Gleymdu að skrá eina stærstu stjörnu sína til keppni Favour Ofili er ein stærsta stjarna Nígeríumanna í frjálsum íþróttum en ekkert verður af því að hún taki þátt í 100 metra hlaupi á Ólympíuleikunum í París. Sport 1. ágúst 2024 09:02
„Fyrirgefðu, elskan mín“ Ítalski hástökkvarinn Gianmarco Tamberi átti mjög sérstakt kvöld á setningarhátíðinni á Ólympíuleikunum í París. Honum var þar sýndur mikill heiður með því að vera fánaberi Ítala en kvöldið hans endaði ekki nógu vel. Sport 29. júlí 2024 08:00
Biður eiginkonuna afsökunar á að hafa misst giftingarhringinn í Signu Gianmarco Tamberi, hástökkvari og fánaberi Ítala á Ólympíuleikunum, lenti í því óhappi á setningarathöfn leikanna í gær að missa giftingarhring sinn ofan í Signu. Erlent 27. júlí 2024 22:16
Andrea vann fimmtán hlaup á aðeins hundrað dögum Það hefur verið ekki hægt að treysta á íslenska verðið í sumar en það hefur verið nánast hægt að ganga að því vísu að íslenska hlaupakonan Andrea Kolbeinsdóttir sé að vinna hlaup einhvers staðar. Sport 26. júlí 2024 08:30
Baldvin bætti eigið Íslandsmet: „Ákveðinn múr sem mig er búið að langa að rjúfa lengi“ Baldvin Þór Magnússon bætti eigið Íslandsmet í 1500 metra hlaupi utanhúss á móti í Lundúnum í gærkvöldi og varð um leið fyrstur Íslendinga til að hlaupa vegalengdina á minna en þremur mínútum og fjörutíu sekúndum. Sport 25. júlí 2024 16:30
Biðst afsökunar á að hafa óskað nauðgaranum góðs gengis á ÓL Paula Radcliffe, fyrrverandi heimsmeistari í maraþoni, hefur beðist afsökunar á að hafa óskað dæmdum nauðgara góðs gengis á Ólympíuleikunum í París. Sport 25. júlí 2024 13:00
Erna Sóley sýndi öll fötin sem hún fékk fyrir Ólympíuleikana Erlendir keppendur á Ólympíuleikunum í París hafa verið duglegir að sýna Ólympíufatnað sinn á samfélagsmiðlum síðustu daga og okkar kona Erna Sóley Gunnarsdóttir hefur nú bæst í þann hóp. Sport 23. júlí 2024 12:01
Burstaði hlaupið en tapaði samt: Algjört klúður Breski spretthlauparinn Jake Odey-Jordan var yfirburðamaður í sínum riðli í 200 metra hlaupi á EM unglinga í Slóvakíu um helgina en endaði samt bara í fjórða sæti í hlaupinu og datt úr leik. Sport 22. júlí 2024 11:00
Ísold bætti aldursflokkametið í sjöþraut Evrópumót stúlkna átján ára og yngri í frjálsum íþróttum fer nú fram í Banská Bystrica í Slóvakíu. Ísold Sævarsdóttir bætti í dag aldursflokkamet fyrir keppendur á bilinu 16 til 17 ára. Sport 19. júlí 2024 21:45
Vann Laugavegshlaupið fjórða árið í röð Laugavegshlaupið fór fram í dag en þetta er í tuttugasta og áttunda sinn sem hlaupið er haldið. Alls tóku yfir 500 hlauparar þátt í ár. Sport 13. júlí 2024 18:30
Var fyrst í kúluvarpi til að fá pásu frá handboltanum en er nú komin á ÓL Mosfellingurinn Erna Sóley Gunnarsdóttir verður fyrsti kvenkyns kúluvarpari sem keppir fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikunum en hún er á leið til Parísar seinna í þessum mánuði. Sport 13. júlí 2024 10:00
Elísabet aðeins einu sæti frá Ólympíuleikunum: „Virkilega svekkjandi“ Sleggjukastarinn Elísabet Rut Rúnarsdóttir átti frábært tímabil en því miður hennar vegna þá endaði tímabilið í byrjun júlí en ekki á Ólympíuleikunum í París í ágúst. Sport 10. júlí 2024 07:31
Tuttugu fylgja fimm keppendum Íslands á Ólympíuleikana í París Ísland mun eiga fimm keppendur á Ólympíuleikunum í París og voru þeir ásamt fylgdarliði kynnt til leiks á sérstökum fjölmiðlafundi í gær í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Sport 9. júlí 2024 06:32
Sló heimsmet sem var sett fjórtán árum áður en hún fæddist Úkraínski hástökkvarinn Yaroslava Mahuchikh sló í dag 37 ára gamalt heimsmet í hástökki kvenna. Sport 7. júlí 2024 21:46
Fyrst kvenna og vill rjúfa múr í París: „Segja öll að þetta sé allt annað fyrirbæri“ „Mig er búið að dreyma um þetta síðan ég byrjaði í frjálsum, níu ára gömul,“ segir hin 24 ára gamla Erna Sóley Gunnarsdóttir sem í gær fékk að vita að hún væri á leið á Ólympíuleikana í París. Sport 6. júlí 2024 09:01
„Vonbrigði“ að aðeins fari fimm frá Íslandi á Ólympíuleikana Afreksstjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands segir það vonbrigði að eins og staðan sé í dag bendi allt til þess að Íslands eigi aðeins fimm fulltrúa á Ólympíuleikunum í París í sumar. Á sama tíma sér hann hins vegar endalausa möguleika í íþróttahreyfingunni hér á landi. Sport 6. júlí 2024 08:00
„Ég var án djóks skoppandi“ „Ég var að vinna í miðasölunni á Landsmóti hestamanna þegar það var hringt í mig, klukkan 10 í morgun, og ég fékk að vita að ég væri að fara á Ólympíuleikana,“ segir himinlifandi Erna Sóley Gunnarsdóttir, kúluvarpari, eftir gleðitíðindi dagsins. Sport 5. júlí 2024 19:31
Erna Sóley keppir á Ólympíuleikunum í París Erna Sóley Gunnarsdóttir, kúluvarpari, hefur fengið boð um þátttöku á Ólympíuleikunum í París í sumar en Alþjóðaólympíunefndin staðfesti svo í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands núna í morgun. Sport 5. júlí 2024 11:51
Andrea og Arnar langfyrst á Akureyri Andrea Kolbeinsdóttir úr ÍR kom fyrst kvenna í mark og setti persónulegt met á Íslandsmeistaramótinu í hálfu maraþoni á Akureyri. Arnar Pétursson varð Íslandsmeistari karla. Aðeins ein íslensk kona hefur hlaupið hálft maraþon hraðar en Andrea gerði í kvöld. Sport 4. júlí 2024 21:11
Andrea svekkir sig ekki á mannlegum mistökum Þeir hlauparar sem tóku þátt í Ármannshlaupinu í fyrradag munu ekki fá afrek sín skráð í afrekaskrá Frjálsíþróttasambands Íslands. Í tilkynningu segir að hlaupaleiðin teljist of stutt en fimmtíu og átta metra vantaði upp á metrana tíu þúsund sem hlaupararnir áttu að hlaupa. Ein þeirra sem þreytti hlaupið í fyrradag er Andrea Kolbeinsdóttir sem tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í greininni með því að koma fyrst í mark í kvennaflokki. Sport 4. júlí 2024 16:13
Fyrrum heimsmeistari skotinn til bana Lögreglan í Suður Afríku hefur staðfest að hún fann lík fyrrum hástökkvarans Jacques Freitag. Sport 4. júlí 2024 12:00
Arnar og Andrea Íslandsmeistarar í 10 km götuhlaupi Andrea Kolbeinsdóttir úr ÍR og Arnar Pétursson úr Breiðabliki tryggðu sér í gær Íslandsmeistaratitla í 10 kílómetra götuhlaupi en Íslandsmótið var haldið samhliða Ármannshlaupinu. Sport 3. júlí 2024 15:19
Enginn íslenskur frjálsíþróttamaður gerði nóg til að komast á ÓL í París Eigi Ísland að eiga keppendur í frjálsum íþróttum á Ólympíuleikunum í París þá þarf Ísland að fá sérstakt boðsæti eða að einhverjar þjóðir að afþakki sæti sín vegna meiðsla eða annarra hluta. Sport 2. júlí 2024 17:13
Fjögur mótsmet slegin og aðeins sentímetri skildi að í langstökkinu Á öðrum keppnisdegi Meistaramóts Íslands í frjálsum íþróttum voru fjögur mótsmet slegin. Keppni í langstökki kvenna var æsispennandi. Sport 30. júní 2024 13:00
Fimmfaldur Ólympíumeistari keppir ekki í París Jamaíski spretthlauparinn Elaine Thompson-Herah getur ekki bætt fleiri Ólympíuverðlaunum í glæsilegt safn sitt á leikunum í París. Sport 27. júní 2024 14:31
Tryggði sér sæti á Ólympíuleikunum hálfu ári eftir hnéaðgerð Anna Hall tryggði sér á dögunum sæti á Ólympíuleikunum sem fram fara í París síðar í sumar. Þar mun hún keppa í sjöþraut en leið hennar á leikana hefur verið þyrnum stráð. Sport 27. júní 2024 08:31
Snoop vottaði Kobe virðingu sína á hlaupabrautinni Tónlistarmaðurinn Snoop Dogg verður í París þegar Ólympíuleikarnir fara fram. Þar mun hann starfa fyrir sjónvarpsstöðina NBC sem sýnir leikina í Bandaríkjunum. Að því tilefni hljóp hinn 52 ára gamli Snoop 200 metra á dögunum. Sport 26. júní 2024 07:31
Ólympíumeistarinn datt í miðju hlaupi og kemst ekki til Parísar Ekkert verður af því að Athing Mu vinni gullverðlaun í átta hundruð metra hlaupi á öðrum Ólympíuleikunum í röð. Sport 25. júní 2024 15:47
Dró fram Yu-Gi-Oh!-spil og tryggði sig inn á Ólympíuleika Noah Lyles, ríkjandi heimsmeistari í 100 metra hlaupi karla, tryggði sig um helgina inn á Ólympíuleikana sem fram fara í París síðar í sumar. Virðist lukkugripur hans hafa hjálpað honum að þessu sinni. Sport 24. júní 2024 12:31
Settu báðar mótsmet á leiðinni að gullinu á Gíbraltar Íslenska frjálsíþróttafólkið vann sjö gullverðlaun á Smáþjóðameistaramótinu á Gíbraltar í gær. Sport 23. júní 2024 09:31