

Ole Anton Bieltvedt
Greinar eftir Ole Anton Bieltvedt, formann ÍslandiAllt, félagasamtaka um samfélagsmál og betra jarðlíf.

Davíð Oddsson stendur ekki við eigin ritsjórnarstefnu - Þolir og birtir ekki gagnrýni á eigin skrif
Á dögunum sendi ég eftirfarandi bréf á Davíð Oddsson, en innihald þess mun skýra sig sjálft.

Hættum að meiða, misþyrma og éta ”systur okkar og bræður”!
Fyrir par árum var mikið fjallað um blóðmerahald, en það byggist á því, að blóði er tappað af fylfullum merum, 5 lítrum í senn, vikulega, 8 sinnum hvert haust, en hver einstök blóðtaka jafngildir tæplega 20% af heildarblóðmagni hryssunnar.

Sannleikurinn um Evrópusambandið IV: Samfélagsleg, efnahagsleg og varnarleg samstaða Evrópu lífsnauðsyn!
Því miður verður ekki annað séð, en, að við, Íslending og Evrópubúar, reyndar jarðarbúar allir, séum að sigla inn í heim mikilla breytinga og ört vaxandi óvissu og óöryggis. Friðarhorfur næstu ár og áratugi eru ekki góðar.

Sannleikurinn um Evrópusambandið III: Eflum álfuna okkar, Evrópu, og þar með ESB, barnanna okkar vegna!
Undirritaður bjó í miðju Evrópusambandinu, Þýzkalandi, í 27 ár og fylgdist gjörla með þróun ríkjasambandsins allan þennan tíma, reyndar fyrir og eftir á líka, svo og með tilkomu Evrunnar og þróun þessa sameiginlega gjaldmiðils nú 26 þjóða. Allt gerðist þetta innan frá; ég upplifði atburðarásina á staðnum.

Er bann við vopnaburði í þéttbýli ekki fyrsta skref?
Flestu hugsandi og ábyrgu fólki er löngu farið að blöskra þær tíðu og alvarlegu hnífstunguárásir, sem eru að eiga sér stað í okkar litla samfélagi. Hér er ekki bara verið að meiða og særa fólk, heldur myrða, eins og nýlegt dæmi sannar.

Ekkert prik fyrir Hjört, nema gefið væri fyrir hálfsannleika og rangfærslur
27. ágúst sl. skrifaði ágætur maður, sem búið hefur í Lúxemborg, í hjarta ESB og Evru, um langt árabil, og þekkir þar auðvitað vel til, er heimamaður, Róbert Björnsson, ágætan pistil hér á vefnum um ESB og Evru og sína reynslu af hvorutveggja.

Sannleikurinn um Evrópsambandið II – 10 ríki bíða milli vonar og ótta eftir því að fá inngönu – 1 hefur beðið í 37 ár
Fyrir 10 dögum skrifaði ég fyrstu greinina undir fyrirsögninni „Sannleikurinn um Evrópusambandið I“. Nú kemur grein númer 2; II.

Áskorun til bankanna: Lækkið vextina til byggingar íbúðarhúsnæðis!
Ég skoðaði vexti í Þýzkalandi til íbúðarkaupa. Ef íbúð er keypt á verði, sem samsvarar 70 milljónum kr., og lán tekið fyrir 50 milljónum kr., bjóðast vextir þar t.a.m. upp á 3,02%, fastir til 10 ára, eða 3,42%, til 20 ára.

Sannleikurinn um Evrópusambandið I - Öryggi, velferð og lífsgæði, sem margir átta sig ekki á
Margir hægri flokkar í Evrópu, þeir sem lengst til hægri standa, hafa lengst af verið andstæðingar ESB. Hafa þeir leitað margra leiða til að gera bandalagið tortryggilegt, telja fólki trú um, að það væri fjandsamlegt einstaka þjóðum, einkum þeim smærri, og reynt að varpa rýrð á þýðingu þess og starfsemi á flestan hátt.

Ungt fólk á Íslandi: kjósið ykkur út úr ójöfnuði og ranglæti í jöfnuð og réttlæti!
Þjóðfélagið skiptist í hópa á ýmsum forsendum og út frá ýmsum skilgreiningum. Ein skilgreiningin er, að skipta fólki upp í fjármagnseigendur, annars vegar, og þá, sem eru það ekki, hins vegar.

Hvað segir Biggi Óli Sigmundsson eftir 14 ár í Englandi?
Eins og allir vel vakandi og fróðleiksfúsir lesendur hér á Vísi vita, birti ég grein með fyrirsögninni „Brexit og ný aðför þjóðernissinna og hægri öfgamanna að velferð og öryggi landsins“ hér á Vísis-vefnum í gær.

Brexit og ný aðför þjóðernissinna og hægri öfgamanna að velferð og öryggi landsins
Ég hygg, að allir þeir, sem eitthvað kunna og skilja, allir sannir sagnfræðingar og fræðimenn, séu sammála um, að Brexit hafi orðið bresku þjóðinni verulegt efnhagslegt áfall. Hagur Breta og afkoma, velferð, væri meiri, ef ekki hefði til Brexit, útgöngu úr ESB, komið.

Þegar ósannindi og ósvinna keyra um þverbak
Undirritaður bjó í Þýzkalandi frá 1989 til 2016, í hjarta ESB, í 27 ár, og fylgdist gjörla með þróun ríkjasambandsins, en það blasti og blasir við, að Evrópa verði að standa samhent og sameinuð, ef hún á að geta staðið af sér áskoranir framtíðarinnar og varið og tryggt sitt frelsi, sitt sjálfstæði, sína menningu og sína velferð.

Upp kemst um Brexit ósannindamenn og -lygara um síðir – Þeir eru líka hér
Undirritaður skrifaði grein í Morgunblaðið nokkru eftir að Bretar höfðu samþykkt Brexit, þó mjög naumlega hafi verið, og alls ekki með meirihluta kjósenda, hvað þá miklum, eins og Brexit-sinnar hafa ranglega fullyrt - það voru aðeins 37% breskra kjósenda, sem studdu Brexit, 35% voru á móti og heil 28% tóku ekki afstöðu.

Flestir barðir til bana með steini eða skotnir í tætlur með haglabyssu
Í nýlegri gein minni, 3.200 aumingjar (mín skoðun), fjallaði ég um þá menn, sem liggja í því, að drepa saklaus og varnarlaus dýr, hreindýr - líka kýr frá ósjálfbjarga kálfum, sem fyrir mér er versta hlið málsins - mikið að gamni sínu, án nokkurrar raunverulegrar þarfar.

Verða rangfærslur að sannleika, ef þær eru endurteknar nógu oft!?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifaði grein hér á Vísi í fyrradag með fyrirsögninni „Reglurnar eru óumsemjanlegar“. Fjallaði hann þar um samningamöguleika ríkja, sem hafa hug á ESB-aðild. Fullyrti hann, að nýtt aðildarríki gæti ekki um neitt samið. Annað hvort gengi það að grundvallarregluverki sambandsins, eins og það er, eða það gæti gleymt ósk sinni um aðild.

Það er víst hægt að semja um aðildarskilmála! Mörg dæmi sanna það!
Hjörtur J. Guðmundsson, sennilega ákafasti ESB-, Evru- og Evrópuandstæðingur landsins, og um leið landsins mesti og hollasti stuðningsmaður Boris Johnson og Brexit, notar sem titil hér á Vísi: Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál).

3.200 aumingjar (mín skoðun)
Varðandi þessa fyrirsögn, þá er ég ekki að fullyrða, að þeir menn, sem ég mun fjalla hér um, séu allir aumingjar, hins vegar er það mín skoðun, að svo sé.

Hluta þjóðarinnar hent út í kuldann – hinn baðar sig í sólinni
Fullorðnir eru í þessu landi um 250.000 manns. Eftir því sem bezt verður séð, eru um 150.000 þessa fólks, 60 prósent þjóðarinnar, sá hluti hennar, sem ver er settur og þarf lán til að fjármagna sitt líf, íbúðarkaup, bílakaup eða annað. Fjármagnsþurfar.

Þegar andi Mussolini svífur yfir vötnunum og titlar verða langir
Hægri öfgaflokkarnir í Evrópu voru lengst af helztu andstæðingar ESB, og leituðu þeir allra leiða til að rýra og sverta ríkjasambandið.

Vilja menn þá sérhagsmunagæzlu og það spillingar- og klíkuveldi, sem núverandi stjórnarfar og krónan leyfa?
Það eru í raun öll ríki álfunnar, sem sækja það fast og með öllum ráðum, að komast inn í ESB og fá Evru, nema þá Bretland, sem gekk úr ESB á grundvelli blekkinga, ósanninda og rangfærslna þeirra íhalds- og afturhaldsafla, sem fyrir útgöngu stóðu, og svo Ísland.

Er mörgum lesendum Vísis slétt sama um afkomu sína og velferð?
Ekki er víst, að langt sé í næstu þingkosningar. Ríkisstjórnin stendur höllum fæti, eftir að hafa misst sitt fylgi úr 55% í 30%. Vilji til endalausra málamiðlana, hvað varðar ólík stefnumál flokkanna þriggja, sem þó hefur einkennt þessa ríkisstjórn - en um leið nánast gert hana stefnulausa - fer ört dvínandi.

Af hverju er verðlag hér tvöfalt hærra en í Evrópu?
Höfundur talar í þessum efnum af nokkurri þekkingu og reynslu. Hann hefur stundað alþjóðlega framleiðslu og viðskipti, bæði í Evrópu og Asíu, í hálfa öld. Nú sem stjórnarformaður ENOX Productions Services GmbH í Hamborg.

Síðasta hálmstrá Vinstri grænna í höndum Bjarkeyjar Olsen
Undirritaður hefur fylgzt með stjórnmálum, hér og erlendis, til lengri tíma, og minnist þess ekki, að hafa horft upp á annað eins fylgishrun stjórnmálaflokks, og Vinstri grænir, VG, hafa orðið fyrir, síðustu 6-7 árin. Úr 17% í rúm 3%!

Ótrúlegur barnaskapur forsetaframbjóðenda
Í kappræðunum, sem fóru fram á dögunum, voru forsetaframbjóðendur spurðir um afstöðu sína til stuðnings okkar, Íslendinga, við Úkraínu í stríði, varnarstríði, þeirra við Rússa, Pútín og hans yfirgangslið.

Svargreinin sem Mogginn neitaði að birta
Hjörleifur Hallgríms, Akureyringur og eldri borgari, skrifar grein í Morgunblaðið 22. maí með fyrirsögninni „Nokkur orð um kosningu forseta“. Útdráttur við greinina er þessi: „Það er óskemmtilegt að segja það, en útlit er fyrir að Halla Hrund sé ekki öll þar sem hún er séð“.

Hví Halla Hrund? – Skyldulesning!
Þó að forseti Íslands hafi takmörkuð bein völd, er hann fulltrúi og ásýnd Íslands og Íslendinga gagnvart umheiminum. Hann á líka að vera sameiningarafl, og svo sameiningartákn, Íslendinga og fulltrúi þjóðarinnar gagnvart Alþingi, framkvæmdarvaldinu og erlendum þjóðum.

Vonandi endurtekur sagan sig!
Þriðju forsetakosningarnar fóru fram 1968. Þær mörkuðu ákveðin tímamót. Þar tókust á Kristján Eldjárn, þjóðminjavörður, hámenntaður maður en sléttur og felldur; einn af okkur, almenningi.

Í hjarta sínu græn, en varla í reynd
Þeir, sem þekkja til Katrínar Jakobsdóttur, vita, að hún er góðum gáfum gædd, væn kona, mest góðhjarta og velviljuð, gagnvart mönnum og málleysingjum, með fjölbreytilega hæfileika, vel þjálfuð í framkomu, sjarmerandi og í hjarta sínu græn.

Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu!
Skoðanakannanir gefa til kynna, að aðeins Halla Hrund Logadóttir eða Katrín Jakobsdóttir hafi raunverulega möguleika á að ná kjöri. Þær eru einu frambjóðendurnir, sem eru með 25% vegið fylgi, eða meira. Það er liðið verulega á kosningabaráttuna, og er líklegt, að þeir, sem liggja nú í 20% fylgi, eða undir því, eigi ekki raunverulegan sjéns lengur.