Dularfull fjármögnun dýrasta húss á Íslandi Halldór Kristmannsson hefur sett hús sitt við Sunnuflöt 48 í Garðabæ á sölu. Höll. Ef Halldór fær viðunandi tilboð má búast við því að þar fari dýrasta hús Íslandssögunnar. Enda um glæsilega lúxusvillu að ræða sem vart á sér hliðstæðu hér á landi. Viðskipti innlent 16. nóvember 2021 07:57
Vinnan og félagslíf færð í sýndarheima næstu kynslóðar internetsins Í náinni framtíð verður fólki mögulegt að heimsækja vini sína, horfa með þeim á kvikmynd eða fara á tónleika, án þess að fara úr húsi eða standa upp úr sófanum. Einnig verður hægt að fara í göngutúra um fornar borgir og jafnvel aðrar plánetur, skoða söfn eða versla í stafrænum verslunarrýmum þar sem gervigreind sinnir afgreiðslustörfum. Viðskipti erlent 30. október 2021 09:01
Hver er þessi Olaf Scholz? Þjóðverjar munu brátt sjá nýjan mann í embætti kanslara í stað Angelu Merkel sem stýrt hefur landinu frá árinu 2005. Eftir kosningar á sunnudag má telja líklegast að það verði Olaf Scholz fjármálaráðherra sem var kanslaraefni Jafnaðarmannaflokksins (SPD) í nýafstöðnum kosningum. Erlent 28. september 2021 07:01
Fremur leiðinleg kosningabarátta og litlausir frambjóðendur Innan við tvær vikur eru nú til kosninga til sambandsþings Þýskalands sem munu leiða í ljós hver verður arftaki Angelu Merkel sem mun senn láta af embætti kanslara eftir um sextán ár í starfi. Stjórnmálafræðiprófessor segir að mörgum þyki kosningabaráttan hafa verið fremur leiðinleg og marga helstu frambjóðendur vera litlausa. Erlent 15. september 2021 08:20
Telja rétt kvenna til þungunarrofs afnuminn í skjóli nætur Ákvörðun íhaldssamra dómara við Hæstarétt Bandaríkjanna um að fella ekki úr gildi lög í Texas sem banna þungunarrof nær undantekningarlaust þrátt fyrir að þau virðist stangast á við dómafordæmi sætir harðri gagnrýni. Dómararnir eru sakaðir um að afnema grundvallarrétt kvenna í skjóli nætur. Erlent 3. september 2021 07:01
Hetjur innan vallar en víða pottur brotinn utan vallar Þeir sameinuðu íslensku þjóðina með góðu gengi sem náði hápunkti á Evrópumótinu í Frakklandi 2016 og vöktu athygli um allan heim fyrir árangur sinn. Á þeim fimm árum sem hafa síðan liðið hefur hver hrollvekjusagan af landsliðsmönnum Íslands í knattspyrnu farið sem eldur í sinu um samfélagið, ýmist í formi óstaðfestra eða staðfestra sagna. Sport 28. ágúst 2021 15:39
„Íslenska ákvæðið“ fríaði Ísland ábyrgð á tæplega árslosun Sérstakt ákvæði sem íslensk stjórnvöld komu inn í Kýótóbókunina á sínum tíma kom Íslandi undan ábyrgð á hátt í árslosun á gróðurhúsalofttegundum frá stóriðju. Þrátt fyrir að vera laus við ábyrgð á stóriðju stóð Ísland ekki við skuldbindingar sínar. Innlent 28. ágúst 2021 10:34
Bankarnir vildu ekki lausnina sem átti að sefa áhyggjur Seðlabankans Reiknistofa bankanna stöðvaði þróun greiðslulausnar sem átti að gera fólki kleift að greiða verslunum og öðrum fyrirtækjum án milligöngu kortafyrirtækja. Viðskiptabankarnir höfðu þá sýnt því lítinn áhuga að innleiða kerfið fyrir sína viðskiptavini. Viðskipti innlent 20. ágúst 2021 13:32
Heilagir nemendur í þrjátíu ár Mikil ringulreið hefur ríkt í Afganistan undanfarna daga eftir að hersveitir Talibana náðu yfirráðum á höfuðborginni Kabúl og í raun landinu öllu. Þetta er fyrsta sinn í tuttugu ár sem Talibanar hafa haft raunveruleg völd í Afganistan eftir að þeir voru hraktir á brott af her Bandaríkjanna og bandamanna þeirra árið 2001. Erlent 18. ágúst 2021 06:00
Fjöldahandtökur, ofbeldi og landflótti Í dag er liðið ár síðan umdeildar forsetakosningar í Hvíta-Rússlandi fóru fram. Síðan þá hefur mikil stjórnmálaóreiða ríkt í landinu með fjöldahandtökunum, landflótta og hremmingum. Erlent 9. ágúst 2021 10:00
Sest í helgan stein eftir áttundu Ólympíuleikana Fimleikakonan Oksana Chusovitina er sest í helgan stein eftir nær fjögurra áratuga feril. Chusovitina keppti á sínum áttundu og síðustu Ólympíuleikum, í Tókýó í Japan, en hún hefur keppt á hverjum einustu leikum frá árinu 1992 þegar leikarnir fóru fram í Barcelona. Sport 28. júlí 2021 20:58
Þrír þéttir karlar auk Bryndísar verja sín vígi í Kraganum Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, sem jafnan er kallað Kraginn, fyrir alþingiskosningar 2021 fer fram nú um helgina. Innlent 10. júní 2021 13:24
Afsökunarbeiðni á leikskólaplani Samherji baðst afsökunar í vikunni. Þeirri afsökunarbeiðni hefur verið tekið fálega ef ekki beinlínis illa. Og reyndar á það við um þær afsökunarbeiðnir sem fallið hafa á árinu. Innlent 6. júní 2021 07:00
Vona að lyf úr ofskynjunarsveppum komist á markað: „Ein meðferð eins og tíu ára sálfræðimeðferð“ Sérfræðingar segja byltingu framundan í meðferð við þunglyndi, kvíða og fíknisjúkdómum með lyfi sem unnið er úr ofskynjunarsveppum. Þau muni jafnvel leysa af hólmi stóran hluta kvíða- og þunglyndislyfja sem 13% landsmanna nota. Formaður Geðlæknafélags Íslands vonar að lyfin komist á markað en það þurfi fleiri rannsóknir. Innlent 1. júní 2021 21:56
Undirróður gegn bólusetningum lætur enn á sér kræla Kórónuveirufaraldurinn og kapphlaupið við að bólusetja heimsbyggðina hefur hleypt auknu lífi í hreyfingu andstæðinga bólusetninga í heiminum. Grunnstoðir hreyfingarinnar hvíla enn að miklu leyti á löngu hröktum fullyrðingum bresks læknis sem var sviptur lækningaleyfi fyrir blekkingar sínar. Innlent 15. maí 2021 09:01
Lokavitni, myndband og málflutningur á lokadegi Síðasti dagur aðalmeðferðar í máli ákæruvaldsins gegn Marek Moszczynski, pólskum karlmanni á sjötugsaldri, er í dag. Marek er ákærður fyrir brennu, manndráp og tilraun til manndráps. Þrír fórust í brunanum að Bræðraborgastígi 1 í fyrrasumar. Hann hefur neitað sök og hefur jafnframt verið metinn ósakhæfur. Innlent 5. maí 2021 09:01
Fögnuðu sigri gegn Covid en vöknuðu upp við vondan draum Tvö hundruð þúsund hafa nú látist af völdum kórónuveirunnar á Indlandi. Fleiri hafa einungis látist í Bandaríkjunum, Brasilíu og Mexíkó en ástandið hefur versnað hratt á Indlandi síðustu vikur. Erlent 28. apríl 2021 14:45
Fréttaskýring: Ofurdeild Evrópu Ofurdeild þetta, ofurdeild hitt. Heitasta umræðuefni dagsins er eðlilega títtnefnd ofurdeild Evrópu í knattspyrnu. Hér að neðan verður kafað ofan í hvað felst í hugmyndinni, hvernig henni verður háttað og almennt allt sem henni viðkemur. Fótbolti 19. apríl 2021 12:20
Ótrúleg slóð útsendara: Banatilræði, skemmdarverk og milliríkjadeilur Yfirvöld í Tékklandi hafa rakið stóra sprengingu í vopnageymslu í landinu árið 2014 til umdeildrar deildar rússneskrar leyniþjónustu sem hefur verið sökuð um banatilræði og skemmdarverk í Evrópu. Ráðamenn í Rússlandi segjast ætla að svara fyrir sig og reka erindreka Tékklands úr landi. Erlent 18. apríl 2021 22:00
Talibanar með pálmann í höndunum Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, opinberaði í vikunni þá ákvörðun að kalla alla hermenn Bandaríkjanna heim frá Afganistan fyrir 11. september næstkomandi. Það ætlar hann að gera án þess að setja talibönum skilyrði. Ákvörðunin gæti reynst íbúum landsins afdrifarík. Erlent 17. apríl 2021 23:01
Bóluefnið sem er aðeins gefið fólki utan áhættuhópa Fimm af hverjum milljón Bretum sem bólusettir hafa verið með bóluefni AstraZeneca eiga á hættu að fá alvarlega blóðtappa. Hlutfallið er einn af hverjum fjörutíu þúsund í Danmörku og Noregi. Sóttvarnalæknir segir aðeins einstaklingum utan áhættuhópa boðið bóluefnið sem veiti góða vörn gegn Covid-19. Innlent 16. apríl 2021 14:02
Gætu slegið nokkrar flugur í einu höggi með lægri hámarkshraða Áform borgaryfirvalda um að lækka hámarkshraða til að útrýma alvarlegum umferðarslysum gæti einnig dregið umtalsvert úr loftmengun. Hagsmunasamtök bíleigenda eru ósátt við áformin en samgönguverkfræðingur segir annað en hámarkshraða ráða meiru um ferðatíma bíla í borginni. Innlent 15. apríl 2021 14:00
Skora á Kolbein að gefast ekki upp og fara fram í Reykjavík Hólmfríður Árnadóttir, sigurvegari úr prófkjöri Vg í Suðurkjördæmi, gerir fastlega ráð fyrir því að konur skipi þrjú efstu sæti á lista Vg þar. Innlent 15. apríl 2021 13:56
Kosningar á Grænlandi: Innanflokksátök, erlendar fjárfestingar og stórveldakapphlaup Ný forysta grænlenska stjórnmálaflokksins Siumuts ákvað á síðustu stundu að skipta Kim Kielsen, fyrrverandi formanni flokksins og forsætisráðherra Grænlands, út sem fulltrúa flokksins í sjónvarpskappræðum sem fram fóru á föstudaginn dag í tengslum við þingkosningarnar sem fram fara á Grænlandi á þriðjudaginn. Erlent 5. apríl 2021 00:06
Óþefurinn frá vinnslustöðvunum aðeins peningalykt Kínverskar fiskimjölsvinnslur í Gambíu og ólöglegar veiðar stefna fiskistofnum þessa minnsta lands Afríku í stórhættu. Þetta sýnir rannsókn samtakanna Outlaw Ocean Project. Erlent 29. mars 2021 18:45
Siðareglur RÚV voru tifandi tímasprengja Ríkisútvarpið ætlar að ráðast í endurskoðun á siðareglum sínum í kjölfar dóms siðanefndar yfir Helga Seljan. Innlent 29. mars 2021 13:08
Ísland gæti notið góðs af útflutningshömlum ESB Beri nýjar útflutningshömlur Evrópusambandsins á bóluefni gegn kórónuveirunni tilætlaðan árangur gæti Ísland notið ávaxta þess. Íslensk stjórnvöld eru þó ósátt við að í reglugerð hafi EFTA-ríki eins og Ísland verið sögð falla undir mögulegar takmarkanir. Innlent 25. mars 2021 13:40
Þetta vitum við um eldgosið í Geldingadal Eldgos hófst í Geldingadal við Fagradalsfjall klukkan 20:45 í gærkvöldi. Klukkan 21:36 hringdi kona inn á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar og velti því upp hvort gos væri mögulega hafið á Reykjanesskaga. Hún taldi sig hafa séð rauðan bjarma á vefmyndavél sem hún var að fylgjast með. Innlent 20. mars 2021 03:28
Það var enginn með henni í liði Heimildarmyndin Framing Britney Spears, sem kom út í síðasta mánuði, hefur beint kastljósinu að róstusömu, og oft og tíðum harmþrungnu, lífshlaupi söngkonunnar Britney Spears, sem hefur verið undir forræði föður síns síðan árið 2008. Mánuðina á undan hafði andlegri heilsu Britney hrakað verulega – nánast í beinni útsendingu í fjölmiðlum sem fylgdu henni hvert fótmál. Lífið 14. mars 2021 20:46
Áhrifa hamfaranna á Japan gætir enn áratug síðar Fleiri en fjörutíu þúsund manns geta enn ekki snúið til síns heima vegna geislunar eftir kjarnorkuslysið í Fukushima nú þegar áratugur er liðinn frá því að sterkur jarðskjálfti og flóðbylgja gekk yfir Japan. Íbúar hamfarasvæðanna syrgja enn þúsundir ástvina sinna sem fórust. Erlent 11. mars 2021 06:15