Enn fjölgar hneykslismálum í sex ára sögu Flokks fólksins Kjörnir fulltrúar Flokks fólksins hafa ýmist neyðst til að segja af sér eða verið hvattir til þess í tengslum við erfið mál sem dunið hafa á flokknum á til þess að gera stuttum líftíma hans. Nú síðast sökuðu þrjár konur innan flokksins samflokksmenn sína um lítilsvirðandi framkomu í sinn garð. Innlent 15. september 2022 07:01
Fetar í fótspor átrúnaðargoðsins Thatcher Liz Truss hefur verið kjörin nýr formaður breska Íhaldsflokksins og verður þar með næsti forsætisráðherra landsins. Stjórnmálaferil hennar er ekki hægt að kalla glæstan en með mikilli þrautseigju er hún kominn á þann stað að hún fetar nú í fótspor átrúnaðargoðs síns, Margaret Thatcher. Erlent 5. september 2022 14:01
Allt sem þú þarft vita um sænsku þingkosningarnar Níu dagar eru nú þar til að Svíar ganga að kjörborðinu en þingkosningar fara fram í landinu sunnudaginn 11. september. Spennan er mikil og ekki víst hvernig mál muni þróast þegar búið er að telja öll atkvæði. Þegar kemur að myndun næstu stjórnar hefur sjónum sérstaklega verið beint að Miðflokknum og svo Svíþjóðardemókrötum sem eru komnir inn í hlýjuna á hægri vængnum eftir að hafa verið einangraðir á sænska þinginu allt frá því að þeir náðu fyrst inn mönnum árið 2010. Erlent 2. september 2022 09:00
Er rauða flóðbylgjan að verða að smá skvettu? Svo virðist sem að sú „rauða flóðbylgja“ sem spáð hefur verið að skelli á Bandaríkjunum í þingkosningunum í nóvember, ætli ekki að raungerast. Undanfarna mánuði hafa Repúblikanar virst í góðri stöðu til að ná völdum í fulltrúadeild Bandaríkjaþings og mögulega öldungadeildinni einnig. Erlent 24. ágúst 2022 22:31
Ætla að grafa hægt og rólega undan Rússum Dregið hefur úr stórskotaliðsárásum Rússa í suðurhluta Úkraínu samhliða auknum árásum Úkraínumanna á skotfærageymslur, birgðastöðvar, brýr og aðra innviði á Krímskaga og í suðurhluta Kherson. Her Úkraínu virðist hafa breytt um stefnu og vinnur nú með langvarandi átök í huga. Erlent 19. ágúst 2022 21:47
Tangarhald Trumps á flokknum aldrei þéttara Ef það er einn lærdómur sem draga má af úrslitum í forvali Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum á undanförnum dögum, er það að Donald Trump ræður þar ríkjum. Honum er að takast að bola öllum helstu andstæðingum úr flokknum. Frambjóðendur flokksins til áhrifamikilla embætta víðs vegar um Bandaríkin hafa tekið undir lygar Trumps um að kosningasvindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum 2020. Erlent 19. ágúst 2022 08:01
„Byssukúlan“ sem var þrjátíu og þrjú ár á leiðinni Rithöfundurinn Salman Rushdie hefur um árabil þurft að fara huldu höfði vegna morðhótana. Undanfarin ár hafði hann þó farið að lifa eðlilegu lífi á nýjan leik en hann var stunginn margsinnis á sviði í New York-ríki í Bandaríkjunum í gær. Erlent 13. ágúst 2022 18:00
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Útlit fyrir harðari átök í suðri Frá því Rússar lögðu undir sig síðustu borgir Luhansk-héraðs og lýstu yfir að hlé yrði lagt á frekari stórsóknir hefur lítil hreyfing orðið á víglínunum í Úkraínu. Sóknir Rússa eru þó byrjaðar á nýjan leik en Úkraínumenn segja varnir þeirra halda enn. Erlent 19. júlí 2022 22:52
Íhaldsöfl við völd í Hæstarétti Bandaríkjanna Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur á síðustu vikum tekið afdrifaríkar ákvarðanir sem snerta bæði umhverfisstefnu landsins og mannréttindi. Lektor við lagadeild Háskóla Íslands segist eiga von á því að rétturinn haldi áfram á braut íhaldssemi og segir gjánna milli íhaldssamra og frjálslyndra dómara réttarins aldrei hafa verið meiri. Erlent 9. júlí 2022 07:20
Dregur brátt til tíðinda í stríði repúblikana gegn loftslagsaðgerðum Niðurstöðu er að vænta í máli fyrir Hæstirétti Bandaríkjanna sem gæti takmarkað verulega getu alríkisstjórnarinnar til skikka orkuver til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Málið er sagt fyrsta orrustan í stærra stríði repúblikana gegn hvers kyns loftslagsaðgerðum og reglum stjórnvalda. Erlent 21. júní 2022 07:01
Alvarlegir gallar á rússneska hernum Rússneski herinn er ekki uppbyggður fyrir þau verkefni sem hann átti að leysa af hólmi í Úkraínu. Frá upphafi stríðsins hefur herinn átt í basli og frammistaða hans verið langt undir væntingunum, ef svo má að orði komast. Erlent 2. júní 2022 19:32
Vilja selja löglegt kynlíf og ganga í stéttarfélag Þrátt fyrir að framleiðsla og dreifing á klámi sé bönnuð hér á landi hefur framboð á íslensku klámi stóraukist með tilkomu Onlyfans. Á sama tíma eru dæmi um að framleiðendur efnisins leiti til Stígamóta sem flokka klámið ásamt vændi sem kynferðisofbeldi. Innlent 26. apríl 2022 07:17
Hrakfallasaga Íslandsbanka frá hruni til útboðs Gríðarleg gagnrýni hefur komið fram á sölu ríkisins á Íslandsbanka til svokallaðra hæfra fjárfesta í síðasta mánuði. En um hvað er deilt og hvað gerðist? Innlent 24. apríl 2022 08:00
Formaður Framsóknar vankaður eftir svall á Búnaðarþingi Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, hefur hingað til verið talinn einhver traustasti stjórnmálamaður landsins. Með báða fætur fast á jörðu. En um nótt á Búnaðarþingi á dögunum felldi hann grímu geðfelldninnar með umdeildum ummælum og stendur eftir vankaður pólitískt. Innlent 6. apríl 2022 13:00
Úr leyniþjónustunni í forsetahöllina Á gamlársdag árið 1999, átta árum eftir fall Sovétríkjanna, tilkynnti þáverandi forseti rússneska sambandsríkisins, Boris Jeltsín, að hann hygðist skyndilega stíga til hliðar. Eftirmaður hans birtist í sjónvarpinu rétt fyrir miðnætti til að ávarpa þjóð sína en hann hafði fæstum verið kunnur þar til fimm mánuðum áður, í ágúst 1999, þegar hann hafði verið skipaður forsætisráðherra af Jeltsín. Erlent 16. mars 2022 09:01
Hver er Vólódímír Selenskí? Vólódímír Selenskí forseti Úkraínu hefur verið til mikillar umræðu undanfarna daga. Frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst hefur Selenskí haldið þjóð sinni upplýstri með reglulegum færslum á samfélagsmiðlum og ákveðið að halda kyrru fyrir í heimalandinu, þrátt fyrir boð um aðstoð til flótta. Erlent 1. mars 2022 11:10
Fjögurra daga stríð en átta ára stríðsástand Ágreining Rússa og Úkraínumanna má rekja allt aftur til falls Sovétríkjanna árið 1991 þegar Úkraína lýsti yfir sjálfstæði. Erlent 27. febrúar 2022 21:01
Einræðisherrar, auðjöfrar og fíkniefnabarónar meðal viðskiptavina Credit Suisse Meira en sex þúsund þeirra þrjátíu þúsund sem eiga í viðskiptum við svissneska bankann Credit Suisse eru frá aðeins fjórum ríkjum: Venesúela, Egyptalandi, Úkraínu og Taílandi. Öll eiga þau það sameiginlegt að hafa strítt við mikinn pólitískan óstöðugleika. Erlent 21. febrúar 2022 15:01
Skæruliðadeildin sem nú vill ná vopnum sínum Fjórir íslenskir blaðamenn hafa verið boðaðir til yfirheyrslu af lögreglu vegna umfjöllunar þeirra um svokallaða „skæruliðadeild“ Samherja. En hver er þessi deild, hvað gerði hún og hvers vegna er málið nú til rannsóknar hjá lögreglu? Innlent 15. febrúar 2022 15:31
Franskir frambjóðendur í vanda með að safna nægum fjölda undirskrifta Nýjar reglur gera það að verkum að Marine Le Pen og fleiri popúlistar sem tilkynnt hafa um framboð í frönsku forsetakosningnum í apríl næstkomandi eiga nú í mestu vandræðum með að tryggja sér nægilegan fjölda undirskrifta til að fá að bjóða sig fram. Erlent 12. febrúar 2022 09:00
Hvernig árásin fór fram: Vissu ekki að leiðtogi ISIS byggi fyrir ofan þau Árás bandarískra sérsveitarmanna á hús í Idlib-héraði í Sýrlandi á miðvikudagskvöld, þar sem Abu Ibrahim al-Hashimi al-Qurayshi, leiðtogi Íslamska ríkisins dó, hafði verið skipulögð yfir nokkurra mánaða skeið. Fimmtíu hermenn komu að árásinni og voru fluttir á svæðið með þyrlum. Erlent 5. febrúar 2022 07:00
Rússíbanareið Rogans: Úr bardagahringnum í eitt vinsælasta hlaðvarp heims Síðastliðna viku hefur Bandaríkjamaðurinn Joe Rogan verið milli tannanna á fólki eftir að tónlistarmaðurinn Neil Young auk annarra ákváðu að láta fjarlægja tónlist sína af Spotify. Ástæðan er falsupplýsingar um bóluefni gegn Covid-19 í hlaðvarpi Rogan, The Joe Rogan Experience. Erlent 2. febrúar 2022 07:00
Krúnudjásnin í hendur hugsjónalausra stórkapítalista með brú út í heim Eins og að selja kvótann úr byggðarlaginu. Tækifæri til að auka hlut íslenskrar menningar á heimssviðinu og ávísun á aukna fjárfestingu og tekjur fyrir listamenn. Skýrt dæmi um gjörsamlega brotið viðskiptafyrirkomulag tónlistarbransans. Viðskipti innlent 30. janúar 2022 09:31
Hrapaði af stjörnuhimninum og gæti átt yfir höfði sér tuttugu ára fangelsi Frumkvöðullinn Elizabeth Holmes var í vikunni sakfelld fyrir fjársvik en hún var lengi álitin ein skærasta stjarna Sílíkondals í Bandaríkjunum. Erlent 9. janúar 2022 22:20
Dagurinn sem fimm þjóðþekktir karlmenn stigu til hliðar Hún var hröð atburðarrásin í dag þegar fimm þjóðþekktir karlmenn ýmist létu af störfum eða fóru í leyfi í tengslum við ásakanir ungrar konu um að fjórir þeirra hafi brotið á henni á meðan hún átti í ástarsambandi við vin þeirra. Innlent 6. janúar 2022 23:30
Ár frá árásinni á þinghúsið: Tak Trumps á Repúblikanaflokknum hefur aldrei verið þéttara Ár er liðið frá því að stór hópur stuðningsmanna Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, ruddi sér leið í gegnum tálma lögreglunnar og reyndi að koma í veg fyrir formlega staðfestingu úrslita forsetakosninganna 2020. Kosninga sem Trump tapaði gegn Joe Biden. Erlent 6. janúar 2022 09:11
Annað hvort dreifum við okkur um Vetrarbrautina eða deyjum út Mannkynið er dauðadæmt, dreifi það sér ekki um sólkerfið og jafnvel lengra en það. Án þess að mannkynið verði tegund margra reikistjarna er tölfræðilega óhjákvæmilegt að það muni þurrkast út. Hvort sem það gerist á næstu áratugum eða jafnvel milljörðum ára, þá munum við deyja og jörðin þurrkast út. Erlent 11. desember 2021 08:01
Fimmtán vikna viðmiðið fær líklega að standa en spurning um Roe gegn Wade Allt útlit er fyrir að Hæstiréttur Bandaríkjanna dæmi yfirvöldum í Mississippi í vil og láti löggjöf sem bannar þungunarrof eftir 15. viku meðgöngu standa óhreyfða. Því er þó ósvarað hvort dómstóllinn gengur svo langt að láta það í hendur einstakra ríkja að ákvarða alfarið hvernig lögum um þungunarrof er háttað. Erlent 2. desember 2021 20:03
Morðingjarnir hefðu líklega aldrei verið handteknir án myndbandsins Feðgarnir Greg og Travis McMichael og nágranni þeirra William Bryan voru í gær dæmdir sekir um morð. Það er fyrir að hafa elt og setið fyrir hinum 25 ára gamla Ahmaud Arbery í febrúar í fyrra. Erlent 25. nóvember 2021 13:00
Má kjósa, keyra og eignast barn í fyrsta sinn í fjórtán ár Tónlistargoðsögnin Britney Spears fagnaði sigri í sjálfræðisbaráttu sinni um helgina með því að drekka sitt fyrsta kampavínsglas. Undanfarin tæp fjórtán ár hefur Britney nefnilega ekki mátt borða, drekka eða gera nokkuð án þess að fá leyfi frá föður sínum. Lífið 17. nóvember 2021 09:01