Fylkir vann Gróttu í botnslagnum Sunna Jónsdóttir skoraði ellefu mörk í 31-25 sigri Fylkis á Gróttu í botnslag N1 deildar kvenna í Fylkishöllinni í kvöld. Sigurinn dugði þó ekki Fylki til að komast upp úr neðsta sætinu því Grótta hefur einu stigi meira. Handbolti 27. mars 2009 22:47
N1-deild kvenna: Sigrar hjá toppliðunum Toppliðin Haukar og Stjarnan unnu bæði leiki sína í N1-deild kvenna í dag. Haukastúlkur halda þar með tveggja stiga forskoti á toppi deildarinnar. Handbolti 21. mars 2009 20:08
Fjórir leikir í kvennahandboltanum Fjórir leikir fara fram í N1-deild kvenna í dag. Stórleikur dagsins fer fram í Safamýrinni þar sem Framstelpur taka á móti Haukum. Sá leikur hefst klukkan 13.00. Handbolti 21. mars 2009 11:51
Víti Hönnu í leikslok tryggði Haukum stig Hanna Guðrún Stefánsdóttir tryggði Haukunm 30-30 jafntefli á móti Val í N1 deild kvenna í handbolta á Ásvöllum í dag. Þetta var tíunda mark Hönnu í leiknum en hún skoraði það úr vítakasti í lok leiksins. Handbolti 14. mars 2009 18:26
Arna Sif með þrettán mörk í sigri HK á Gróttu Arna Sif Pálsdóttir skoraði 13 mörk fyrir HK í 35-30 útisigri á Fylki í N1 deild kvenna í dag. HK var 20-14 yfir í hálfleik. Arna Sif skoraði aðeins tvö af þrettán mörkum sínum úr vítaköstum. Handbolti 14. mars 2009 15:24
Lítum á þetta sem hnífjafnan leik Kristín Clausen, fyrirliði Stjörnunnar, segir sitt lið verða að bæta varnarleikinn ef það eigi að leggja FH að velli í bikarúrslitaleiknum í dag. Handbolti 28. febrúar 2009 13:15
Ætlum ekkert að leggjast niður og gefast upp Guðmundur Karlsson þjálfari kvennaliðs FH segir Stjörnuliðið hafa á að skipa tveimur af bestu leikmönnum deildarinnar og þá verði að stöðva ef FH ætli að eiga möguleika á bikarnum í dag. Handbolti 28. febrúar 2009 12:30
Hugarfarið er það sem skiptir máli "Maður er í þessu til að spila svona leiki og þetta verður ekkert skemmtilegra en þetta," sagði Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir, fyrirliði FH, um úrslitaleikinn í Eimskipsbikar kvenna á morgun. Handbolti 27. febrúar 2009 15:00
Úrslitaleikurinn í körfunni er víti til varnaðar Atli Hilmarsson þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar lætur sig það litlu varða þó lið hans sé talið sigurstranglegra í úrslitaleik Eimskipabikarsins á morgun. Handbolti 27. febrúar 2009 14:45
Júlíus valdi tvær Sunnur úr Fylki í landsliðið Júlíus Jónasson landsliðsþjálfari kvenna í handbolta hefur valið 19 manna hóp sem æfir hér á landi vikuna 2. til 8. mars. Handbolti 26. febrúar 2009 11:53
Þorgerður úr leik hjá Stjörnunni Þorgerður Anna Atladóttir verður fjarri góðu gamni í úrslitaleik Stjörnunnar og FH í Eimskipsbikarnum á laugardaginn. Handbolti 25. febrúar 2009 13:53
Valur lagði Stjörnuna Þrír leikir fóru fram í N1 deild kvenna í handbolta í dag. Valur vann góðan sigur á Íslandsmeisturum Stjörnunnar í Vodafonehöllinni 29-27 eftir að hafa verið yfir 15-14 í hálfleik. Handbolti 21. febrúar 2009 18:45
Hanna með sautján í stórsigri Hauka Hanna G. Stefánsdóttir skoraði sautján mörk fyrir Hauka sem vann stóran sigur á Fylki í N1-deild kvenna í kvöld, 42-26. Handbolti 20. febrúar 2009 21:31
Dómararnir gerðu rétt í að reka Ramune útaf Dómaranefnd HSÍ segir í yfirlýsingu á heimasíðu HSÍ að dómarar leiks Stjörnunnar og Hauka í N1 deild kvenna á dögunum, Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson, hafi gert rétt í að gefa Haukakonunni Ramune Pekarskyte rautt spjald í leiknum. Handbolti 17. febrúar 2009 15:54
Valsstúlkur burstuðu Gróttu Valsstúlkur áttu ekki í erfiðleikum með lið Gróttu í N1-deild kvenna. Valur vann sigur 39-13 eftir að hafa verið átta mörkum yfir í hálfleik. Handbolti 9. febrúar 2009 23:59
Haukar upp fyrir Stjörnuna Lið Hauka komst í dag á toppinn í N1 deild kvenna í handbolta með 30-27 sigri á Stjörnunni í uppgjöri toppliðanna í Mýrinni. Handbolti 7. febrúar 2009 17:49
Stórsigur Vals á HK Þriðja og síðasta leik dagsins í N1-deild kvenna lauk með þrettán marka stórsigri Vals á HK eftir að munurinn var ekki nema þrjú mörk í hálfleik, 17-14, Val í vil. Handbolti 31. janúar 2009 18:34
Fram vann FH á heimavelli Fram vann í dag fimm marka sigur á FH, 34-29, í N1-deild kvenna í Safamýrinni. Handbolti 31. janúar 2009 15:17
Hanna með stórleik í sigri Hauka Kvennalið Hauka komst í kvöld á toppinn í N1 deildinni í handbolta með öruggum 34-25 sigri á Gróttu í Hafnarfirði. Hanna G. Stefánsdóttir fór hamförum í liði Hauka og skoraði 13 mörk, en Elsa Óðinsdóttir skoraði 11 mörk fyrir gestina. Handbolti 30. janúar 2009 20:49
Stjörnustúlkur á toppinn Stjarnan komst í kvöld í efsta sæti N1-deildar kvenna í handbolta þegar liðið vann útisigur á Val 23-17. Stjarnan er með 26 stig eftir 14 leiki og er stigi á undan Haukastúlkum sem eru í öðru sæti. Handbolti 27. janúar 2009 21:05
Óbreytt staða á toppnum í N1 deild kvenna Kvennalið Hauka heldur toppsætinu í N1 deild kvenna eftir leiki dagsins en toppliðin fjögur höfðu öll sigra í 14. umferðinni í dag. Handbolti 24. janúar 2009 19:25
Haukar og Stjarnan mætast í undanúrslitum Í hádeginu var dregið í undanúrslitin í Eimskipabikar kvenna í handbolta. KA/Þór tekur á móti FH og í hinni undanúrslitaviðureigninni eigast við Haukar og Stjarnan. Leikirnir fara fram dagana 14. og 15. næsta mánaðar. Handbolti 23. janúar 2009 13:46
Fram nældi í stig gegn toppliði Hauka Þrír leikir fóru fram í N1-deild kvenna í dag þar sem hæst bar jafntefli Fram og toppliðs Hauka í Safamýrinni. Haukar hafa nú eins stigs forystu á Stjörnuna sem vann sigur á FH í dag. Handbolti 17. janúar 2009 18:02
Valur burstaði Gróttu Einn leikur var í N1 deild kvenna í handbolta í kvöld. Valur vann stórsigur á Gróttu 39-20 eftir að hafa verið yfir í hálfleik 20-8. Dagný Skúladóttir gerði 9 mörk fyrir Val og Hrafnhildur Skúladóttir 8, en Ragnar Sigurðardóttir skoraði 5 mörk fyrir Gróttu. Handbolti 15. janúar 2009 21:11
Öruggur sigur Stjörnustúlkna Stjarnan vann öruggan útisigur á Fram í frestuðum leik í N1-deild kvenna sem fram fór í kvöld. Úrslitin urðu 23-33 en Garðabæjarliðið hafði leikinn í sínum höndum frá upphafi til enda. Handbolti 13. janúar 2009 20:51
Fram lagði FH Þrír leikir fóru fram í N1 deild kvenna í handbolta í dag. Fram lagði FH 28-24 í Hafnarfirði þar sem Hildur Knútsdóttir skoraði 8 mörk fyrir Fram og Sigurbjörg Jóhannsdóttir 5. Handbolti 10. janúar 2009 18:27
Haukasigur gegn Val Haukar vann sigur á Val í eina leik kvöldsins í N1-deild kvenna, 29-26. Staðan í hálfleik var 15-14, Val í vil. Handbolti 9. janúar 2009 20:50
Stjarnan deildabikarmeistari Stjarnan varð í dag deildabikarmeistari kvenna í handbolta eftir 28-27 sigur á Haukum í æsispennandi úrslitaleik. Handbolti 28. desember 2008 16:15
Valur og Stjarnan mætast í 8-liða úrslitum Í dag var dregið í 8-liða úrslitin í Eimskipabikar kvenna í handbolta. Leikirnir fara fram dagana 20. og 21. janúar. Handbolti 28. desember 2008 15:05
Stjarnan og Haukar leika til úrslita Það verða Stjarnan og Haukar sem leika til úrslita í deildabikar kvenna í handbolta á morgun. Handbolti 27. desember 2008 16:13
Uppgjörið: Haukar - Hazena Kynzvart 27-22 | Frækin framganga Hauka dugði því miður ekki til Handbolti