Auðveldur sigur Fram á Stjörnunni Einn leikur fór fram í DHL deild karla í handbolta í dag. Íslandsmeistarar Fram burstuðu Stjörnuna 31-20 í Safamýri. Jóhann Gunnar Einarsson skoraði 10 mörk fyrir Fram í dag, þar af 9 úr vítum, en Guðmundur Guðmundsson skoraði 5 mörk fyrir Stjörnuna. Handbolti 25. nóvember 2006 18:07
Handboltinn stendur höllum fæti í Hafnarfirði Handboltinn í Hafnarfirði stendur afar höllum fæti og skulda handknattleiksfélög Hauka og FH þar í bæ samtals 113 milljónir króna. Handknattleiksdeildir félaganna eru komnar í þrot og hafa leitað aðstoðar bæjaryfirvalda. Hörður Magnússon greindi frá þessu í íþróttafréttum Stöðvar 2 í kvöld. Handbolti 23. nóvember 2006 19:33
Fram lagði Akureyri Einn leikur var á dagskrá í DHL-deild karla í handknattleik í kvöld. Íslandsmeistarar Fram lögðu lið Akureyrar 32-29 eftir að hafa verið með sjö marka forskot í leikhléi 19-12. Jóhann Einarsson skoraði 9 mörk fyrir Fram og Sigfús Sigfússon 7, en Goran Gusic skoraði 11 mörk fyrir Akureyri, þar af 10 úr vítum. Fram er í þriðja sæti deildarinnar en Akureyri í því fjórða. Handbolti 22. nóvember 2006 20:49
Akureyri og Fram mætast í 8-liða úrslitunum Í dag var dregið í 8-liða úrslit SS-bikarsins í handbolta í karla- og kvennaflokki. Í karlaflokki er aðeins einn úrvalsdeildarslagur þar sem Akureyri tekur á móti Íslandsmeisturum Fram. Stórleikurinn í kvennaflokki er án efa viðureign Hauka og Stjörnunnar. Handbolti 22. nóvember 2006 14:15
Stjarnan upp í fjórða sæti Stjarnan er komið upp í 4. sæti DHL-deildar karla í handbolta eftir góðan sigur á Fylki í Árbænum í dag, 27-24. Fram sigraði ÍR í Breiðholtinu, 40-29. Handbolti 19. nóvember 2006 17:45
Ótrúlegur sigur Vals Arnór Gunnarsson tryggði Valsmönnum dramatískan sigur á Haukum á Ásvöllum í dag þegar hann skoraði sigurmarkið þremur sekúndum fyrir leikslok. Lokatölur urðu 30-29 fyrir Val sem er komið á topp DHL-deildarinnar að nýju. Í DHL-deild kvenna vann Grótta sigur á Fram. Handbolti 18. nóvember 2006 17:50
Í banni næstu tvo leikina Tite Kalandadze, stórskytta Stjörnunnar, var í gær dæmdur í tveggja leikja bann af aganefnd HSÍ vegna útilokunar í leik gegn Akureyri á dögunum. Hann missir því af leikjum gegn Fylki og Fram. Handbolti 17. nóvember 2006 08:30
Fram í 8-liða úrslitin Framarar tryggðu sér í kvöld sæti í 8-liða úrslitum SS bikarsins í handbolta þegar þeir lögðu Fylki 34-31 á heimavelli sínum, eftir að gestirnir höfðu verið með tveggja marka forystu í hálfleik 16-14. Þá vann Akureyri öruggan sigur á ÍR 2 með 33 mörkum gegn 26. Handbolti 16. nóvember 2006 21:49
Fram mætir Fylki í SS bikarnum í kvöld Tveir leikir fara fram í SS bikar karla í handbolta í kvöld. Stórleikur kvöldsins er án efa viðureign Fram og Fylkis sem hefst klukkan 19:15 í Framhúsinu, en þá mætast ÍR 2 á og Akureyri nú klukkan 18:30. 16-liða úrslitunum lýkur svo annað kvöld þegar ÍBV tekur á móti Hetti. Handbolti 16. nóvember 2006 18:16
Haukar lögðu Val Haukar lögðu Valsmenn í stórleik kvöldsins í SS-bikar karla í handbolta 27-24 eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir í hálfleik. Valsmenn eru því úr leik í bikarkeppninni en Haukar eru komnir í 8-liða úrslit keppninnar. Handbolti 15. nóvember 2006 21:54
Þróttarar mættu ekki í lyfjapróf Þrír leikmenn handknattleiksliðs Þróttar í Vogum skrópuðu í lyfjapróf eftir bikarleik gegn Stjörnunni í gær og eiga tveggja ára keppnisbann yfir höfði sér. Þorsteinn Gunnarsson greindi frá þessu í íþróttafréttum á Stöð 2 í kvöld. Handbolti 15. nóvember 2006 19:42
Haukar úr leik Karlalið Hauka er úr leik í Evrópukeppninni í handbolta eftir 29-19 tap fyrir Paris Handball á heimavelli sínum í kvöld. Haukar töpuðu fyrri leiknum með 10 marka mun og sáu því vart til sólar í einvíginu. Fyrr í dag féllu Fylkismenn úr Áskorendakeppni Evrópu eftir naumt tap gegn St. Otmar frá Sviss. Handbolti 12. nóvember 2006 22:20
Akureyri skellti Stjörnunni Akureyri vann nokkuð sigur á Stjörnunni í Ásgarði í leik kvöldsins í DHL deild karla í handknattleik 23-22, eftir að heimamenn höfðu 5 marka forskot í hálfleik. Akureyri skaust með sigrinum í 3. sæti deildarinnar og hefur hlotið 7 stig í 5 leikjum, en Stjarnan er í 5. sæti með 4 stig. Handbolti 12. nóvember 2006 19:44
Fylkir úr leik Fylkir er úr leik í Áskorendakeppni Evrópu eftir annað naumt 30-29 tap fyrir svissneska liðinu St. Otmar ytra, en fyrri leik liðanna lauk með sama markamun í gær og því er íslenska liðið úr leik. Handbolti 12. nóvember 2006 19:35
Valsmenn aftur á toppinn Einn leikur fór fram í DHL deild karla í handbolta í dag. Valsmenn skelltu sér aftur á topp deildarinnar með 31-25 sigri á ÍR. Markús Máni Michaelsson var markahæstur hjá Val með 7 mörk en Davíð Georgsson skoraði 8 fyrir botnlið ÍR. Handbolti 11. nóvember 2006 17:51
HK á toppinn HK skellti sér á toppinn í dhl deild karla í kvöld með sigri á Haukum 26-21 í Digranesi. HK hefur 9 stig í efsta sæti deildarinnar en Valsmenn hafa 8 stig og eiga leik til góða. Haukar eru í sjötta sætinu með 4 stig eftir 6 leiki. Handbolti 8. nóvember 2006 20:49
Naumur sigur Akureyri á Fylki Akureyri komst upp fyrir Fylki og í 3. sæti DHL-deildar karla í handbolta með því að sigra Árbæjarliðið á heimavelli sínum í kvöld, 30-27. Akureyri er nú komið með 5 stig eftir fjóra leiki en Fylkir er með sama stigafjölda eftir fimm leiki. Handbolti 6. nóvember 2006 20:39
Valur vann í Laugardalshöllinni Valsmenn unnu öruggan og sannfærandi sigur á Íslandsmeisturum Fram í DHL-deild karla, 30-25, en leiknum Í Laugardalshöllinni var að ljúka rétt í þessu. Valur endurheimti þar með efsta sæti deildarinnar en Framarar sitja áfram í næst neðsta sæti deildarinnar. Handbolti 5. nóvember 2006 17:40
HK skellti ÍR í Breiðholti HK endurheimti toppsæti DHL-deildar karla í handbolta í dag með því að vinna nauman útisigur á ÍR-ingum í Breiðholti, 21-22. HK er með sjö stig á toppi deildarinnar en Valsmenn, sem koma í öðru sæti með sex stig, mæta Fram á morgun. Handbolti 4. nóvember 2006 18:34
Stjarnan lagði Hauka Stjarnan lagði Hauka 33-29 á útivelli í leik kvöldsins í DHL deild karla í handbolta og náði með þessum mikilvæga sigri að rétta sinn hlut nokkuð í deildinni eftir slæma byrjun. Bæði lið eru með 4 stig eftir 5 umferðir í deildinni. Handbolti 1. nóvember 2006 22:25
Tveir stórleikir í 16 liða úrslitunum Í dag var dregið í 16 liða úrslit karla í ss bikarnum í karlaflokki og þar verða tveir stórleikir á dagskrá. Íslandsmeistarar Fram mæta Fylki og Haukar taka á móti Valsmönnum, en leikirnir verða spilaðir 15. nóvember. Handbolti 1. nóvember 2006 14:53
Kristján ráðinn þjálfari út tímabilið Stjarnan réð í gær Kristján Halldórsson sem þjálfari karlaliðsins út þetta tímabil en Kristján tekur við starfinu af þeim Sigurði Bjarnasyni og Magnúsi Teitssyni sem sögðu upp störfum á dögunum. Það hafði gengið frekar brösuglega hjá Stjörnumönnum að finna nýjan mann en nú er loks orðið ljóst að Kristján stýrir skútunni til loka tímabilsins en hann hitti leikmennina í gærkvöldi. Handbolti 24. október 2006 08:00
Patrekur og Konráð þjálfa Stjörnuna tímabundið Patrekur Jóhannesson fyrirliði og Konráð Olavsson munu stýra karlaliði Stjörnunnar í handbolta þangað til eftirmaður Sigurðar Bjarnasonar finnst, en Sigurður sagði starfi sínu lausu í gær. Formaður handknattleiksdeildar félagsins staðfesti þetta í samtali við NFS í kvöld, en vonaðist til að ganga frá ráðningu þjálfara í vikunni. Handbolti 16. október 2006 19:45
Sigurður hættur að þjálfa Stjörnuna Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem tilkynnt er að Sigurður Bjarnason hafi látið af störfum sem þjálfari karlaliðs félagsins og aðstoðarmaður hans Magnús Teitsson sömuleiðis. Handbolti 16. október 2006 14:12
Valur lagði Stjörnuna Valsmenn unnu í dag góðan sigur á Stjörnunni í úrvalsdeild karla í handbolta 30-29 og því er Stjarnan enn án sigurs í deildinni eftir þrjá leiki. Ernir Hrafn Arnarson skoraði 7 mörk fyrir Val og Patrekur Jóhannesson skoraði einni 7 mörk fyrir Stjörnuna. Ólafur Haukur Gíslason varði 17 skot í marki Vals. Handbolti 14. október 2006 17:39
HK á toppnum Einn leikur var á dagskrá í DHL-deild karla í handknattleik í kvöld. Íslandsmeistarar Fram urðu að láta sér lynda jafntefli gegn HK í Digranesi 22-22 og því er Kópavogsliðið í efsta sæti deildarinnar. Handbolti 11. október 2006 21:29
Akureyringar kafsigldu dapra Breiðhyltinga Það var rífandi stemmning KA-heimilinu á Akureyri í gær þegar samnefnt lið bæjarnafninu tók á móti ÍR í fyrsta heimaleiknum sem sameinað lið KA og Þórs. Greinilegt er með öllu að þessir sameinuðu kraftar hafa nú myndað sterkt handboltalið sem er með dyggann stuðning allra bæjarbúa með sér og er ljóst að það verður erfitt fyrir öll lið að mæta í gryfjuna sem KA-heimilið er. Handbolti 9. október 2006 07:15
Akureyri vann góðan heimasigur Akureyri vann góðan heimasigur, 33-24, á ÍR á Akureyri í dag. Sigur Akureyringa var aldrei í hættu en staðan í hálfleik var 17-9. Akureyringar léku mjög vel í dag og varnarleikur þeirra var góður að sama skapi náðu ÍR-ingar sér aldrei á flug. Handbolti 8. október 2006 17:38
Vorum ömurlegir í þessum leik Valsmenn sóttu Fylkismenn heim í Árbænum í gær. Fylkismenn náðu fjögurra marka forskoti í upphafi leiks og héldu því til leiksloka og unnu sanngjarnan sigur, 28-26. Þjálfari Vals, sem var spáð sigri í úrvalsdeild karla fyrir mótið, var mjög ósáttur en lítill meistarabragur var yfir Valsmönnum í gær. Handbolti 8. október 2006 09:00
Fylkir lagði Íslandsmeistaraefnin Fylkismenn, sem spáð var sjöunda sæti og falli í deildinni, gerðu sér lítið fyrir og skelltu Íslandsmeistaraefnunum í Val í Árbænum nú rétt áðan 28-26. Val var spáð titlinum í spá fyrirliða og forráðamann fyrir mótið. Staðan í hálfleik var 14-9 fyrir fylki. Handbolti 7. október 2006 17:47