Það er stóra aðventuspurningin.

Víðtæk lokun hindrar för um stóran hluta Reykjanesskaga
Akstursbann það sem Almannavarnir tilkynntu um á föstudagskvöld á öllum leiðum til Grindavíkur er enn í gildi. Svo víðtæk er lokunin að hún bannar för ökutækja um stóran hluta Reykjanesskagans.

Toppar ekkert að hlaupa fram af fjalli
Fjörkálfarnir hjá ævintýrafyrirtækinu True Adventure segja svifvængjaflug núvitund á hæsta stigi. Ofskammtur af adrenalíni geti sannarlega fylgt augnablikinu þegar fólk hendir sér fram af brúninni en tilfinningin sem á eftir komi sé engu lík.

Sváfu undir berum himni umkringdar villihundum
Þorbjörg Þorvaldsdóttir og Silja Ýr Leifsdóttir lentu í heldur óvenjulegri lífsreynslu þegar þær héldu í heimsreisuferð fyrir nokkru síðan.

„Nýr leikskóli í nýju landi“
Skúli Mogensen, athafnamaður og unnusta hans Gríma Björg Thorarensen innanhúshönnuður eru stödd á Balí þar sem synir þeirra eru byrjaðir í leikskóla.

Ekkert skutl upp að dyrum í Keflavík í næstu viku
Ekki verður hægt að keyra flugfarþega á leið úr landi um svokallaða brottfararrennu fyrir utan Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli í næstu viku. Framkvæmdir munu þar hefjast á mánudag, 6. nóvember, og er reiknað með að þær standi fram á sunnudaginn 12. nóvember.

Fyrsta flug easyJet til Akureyrar
Breska flugfélagið easyJet hóf í morgun beint áætlunarflug milli Akureyrarflugvallar og Gatwick-flugvallar í London. Fyrsta vél félagsins lenti á Akureyrarflugvelli klukkan 10:40 í dag við hátíðlega athöfn þar sem fulltrúar úr ferðaþjónustu, sveitarfélögum og ríki komu saman og fögnuðu þessum mikilvæga áfanga.

Ætlar til Indónesíu að leita föður síns án nokkurra vísbendinga
Óðinn Eddy Viðarsson, 43 ára Akureyringur, ætlar sér að fara til Indónesíu til að leita að blóðföður sínum og vill fá með sér tökumann til að fara með sér á ferðalag til að kvikmynda ferðalag sitt og leitina að föðurnum.

Margoft verið nálægt því að keyra sig í þrot
Katrín Amni Friðriksdóttir henti lífi sínu upp í loft í lok sumars þegar hún sagði skilið við íslenska streituvalda og flutti með dætur sínar tvær til Ítalíu.

Fimmtán börn og fjölskyldur fengu ferðastyrk Vildarbarna
Fimmtán börnum og fjölskyldum þeirra var afhentur ferðastyrkur úr sjóði Vildarbarna Icelandair í dag. Markmið sjóðsins er að gefa langveikum börnum eða börnum sem búa við erfið skilyrði tækifæri til þess að fara í draumaferð til útlanda.

Átta ára búin að safna fyrir fjölskylduferð til Parísar með kleinusölu
Átta ára gömul Kópavogsmær hefur síðustu mánuði mætt samviskusamlega í hverri viku til ömmu sinnar og bakað kíló af kleinum. Kleinurnar hefur hún svo selt, en fyrir ágóðann hyggst hún bjóða fjölskyldu sinni til Parísar.

Með alla ferðina í hendi þér - frá hugmynd til heimkomu
Einfaldaðu ferðalagið með Icelandair appinu.

Nú hægt að sækja um vegabréf á netinu
Forsjáraðilar þurfa ekki lengur að mæta báðir til sýslumanns til að sækja um vegabréf fyrir börn sín. Vegabréfsumsóknir og greiðsla fyrir þau eru nú á netinu. Eftir að umsókn er lokið er svo hægt að bóka tíma í myndatöku, eða mæta.

Upplifðu skíðagönguævintýri og dekur á Siglufirði
Skíðaganga nýtur vaxandi vinsælda hér á landi og má segja að íþróttin sé ein vinsælasta vetraríþrótt Íslendinga.

Ný flugbraut kallaði á stærstu sprengingu í sögu Grænlands
Gerð nýs aðalflugvallar fyrir Suður-Grænland virðist loksins komin á beinu brautina eftir langvarandi óvissu. Við flugbrautargerðina var hleypt af stærstu sprengingu í sögu Grænlands.

Fuerteventura komin á fluglista PLAY
Ómótstæðileg náttúrufegurð, gylltar strendur, kristaltær sjór og botnlaust úrval af útivist og afþreyingu gera eyjuna Fuerteventura að fullkomnum áfangastað fyrir þau sem þyrstir í sólarfrí.PLAY flýgur nú til þessarar sólarperlu.

Við látum drauma þína rætast hjá Úrval Útsýn
Úrval Útsýn býður upp á fjölbreyttar ferðir fyrir hópa og einstaklinga og framundan eru spennandi ferðir í haust, vetur og fram á næsta ár.

Hefur gengið 3200 sinnum á Heimaklett á 10 árum
Göngugarpurinn Svavar Steingrímsson segist hafa labbað um 3200 sinnum á Heimaklett síðan árið 2013. Hann hefur nánast farið upp fjallið á hverjum degi síðustu tíu ár. Það sem gerir þetta afrek enn merkilegra er að Svavar er 87 ára gamall.

Ævintýraleg Íslandsferð Chris Hemsworth
Ástralski stórleikarinn Chris Hemsworth og dóttir hans, India Rose, áttu ævintýralega daga á Íslandi síðastliðna viku þar sem ísklifur á Sólheimajökli, útreiðar og laxveiðar komu við sögu. Feðginin kvöddu klakann í gær þegar þau fóru með vél Icelandair til Oslóar.