Íslendingar á meginlandinu glíma við margfalt hærri reikninga Staðan á orkumarkaði í Evrópu er grafalvarleg að sögn Íslendinga búsettra á meginlandinu. Dæmi eru um að fólk sé að fá allt að 200 prósentum hærri reikninga fyrir hita og rafmagni nú en fyrir ári síðan. Rússar munu ekki opna fyrir Nordstream gasleiðsluna til Evrópu á morgun líkt og til stóð, sem er talið viðbragð við nýjum aðgerðapakka G-7 ríkjanna. Innlent 3. september 2022 09:31
Ekki líðandi að Zaporizhzhia kjarnorkuverinu sé ógnað Forstjóri Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar segir ekki líðandi að öryggi kjarnorkuversins í Zaporizhzhia haldi áfram að vera ógnað af stríðandi fylkingum í Úkraínu. Eftirlitsmenn stofnunarinnar væru komnir til að vera í kjarnorkuverinu sem er það stærsta í Evrópu og hefur þegar verið ógnað með sprengjuárásum. Erlent 2. september 2022 11:21
Kjarnorkuverið í Zapoizhzhia ítrekað orðið fyrir hnjaski Formaður eftirlitsnefndar Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar segir byggingu kjarnorkuversins í Zapoizhzhia í Úkraínu hafa orðið fyrir hnjaski ítrekað. Hann hafi áhyggjur af öryggismálum í verinu, sem er undir yfirráðum rússneskra hersveita. Erlent 2. september 2022 08:22
Árangurinn í suðri dýrkeyptur Úkraínumönnum Úkraínskir hermenn sem tekið hafa þátt í gagnárásum Úkraínumanna í Kherson-héraði í suðurhluta Úkraínu, segja herinn sækja fram gegn Rússum. Framsóknin hafi þó verið dýrkeypt og bardagar séu gífurlega harðir. Erlent 1. september 2022 22:34
Eftirlitsmenn komnir að kjarnorkuverinu í Zaporizhzhia Eftirlitsmenn Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar eru komnir að kjarnorkuverinu í Zaporizhzhia í Úkraínu og vonast til að getað skoðað aðstæður þar í dag. Fjöldi barna mætti í rústir grunnskóla í norður hluta landsins í dag. Erlent 1. september 2022 13:17
Borgin slítur vinaborgarsamstarfi við Moskvu Borgarráð Reykjavíkurborgar samþykkti í morgun einróma að slíta vinaborgasamstarfi við rússnesku höfuðborgina Moskvu, á grundvelli samstarfssamnings sem í gildi hefur verið milli borganna frá árinu 2007. Innlent 1. september 2022 12:48
Stjórnarformaður olíurisa látinn eftir fall út um sjúkrahúsglugga Ravil Maganov, stjórnarformaður rússneska olíu- og gasrisans Lukoil, er látinn eftir að hafa fallið út um glugga á sjúkrahúsi í rússnesku höfuðborginni Moskvu í morgun. Erlent 1. september 2022 08:17
Gera Rússum erfiðara og dýrara að ferðast til Schengen-svæðisins Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins samþykktu í morgun að gera rússneskum ferðamönnum erfiðara og dýrara að fá vegabréfsáritun til ferðalaga inn í sambandið. Þeir komust ekki að samkomulagi um að meina Rússum alfarið um vegabréfsáritanir, eins og ráðamenn nokkurra ríkja í Austur-Evrópu hafa farið fram á. Erlent 31. ágúst 2022 15:26
Rússar muni skrúfa fyrir gasflæði um Nord Stream 1 leiðsluna enn á ný Orkurisinn Gazprom er sagður ætla að loka fyrir flæði á gasi í gegnum Nord Stream 1 gasleiðsluna til Þýskalands á morgun og muni lokunin vara í þrjá daga. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Gazprom lokar á flæði gass til Þýskalands en gasflæði þangað sem og til annarra Evrópuríkja hefur verið óstöðugt í nokkurn tíma. Erlent 30. ágúst 2022 20:25
Eftirlitsmenn Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar komnir til Úkraínu Eftirlitsmenn Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar eru komnir til Kænugarðs í Úkraínu og hyggjast skoða aðstæður í kjarnorkuverinu í borginni Zaporizhzhia. Úkraínskar hersveitir sækja hart fram gegn Rússum í Kherson héraði og eru sagðar hafa náð fjórum bæjum þar undan yfirráðum Rússa. Erlent 30. ágúst 2022 20:24
Plata Rússa til að skjóta dýrum eldflaugum á gervi-HIMARS Úkraínumenn segjast hafa platað Rússa til að skjóta minnst tíu Kalibr-eldflaugum á gerviskotmörk sem smíðuð voru eftir útlit HIMARS-eldflaugakerfa. Gerviskotmörkin eru smíðuð úr timbri og er erfitt að greina þau sundur frá raunverulegum HIMARS með drónum sem eru hátt á lofti. Erlent 30. ágúst 2022 16:50
Tók upp flugferðir sínar yfir Úkraínu og birti til minningar fallins félaga Flugher Úkraínu birti í morgun myndband sem einn af flugmönnum hersins gerði til minningar um annan. Myndbandið sýnir flugmann, sem heitir Ivan, fljúga yfir Úkraínu í mismunandi verkefnum og skjóta eldflaugum að skotmörkum. Erlent 30. ágúst 2022 14:01
Úkraínuforseti skorar á Rússa að leggja á flótta frá Kherson Óstaðfestar fregnir eru um stórsókn úkraínskra hersveita í Kherson héraði í suðurhluta Úkraínu. Forseti landsins skorar á rússneskar hersveitir að leggja á flótta og segir að Úkraínumenn muni endurheimta landamæri sín á öllum vígstöðvum. Erlent 30. ágúst 2022 11:50
Vill gera miklar breytingar á Evrópusambandinu Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, kallaði í gær eftir umfangsmiklum breytingum á Evrópusambandinu. Gera þyrfti sambandinu auðveldara að stækka og komast yfir innri deilur, samhliða því að gera því kleift að standa í hárinu á utanaðkomandi andstæðingum eins og Rússlandi og Kína. Erlent 30. ágúst 2022 10:17
Össur hjálpar fólki í Úkraínu sem misst hefur útlimi Stoðtækjaframleiðandinn Össur hefur hlotið styrk úr heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs um þróunarsamvinnu til að útvega Úkraínumönnum, sem misst hafa útlimi, stoðtæki. Forstjóri fyrirtækisins segir þessa aðstoð hafa gríðarleg áhrif á fólk og einn sem hafi fengið nýjan gervifót hafi beðið maka síns á sjúkrabekknum þegar hann fékk nýja fótinn. Innlent 30. ágúst 2022 08:50
Selenskí varar innrásarhermenn í Kherson við yfirvofandi gagnárásum Úkraínuher hefur hafið gagnárás sína í suðurhluta Úkraínu, eftir að hafa unnið að því í nokkrar vikur að rjúfa birgðarlínur Rússa í Kherson og einangra innrásarhermenn þar. Erlent 30. ágúst 2022 08:17
Segjast hafa brotið sér leið í gegnum varnir Rússa Úkraínumenn segjast hafa gert umfangsmiklar gagnárásir gegn Rússum í Kherson-héraði í Suður-Úkraínu. Embættismenn segja gagnárásirnar hafa skilað árangri og þeir hafi brotið sér leið í gegnum varnir Rússa á svæðinu. Erlent 29. ágúst 2022 11:24
Teymi Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar loks á leið til Zaporizhzhia Eftirlitsmenn á vegum Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA) eru nú á leið til úkraínska kjarnorkuversins í Zaporizhzhia þar sem harðir bardagar hafa staðið milli úkraínskra og rússneskra hersveita síðustu vikurnar. Erlent 29. ágúst 2022 06:36
Rússar komu í veg fyrir endurnýjun samnings SÞ um kjarnorkuvopn Andstaða Rússlands kom í gær í veg fyrir samþykkt sameiginlegrar yfirlýsingar ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (SÞ) um takmörkun kjarnorkuvopna. Erlent 27. ágúst 2022 17:32
Litla þjóðin reyndist risi í ljósi sögunnar Utanríkisráðherra Eistlands segir Eystrasaltsríkin ævarandi þakklát Íslendingum fyrir að hafa, fyrst þjóða, viðurkennt sjálfstæði þeirra. Þessi litla þjóð hafi reynst mikill risi í ljósi sögunnar. Innlent 26. ágúst 2022 20:01
Bjartur logi við landamærin reyndist vera umfangsmikill gasbruni Rússa Rússar hafa verið sakaðir um brenna allt að 4,3 milljónum kúbikmetra á gasi á degi hverjum í gasvinnsluveri skammt frá landamærum Finnlands og Rússlands. Íbúar Finnlandsmegin við landamæri Rússa og Finnlands vöktu fyrst athygli á málinu, eftir að bjartur og þrálátur logi birtist við sjóndeildarhringinn. Erlent 26. ágúst 2022 09:10
Selenskí segir varaaflstöðvar hafa forðað kjarnorkuslysi Vólódimír Selenskí Úkraínuforseti segir að litlu hafi mátt muni að kjarnorkuslys yrði þegar síðasta rafmagnslínan að Zaporizhzhia kjarnorkuverinu datt út í átökum í kringum verið. Nokkrar klukkustundir tók að gera við línuna. Erlent 26. ágúst 2022 07:22
Skipun um stærri her ólíkleg til að skila árangri í Úkraínu Vladimír Pútin, forseti Rússlands, gaf í dag þá skipun að her Rússlands yrði stækkaður. Hermönnum yrði fjölgað um þrettán prósent fyrir enda þessa árs. Það þýðir að þeim yrði fjölgað um 137 þúsund og yrði her Rússlands þá skipaður 1,15 milljónum hermanna. Erlent 25. ágúst 2022 22:42
Rússneskir grínistar blekktu Ian McKellen í spjall við Zelenskí Breski leikarinn Ian McKellen greindi frá því í gær að tveir rússneskir grínistar, sem hugðust notfæra sér leikarann, hafi sent honum boð um einkasamtal við Volodímír Zelenskí, Úkraínuforseta. Þegar samtalið við forsetann hófst runnu tvær grímur á leikarann og lagði hann á þá. Erlent 25. ágúst 2022 22:03
Tuttugu og tveir látnir eftir eldflaugaárás á lestarstöð Minnst tuttugu og tveir eru látnir og tugir eru særðir eftir að Rússar skutu eldflaugum að lestarstöð í bænum Chaplyne. Eldflaugar eru sagðar hafa lent á farþegalest og stóðu fjórir lestarvagnar í ljósum logum eftir árásina. Erlent 24. ágúst 2022 22:23
„Æ, þetta er bara svo kjánalegt“ Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð á vettvang mótmæla Sambands ungra Sjálfstæðismanna fyrir utan rússneska sendiráðið í gærkvöldi. Yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, segir ekki einkennilegt að sérsveitin hafi verið kölluð á vettvang en á myndbandi heyrist í lögreglumanni kalla mótmælin asnaleg og kjánaleg. Innlent 24. ágúst 2022 15:12
Selenskí segir úkraínsku þjóðina hafa „endurfæðst“ við innrás Rússa Úkraínumenn eru undir það búnir að Rússar geri stórfelldar árásir í landinu í dag, þegar Úkraínumenn fagna því að 31 ár er liðið frá aðskilnaði Úkraínu frá Sovétríkjunum. Í dag eru einnig sex mánuðir liðnir frá því að innrás Rússa hófst. Erlent 24. ágúst 2022 07:29
Sérsveitin stöðvaði unga sjálfstæðismenn við mótmæli við rússneska sendiráðið Sérsveit ríkislögreglustjóra og lögreglumenn stöðvuðu unga sjálfstæðismenn sem hugðust mótmæla stríði Rússa í Úkraínu við rússneska sendiráðið í kvöld. Ungmennin ætluðu að mála úkraínska fánann á gangstéttina við sendiráðið en voru stöðvuð við verkið og eftir eru tveir málningarpollar á gangstéttinni. Einn gulur og einn blár. Innlent 23. ágúst 2022 22:52
Lúxussnekkja rússnesks auðjöfurs seld á uppboði á Gíbraltar Lúxussnekkja rússnesks auðjöfurs, sem er einn þeirra sem viðskiptaþvinganir Vestuvelda hafa beinst gegn, var sett á uppboð og seld á Gíbraltar í dag. Verð snekkjunnar var metið á 75 milljónir Bandaríkjadala, eða um 10,5 milljarða íslenskra króna. Erlent 23. ágúst 2022 21:38
Flótti frá Kænugarði fyrir þjóðhátíðardaginn: „Bregðumst kröftuglega við hverri árás“ Margir flýja nú frá Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, vegna ótta við árás á borgina á þjóðhátíðardegi Úkraínu sem verður á morgun, 24 ágúst. Þann dag árið 1991 lýsti Úkraína yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum, fjórum mánuðum fyrir fall Sovíetríkjanna. Erlent 23. ágúst 2022 16:41