Góður sigur Hauka í Mýrinni Þremur leikjum er lokið í N1 deild kvenna í kvöld. Haukar unnu góðan sigur á Stjörnunni í Mýrinni 29-28, Valur lagði Fylki á útivelli 22-27 og Fram burstaði Akureyri fyrir norðan 26-18. Handbolti 11. desember 2007 20:25
Valur í annað sætið Valur vann í kvöld sex marka sigur á HK, 32-26, í eina leik kvöldsins í N1-deild kvenna. Handbolti 7. desember 2007 22:07
Sigurmarkið á lokasekúndunni Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir var hetja Fram er hún skoraði sigurmark sinna manna gegn Stjörnunni í kvöld á lokasekúndu leiksins. Handbolti 6. desember 2007 21:25
Fram mistókst að grípa toppsætið Haukar og Fram gerðu jafntefli í N1-deild kvenna í dag, 24-24. Fram er nú við hlið Stjörnunnar á toppi deildarinnar en með lakara markahlutfall. Handbolti 18. nóvember 2007 19:23
Afar óvænt tap hjá Stjörnunni Afar óvænt úrslit urðu í N1-deild kvenna í dag er Íslandsmeistarar Stjörnunnar töpuðu sínum fyrsta leik á tímabilinu er liðið lá fyrir FH, 26-25. Handbolti 17. nóvember 2007 17:36
Stjarnan í undanúrslit Stjörnustúlkur tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum Eimskipabikarsins í handbolta þegar þær lögðu Hauka 34-30 í Mýrinni í Garðabæ. Lára Kjærnested skoraði 8 mörk fyrir Stjörnuna líkt og Erna Þráinsdóttir hjá Haukum. Handbolti 15. nóvember 2007 21:16
Nevalirova: Deildin betri en ég bjóst við Pavla Nevalirova, tékkneski línumaðurinn í liði Fram, var að vonum ánægð með að vera útnefnd besti leikmaður umferða 1-9 í N1-deild kvenna. Handbolti 14. nóvember 2007 12:45
Pavla Nevarilova valin best Úrvalslið N1-deildar kvenna fyrir fyrstu níu umferðar var í dag kynnt á blaðamannafundi HSÍ á Hótel Loftleiðum. Handbolti 14. nóvember 2007 12:12
Stjarnan úr leik Kvennalið Stjörnunnar er úr leik í EHF keppninni í handbolta eftir 30-29 tap fyrir franska liðinu Mios í síðari leik liðanna í Mýrinni í Garðabæ. Franska liðið vann fyrri leikinn líka með einu marki. Rakel Dögg Bragadóttir var atkvæðamest hjá Stjörnunni með 12 mörk, þar af 8 úr vítum og Björk Gunnarsdóttir skoraði 6 mörk. Handbolti 11. nóvember 2007 18:08
Grótta sigraði fyrir norðan Tveimur leikjum er lokið í N-1 deild kvenna í handbolta í dag. Grótta og Fylkir unnu þar góða útisigra á Akureyri og HK. Grótta lagði Akureyri 25-18 og Fylkir gerði góða ferð í Digranesið og sigraði HK 31-27. Handbolti 10. nóvember 2007 16:42
Stjarnan á toppnum í N1 deild kvenna Tveir leikir fóru fram í N1 deild kvenna í handbolta í kvöld. Valur vann nauman sigur á Haukum 26-25 í Vodafone höllinni og Stjarnan lagði Gróttu 22-20 á útivelli. Valur og Fram eru jöfn að stigum í 2.-3. sæti deildarinnar með 12 stig, stigi minna en topplið Stjörnunnar. Grótta er svo í fjórða sætinu með 9 stig og Haukar hafa 6 stig í fimmta sætinu. Handbolti 31. október 2007 21:04
Fram á toppinn Framstúlkur skelltu sér á toppinn í N-1 deild kvenna í handbolta í dag með sigri á Val 23-22 í æsilegum leik þar sem Sigurbjörg Jóhannsdóttir skoraði sigurmarkið nokkrum sekúndum áður en flautað var til leiksloka. Þá vann HK auðveldan sigur á Akureyri fyrir norðan 36-26. Handbolti 28. október 2007 18:26
Valur enn á toppnum Valur er enn á toppi N-1 deildar kvenna í handbolta eftir leiki dagsins. Haukar lögðu Fylki í Árbænum 24-18, Grótta og Fram gerðu 21-21 jafntefli á Nesinu og Stjarnan lagði HK 24-18. Handbolti 13. október 2007 19:26
Valur aftur á toppinn Valur tyllti sér aftur á topp N1-deildar kvenna með fimmtán marka sigri á FH í kvöld, 35-20. Handbolti 12. október 2007 21:25
Stjarnan vann Hauka í skrautlegum leik Íslandsmeistarar Stjörnunnar unnu í kvöld Hauka í heldur skrautlegum leik í N1-deild kvenna. Handbolti 10. október 2007 20:53
Júlíus velur landsliðshópinn Júlíus Jónasson kvennalandsliðsþjálfari í handknattleik hefur valið 16 manna hóp sinn fyrir fjóra æfingaleiki liðsins í næstu viku. Leikirnir eru liður í undirbúningi liðsins fyrir forkeppni EM sem hefst í næsta mánuði. Handbolti 10. október 2007 11:27
Afturelding burstaði ÍBV Einn leikur fór fram í N-1 deild karla í handbolta í kvöld og einn í kvennaflokki. Karlalið Aftureldingar burstaði botnlið ÍBV 42-29 eftir að hafa verið 8 mörkum yfir í hálfleik. Í kvennaflokki vann Grótta öruggan sigur á FH 28-21. Grótta er í þriðja sæti deildarinnar en FH í næstneðsta sætinu. Handbolti 5. október 2007 22:03
Öruggt hjá Fram og Val Þrír leikir fóru fram í N1-deild kvenna í kvöld og voru úrslit leikjanna eftir bókinni. Handbolti 26. september 2007 22:33
Reynsluboltarnir í liði Hauka of stór biti fyrir Stjörnuna Bikarmeistarar Hauka unnu verðskuldaðan 26-32 sigur á Íslandsmeisturum Stjörnunnar í Meistarakeppni kvenna í Ásgarði í gær. Leikurinn var ágætlega spilaður og gaf góð fyrirheit fyrir veturinn þó að Íslandsmeistararnir hafi verið nokkuð frá sínu besta. Handbolti 3. september 2007 06:15
Stjarnan kveður Ásgarð Meistarakeppni HSÍ fer fram í kvöld og báðir leikirnir verða spilaðir í Ásgarði í Garðabæ. Konurnar ríða á vaðið klukkan 18 þegar Stjarnan og Haukar mætast en klukkan 20 mætast Stjarnan og Valur í karlaflokki. Handbolti 2. september 2007 10:00
Ekkert kvennalið hjá ÍBV næsta vetur Handknattleiksráð ÍBV sendi frá sér yfirlýsingu í morgun þar sem fram kemur að félagið muni ekki senda kvennalið til keppni á Íslandsmótinu á næsta tímabili. Í yfirlýsingunni kemur fram að félagið hafi skoðað alla möguleika á að senda lið til keppni en staðreyndin sé sú að enginn leikmaður á meistaraflokksaldri verði staddur í Eyjum næsta vetur. Handbolti 30. maí 2007 14:30
Einar tekur við Fram-stelpum Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Fréttablaðsins verður Einar Jónsson næsti þjálfari kvennaliðs Fram. Einar tekur við starfinu af Magnúsi Kára Jónssyni sem mun sjá um þjálfun yngri flokka hjá félaginu. Handbolti 12. maí 2007 13:15
Stjarnan deildarbikarmeistari Íslandsmeistarar Stjörnunnar urðu í dag deildarbikarmeistarar kvenna í handbolta eftir sigur á Gróttu í annari úrslitaviðureignar liðanna á Seltjarnarnesi 25-23. Stjarnan var með þægilegt forskot þegar skammt var til leiksloka en Grótta náði að minnka muninn niður í eitt mark með æsilegum lokaspretti. Rakel Dögg Bragadóttir tryggði svo Stjörnunni sigurinn með marki í lokin. Stjarnan vann einvígið 2-0. Handbolti 5. maí 2007 16:16
Stjarnan burstaði Hauka Tveir leikir fóru fram í undanúrslitum deildarbikarkeppni kvenna í handbolta í kvöld. Stjarnan burstaði Hauka 40-22 í Ásgarði þar sem Sólveig Lára Kjærnested skoraði 9 mörk fyrir Stjörnuna og Kristín Clausen 6, en Ramune Pekarskyte skoraði 10 mörk fyrir Hauka. Þá vann Grótta 23-18 sigur á Val. Liðin mætast að nýju á fimmtudagskvöldið, en tvo sigra þarf til að komast í úrslitarimmuna. Handbolti 24. apríl 2007 21:36
Öruggur sigur hjá Íslandsmeisturunum Nýkrýndir Íslandsmeistarar Stjörnunnar unnu yfirburðasigur á Fram í dag 29-17 í DHL-deild kvenna í handbolta. Kristín Guðmundsdóttir skoraði 8 mörk fyrir Stjörnuna Sólveig Kjærnested 5 og Rakel Bragadóttir 4. Ásta Birna Gunnarsdóttir skoraði 4 mörk fyrir Fram. Valur burstaði Akureyri 33-23 og Grótta vann Hauka 27-21. Handbolti 14. apríl 2007 20:19
HK lagði Hauka Tveir leikir fóru fram í DHL-deild kvenna í handbolta í dag. HK vann góðan sigur á Haukum í Digranesi 29-25 og ÍBV burstaði FH 37-17 í Eyjum. Stjarnan hefur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn og hefur 35 stig á toppnum, Grótta hefur 31 stig í öðru sæti, Valur 28 í þriðja og Haukar 27 í fjórða. Handbolti 31. mars 2007 16:48
Grótta burstaði Val og færði Stjörnunni titilinn Valsstúlkur voru fyrir leikinn í gærkvöld eina liðið í deilidnni sem gat komist upp fyrir Stjörnuna í deildinni þó líkurnar væru afar litlar. En Valsstúlkur steinlágu fyrir Seltirningum í Laugardalshöllinni í gærkvöldi með 9 marka mun, 29-20. Handbolti 31. mars 2007 12:56
Ég var bara kjúklingur fyrir átta árum Anna Bryndís Blöndal getur í dag orðið Íslandsmeistari í handbolta með Stjörnunni í þriðja sinn. Anna er eini leikmaður liðsins í dag sem spilaði með meistaraliðinu 1999 en með sigri á Akureyri í dag verður liðið Íslandsmeistari í fyrsta sinn í 8 ár. Handbolti 31. mars 2007 10:00
Íslandsmeistaratitillinn blasir við Stjörnustúlkum Kvennalið Stjörnunnar er komið með níu fingur á Íslandsmeistaratitilinn í handbolta eftir sannfærandi sigur á Haukum í Hafnarfirði í dag, 32-26 . Stjarnan er nú komin með 35 stig á toppi DHL-deildar kvenna, sex stigum meira en næsta lið, og á titilinn næsta vísan. Handbolti 24. mars 2007 15:27
Stjarnan jók forskotið á toppnum Stjarnan og Grótta skildu jöfn 21-21 í toppslag DHL deildar kvenna í kvöld eftir að Grótta hafði verið þremur mörkum yfir í hálfleik 12-9. Alina Petrache skoraði 6 mörk fyrir Stjörnuna og Rakel Bragadóttir 5. Florentina Grecu varði 23 skot í markinu. Natasha Damljanovic skoraði 6 mörk fyrir Gróttu og Íris Björk Símonardóttir varði 18 skot í markinu. Handbolti 20. mars 2007 21:42