Fram lagði Íslandsmeistara Breiðabliks Fram lagði Íslandsmeistara Breiðabliks þegar liðin hófu leik í Lengjubikar karla í knattspyrnu. Lokatölur í Fífunni í Kópavogi 1-3. Íslenski boltinn 4. febrúar 2025 22:03
Heiðdís aftur í Kópavoginn Heiðdís Lillýardóttir er gengin í raðir Íslandsmeistara Breiðabliks eftir að hafa spilað undanfarið erlendis í atvinnumennsku. Íslenski boltinn 4. febrúar 2025 18:18
Þjálfarar Vals komu ekki af fjöllum varðandi Katie Þjálfarar kvennaliðs Vals í fótbolta vissu allan tímann stöðuna á viðræðum félagsins við Katie Cousins einn allra besta leikmann Vals og Bestu deildarinnar á síðasta tímabili. Samningar náðust ekki milli Vals og Katie sem er á leið í Þrótt Reykjavík. Íslenski boltinn 4. febrúar 2025 15:44
Katie Cousins í Þrótt eftir að Valur taldi hana of dýra Katie Cousins, einn besti leikmaður Bestu deildar kvenna í fótbolta undanfarin ár, hefur samið um að snúa aftur til Þróttar og spila með liðinu á komandi leiktíð. Íslenski boltinn 4. febrúar 2025 15:05
FIFA setti íslensk félög í bann án þess að láta vita FIFA, alþjóða knattspyrnusambandið, hefur sett bæði Fram og Gróttu í félagaskiptabann í að hámarki næstu þrjá félagaskiptaglugga. Félögin og KSÍ furða sig á samskiptaleysi af hálfu FIFA en ekki mun vera um alvarleg brot að ræða og talið auðleyst að losa félögin úr banni. Íslenski boltinn 4. febrúar 2025 14:50
„Það fór eitthvað leikrit í gang“ Nýr leikmaður Víkings er spenntur fyrir því að læra af þjálfaranum Sölva Geir Ottesen og segir ekki skref aftur á bak að snúa heim úr atvinnumennsku. Hann stökk á tilboð Víkinga eftir svokallað leikrit sem danska liðið SönderjyskE setti á svið. Íslenski boltinn 4. febrúar 2025 11:02
Ísfold Marý til liðs við Víking Ísfold Marý Sigtryggsdóttir hefur samið við Víking og mun leika með liðinu í Bestu deild kvenna á komandi leiktíð. Íslenski boltinn 3. febrúar 2025 23:02
Reykjavíkurmeistarar KR byrja Lengjubikarinn á sigri Aron Sigurðarson og Stefán Árni Geirsson skoruðu mörkin er KR hóf Lengjubikarinn með 2-0 sigri á Keflavík. Íslenski boltinn 3. febrúar 2025 22:32
Björn sagður rekinn vegna utanfarar í stórafmæli mömmu Birni Berg Bryde hefur verið vikið úr starfi aðstoðarþjálfari karla hjá knattspyrnuliði Stjörnunnar. Sú ákvörðun mun hafa verið tekin eftir að Björn pantaði sér ferð til Spánar, til að vera viðstaddur sextugsafmæli mömmu sinnar í janúar. Íslenski boltinn 3. febrúar 2025 12:30
Róbert Orri semur við Víkinga Róbert Orri Þorkelsson er kominn aftur heim til Íslands og spilar með Víkingum í Bestu deild karla í fótbolta í sumar. Íslenski boltinn 2. febrúar 2025 17:21
Berglind Björg strax byrjuð að skora fyrir Blika Breiðablikskonur byrjuðu vel í Lengjubikar kvenna í fótbolta en liðið vann 4-2 sigur á FH í fyrsta leik mótsins sem fór fram í Skessunni í Hafnarfirði í dag. Íslenski boltinn 1. febrúar 2025 13:14
Guy Smit frá KR til Vestra Hollenski markvörðurinn Guy Smit er genginn í raðir Vestra og mun verja mark félagsins í Bestu deild karla í fótbolta í sumar. Íslenski boltinn 1. febrúar 2025 10:49
Ekki hrifinn af tvöfaldri sekt frá KSÍ: „Af hverju að gera það?“ Með því að spila ólöglegum leikmanni, Stíg Diljan Þórðarsyni, í þremur leikjum í Reykjavíkurmótinu hefur lið Víkings Reykjavíkur sankað að sér sektum. Félagið vissi að með því að spila honum myndu þeir fá sekt en þeim finnst tvöföld sekt eftir síðasta leik frá KSÍ aðeins of vel í lagt. Íslenski boltinn 1. febrúar 2025 09:33
Íslandsmeistararnir unnu Þungavigtarbikarinn Breiðablik er Þungavigtarbikarmeistari eftir 4-2 sigur gegn Stjörnunni í úrslitaleik, öll sex mörkin voru skoruð í seinni hálfleik. Íslenski boltinn 31. janúar 2025 21:57
Vigdís Lilja seld til Anderlecht Íslandsmeistarar Breiðabliks hafa selt Vigdísi Lilju Kristjánsdóttur til Anderlecht í Belgíu. Íslenski boltinn 31. janúar 2025 16:20
KR vann fertugasta Reykjavíkurmeistaratitilinn annað árið í röð Óskar Hrafn Þorvaldsson er búinn að skila fyrsta titlinum í hús sem þjálfari KR. KR varð Reykjavíkurmeistari eftir 3-0 sigur á Valsmönnum í úrslitaleiknum í gær. Íslenski boltinn 31. janúar 2025 14:30
KR Reykjavíkurmeistari eftir öruggan sigur á Val KR er Reykjavíkurmeistari karla í knattspyrnu árið 2025. KR lagði Val 3-0 í úrslitaleik sem fór í Egilshöll fyrr í kvöld. Íslenski boltinn 30. janúar 2025 22:46
Páll sækist ekki eftir endurkjöri hjá KR Eftir að hafa verið formaður knattspyrnudeildar KR síðustu fimm ár hefur Páll Kristjánsson ákveðið að sækjast ekki eftir endurkjöri á komandi aðalfundi. Íslenski boltinn 29. janúar 2025 15:32
Norðurálsmótið fagnar fjörutíu ára afmæli í ár Eitt stærsta íþróttamót barna, Norðurálsmótið á Akranesi, heldur upp á fjörutíu ára afmæli sitt á þessu ári. Búist er við tæplega þrjú þúsund þátttakendum á mótinu. Íslenski boltinn 28. janúar 2025 18:00
Atli Guðna auglýsir eftir strákum í fótbolta: „Markmiðið að hafa gaman“ FH-ingurinn Atli Guðnason, einn marka- og leikjahæsti leikmaður í sögu efstu deildar, auglýsir eftir strákum á menntaskólaaldri á fótboltaæfingar. Um forvarnarverkefni er að ræða. Íslenski boltinn 28. janúar 2025 14:31
Tvö af þremur félögum í úrslitaleik Reykjavíkurmóts kvenna eru frá Garðabæ Víkingur og Stjarnan/Álftanes mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmóts kvenna í ár en þetta er staðfest á heimasíðu KSÍ. Íslenski boltinn 28. janúar 2025 13:01
Einbeittur brotavilji Víkinga Víkingar héldu í dag áfram að tefla fram ólöglegum leikmanni í Reykjavíkurmóti karla í fótbolta, og mega því enn á ný búast við sekt frá KSÍ. Íslenski boltinn 25. janúar 2025 16:37
ÍBV fær stóran og sterkan miðvörð ÍBV heldur áfram að styrkja sig fyrir komandi átök í Bestu deildinni í fótbolta eftir að hafa unnið sér sæti þar á nýjan leik á síðustu leiktíð. Íslenski boltinn 24. janúar 2025 16:47
Mætti Barcelona í byrjun mánaðar en spilar með Fram í Bestu í sumar Framarar hafa styrkt hjá sér miðjuna fyrir komandi sumar í Bestu deild karla í fótbolta. Íslenski boltinn 24. janúar 2025 09:01
Ætlar að taka annað fótboltasumar á „besta staðnum á Íslandi“ Nýliðar FHL, sameiginlegt lið Fjarðabyggðar, Leiknis og Hattar, voru að fá góðar fréttir af leikmannamálum félagsins. Íslenski boltinn 22. janúar 2025 10:20
Hefur skoðanir á því hvar Arnar eigi að hefjast handa með landsliðið Kári Árnason, yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi Reykjavík vissi að einn daginn kæmi að þeim tímapunkti að félagið þyrfti að horfa á eftir þjálfara sínum Arnari Gunnlaugssyni til annarra starfa. Kári er ánægður með að Sölvi Geir Ottesen taki við keflinu í Víkinni og er, sem fyrrverandi varnarmaður með ákveðna skoðun á því hvar Arnar eigi að hefjast handa með íslenska landsliðið. Fótbolti 21. janúar 2025 14:01
Ósáttur afi Sölva skildi ekki hvernig Arnar gat rekið hann í beinni Sölvi Geir Ottesen er nýr þjálfari karlaliðs Víkings Reykjavíkur í fótbolta og fær hann það verðuga verkefni að taka við stjórn liðsins af hinum sigursæla Arnari Gunnlaugssyni sem er tekinn við íslenska landsliðinu. Arnar rak Sölva, í góðu, úr landsliðsteyminu en ekki kveiktu allir á því að allt var þetta gert í góðu og sátt allra hlutaðeigandi. Íslenski boltinn 21. janúar 2025 08:31
Þróttur fær aðra úr Árbænum Þróttur Reykjavík hefur verið duglegt á leikmannamarkaðnum síðan tímabilinu í Bestu deild kvenna í knattspyrnu lauk. Klara Mist Karlsdóttir er gengin í raðir félagsins en hún lék síðast með Fylki. Íslenski boltinn 20. janúar 2025 20:32
Seldu treyjur Orra á uppboði fyrir fjölskyldu Maciej Karlalið Fylkis í fótbolta seldi tvær treyjur frá landsliðsmanninum Orra Óskarssyni fyrir samtals hálfa milljón króna, á uppboði á herrakvöldi félagsins á dögunum. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Fylkismanna. Íslenski boltinn 20. janúar 2025 12:31
Jónatan Ingi tryggði Val sigur á Fram Valur er með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leiki sína í B-riðli Reykjavíkurmóts karla í fótbolta. Valur sigraði Fram, 1-0, í dag. Íslenski boltinn 18. janúar 2025 14:58