Ósamræmi í lögum því sjávarútvegur sker sig frá öðrum greinum Fiskistofustjóri segir ósamræmi í löggjöf milli atvinnugreina um skilgreiningu á tengdum aðilum. Fyrirtæki teljast ráðandi aðilar með mun lægra eignarhlutfall í flestum öðrum greinum en í sjávarútvegi. Viðskipti innlent 13. júlí 2022 19:08
Björn Zoëga formaður nýrrar stjórnar Landspítala Heilbrigðisráðherra hefur skipað nýja stjórn Landspítala til tveggja ára en stjórnin er skipuð af fimm einstaklingum í senn. Björn Zoëga, forstjóri Karólínska sjúkrahússins í Svíþjóð, verður formaður stjórnarinnar. Innlent 13. júlí 2022 17:29
Heiða Björg býður sig fram til formennsku í Sambandi íslenskra sveitarfélaga Heiða Björg Hilmisdóttir hefur tilkynnt framboð sitt til formennsku í Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Hún hefur verið varaformaður sambandsins síðastliðin fjögur ár. Innlent 13. júlí 2022 15:35
Rósa Guðbjarts býður sig fram í formann Sambands íslenskra sveitarfélaga Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnafjarðar, hefur gefið kost á sér til formennsku í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Nýr formaður sambandsins verður kjörinn í ágúst næstkomandi. Innlent 13. júlí 2022 13:18
„Við erum að færa stórútgerðinni sem malar gull auðlindina okkar á silfurfati“ Formaður þingflokks Samfylkingarinnar segir kaup Síldarvinnslunnar á Vísi í Grindavík enn á ný sýna að verið sé að færa útgerðinni auðlindir hafsins á silfurfati. Löngu tímabært sé að gera breytingar á lögum um stjórn fiskveiða. Þau búi til elítu í landinu úr tengslum við almenning. Innlent 13. júlí 2022 12:08
Misráðnu ríkisútgjöldin sem aldrei urðu Himinn og haf skilja að ástandið á vinnumarkaðinum í dag og það sem var í byrjun árs 2021. Samkvæmt mælingu Vinnumálastofnunar í júní mældist atvinnuleysi einungis 3,3 prósent en til samanburðar nam það 11,6 prósentum í janúar á síðasta ári. Atvinnustig hefur til allrar hamingju batnað mun hraðar en nokkurn gat órað fyrir þegar hagkerfið var í djúpri lægð. Klinkið 13. júlí 2022 10:01
Af fæðingarhreppum og Kúbu norðursins Í nýjasta tölublaði Vísbendingar (26. tbl.) er að finna grein eftir Dr. Gylfa Magnússon, prófessor og fyrrverandi ráðherra, um samsetningu þjóðarinnar og fleira því tengt. Samkvæmt opinberum tölum Hagstofu Íslands voru íbúar hér á landi 368.792 þann 1. janúar 2021. Þar af voru 51.333 erlendir ríkisborgarar. Gylfi gerir að umfjöllunarefni að þau sem hafa erlent ríkisfang séu útilokuð frá þátttöku í stjórnmálum á landsvísu. Skoðun 13. júlí 2022 09:10
Frelsi á Alþingi Frelsið á sér of fáa málsvara í samfélaginu í dag. Kannski er það vegna þess að við njótum þess að miklu leyti og teljum okkur ekki þurfa að hafa af því áhyggjur – en ef við pössum ekki stöðugt upp á frelsið getur það hæglega orðið hinni alræmdu salamiaðferð aðferð að bráð, þar sem sneitt er af því smám saman. „Hvað með börnin?“ er auðvitað þekkt stef. En lýðheilsuna? Öryggið? Skoðun 13. júlí 2022 07:01
Hægt verði með samstilltu átaki að lyfta grettistaki í að gera húsnæði öruggara Innviðaráðherra segir ríki og sveitarfélög geta lyft grettistaki á húsnæðismarkaði með nýjum rammasamningi. Í fyrsta sinn hafi samkomulag verið gert milli ríkis og sveitarfélaga þar sem hægt sé að leita sameiginlegra lausna en byggja þurfi tugþúsundir íbúða næsta áratuginn. Innlent 12. júlí 2022 21:40
Samherji á nú aðild að fimmtungi heildarkvótans Með kaupum Síldarvinnslunnar á Vísi á Samherji aðild að fimmtungi heildarveiðiheimilda í landinu sem er verulega yfir lögbundnum viðmiðum. Forsætisráðherra hefur áhyggjur af samþjöppun í sjávarútvegi, tilfærslu veiðiheimilda og auðssöfnun fárra í greininni. Innlent 12. júlí 2022 19:00
35 þúsund nýjar íbúðir til að skapa jafnvægi á markaði Ríki og sveitarfélög ætla sér að byggja 35 þúsund nýjar íbúðir á næstu tíu árum og var ammasamningur um það markmið undirritaður í dag. Íbúðunum er ætlað að mæta fyrirsjáanlegri íbúðaþörf og skapa langþráð jafnvægi á húsnæðismarkaði. Innlent 12. júlí 2022 14:23
„Þetta er grundvallarástæðan fyrir því að svo margir eru ósáttir við kvótakerfið“ Forsætisráðherra hefur áhyggjur af samþjöppun í sjávarútvegi í ljósi kaupa Síldarvinnslunnar á Vísi í Grindavík. Kaupin sýni hvernig gríðarlegur auður getur safnast á fárra manna hendur vegna kerfis sem var búið til fyrir tugum ára. Fjármálaráðherra segir að sameiningar í sjávarútvegi hafi reynst þjóðarbúinu vel. Innlent 12. júlí 2022 13:01
Sveitarstjóri fái að fara suður aðra hverja viku Ólafur Þór Ólafsson, sveitarstjóri á Tálknafirði hefur leyfi sveitarstjórnar til að fara suður aðra hverja viku og vinna þaðan þegar verkefni sveitarfélagsins krefjast ekki staðsetningar hans á staðnum. Í ráðningarsamningi er ekkert kveðið á um þetta en oddviti sveitarfélagsins segir þetta hluta af stefnu um fjölskylduvæna atvinnustarfsemi. Innlent 12. júlí 2022 10:50
Blendnar tilfinningar og gríðarlegir hagsmunir í húfi Forseti bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar segist hafa blendnar tilfinningar um kaup Síldarvinnslunnar á sjávarútvegsfyrirtækinu Vísir. Alls starfa 230 íbúar Grindavíkur hjá fyrirtækinu. Innlent 11. júlí 2022 21:42
Sveitarstjóri Dalabyggðar með tæplega 1,7 milljón króna í mánaðarlaun Björn Bjarki Þorsteinsson var í dag ráðinn sveitarstjóri Dalabyggðar en hann fær 1,675 milljón króna í mánaðarlaun auk ökutækjastyrks sem nemur 127 þúsundum króna. Ellefu umsóknir um stöðuna bárust en þeim var öllum hafnað og var Björn Bjarki ráðinn í staðinn. Innlent 11. júlí 2022 19:28
Ein og hálf milljón króna á mánuði fyrir að stýra 255 manna hreppi Ólafur Þór Ólafsson, sveitarstjóri Tálknafjarðar, fær 1,55 milljón króna í mánaðarlaun samkvæmt nýgerðum ráðningarsamningi. Hann fær einnig 400 kílómetra akstursstyrk og sveitarfélagið greiðir fyrir hann bæði síma og net. Innlent 11. júlí 2022 15:03
Hvert barn fær um 3,3 milljarða í sinn hlut fyrir Vísi Síldarvinnslan í Neskaupsstað hefur keypt allt hlutafé í sjávarútvegsfyrirtækinu Vísi í Grindavík. Kaupverðið er tuttugu milljarðar króna og yfirtekin lán ellefu milljarðar króna. Eigendur Vísis fá sex milljarða greitt í reiðufé og eignast átta prósenta hlut í Síldarvinnslunni Innlent 11. júlí 2022 13:17
Ráðherra í stríð við strandveiðar Fyrirhugaðar breytingar sjávarútvegsráðherra um að taka upp svæðaskiptingu á kvóta strandveiðanna á nýjan leik er atlaga að brothættum sjávarbyggðum landsins. Skoðun 11. júlí 2022 11:01
Regína verður bæjarstjóri Mosfellsbæjar Regína Ásvaldsdóttir hefur verið ráðin bæjarstjóri í Mosfellsbæ. Hún mun gegna starfinu til 2026 en hún er fyrir sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og hefur unnið þar í fimm ár. Fyrir það var hún bæjarstjóri Akraneskaupstaðar. Innlent 11. júlí 2022 10:26
Löng og ströng bið eftir heilbrigðisþjónustu? Embætti landlæknis hefur sett ákveðin viðmiðunarmörk um hvað getur talist ásættanleg bið eftir heilbrigðisþjónustu, en mörkin eru sett með hliðsjón af markmiðum í nágrannalöndum okkar varðandi aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Skoðun 11. júlí 2022 07:01
„Netverslun með áfengi er smásala áfengis“ Þingmaður Flokks fólksins segir vefverslun með áfengi vera skýrt brot á áfengislögum. Hann ræddi málið við þingmann Sjálfstæðisflokksins, sem segist ekki deila þeirri skoðun með honum, í Sprengisandi í morgun. Viðskipti innlent 10. júlí 2022 15:48
Inga Sæland segir sjávarútvegsráðherra gera mikla vinnu að engu Formaður Flokks fólksins segir áform sjávarútsvegráðherra um að leggja fram frumvarp um að taka upp svæðaskiptingu á kvóta strandveiða vera atlögu að sjávarbyggðum landsins. Með slíkri lagasetninga yrði vinna síðasta kjörtímabils að meira jafnvægi í sjávarútvegi gerð að engu. Innlent 9. júlí 2022 21:30
Flutti ræðu á ráðstefnu í Oxford-háskóla Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í gær lokaræðu á ráðstefnu um rannsóknir og stefnumótun á sviði velsældar. Ráðstefnan fór fram í hinum virta Oxford-háskóla í Bretlandi. Innlent 9. júlí 2022 14:57
Segja ólíklegt að ríkisstjórnin geti leitt nauðsynlega orkuöflun Forsvarsmenn Viðreisnar segja ólíklegt að núverandi ríkisstjórn geti haft forystu um þá orkuöflun sem þörf er talin á til að ná fullum orkuskiptum fyrir 2040. Umhverfis, orku og loftslagsráðherra þurfi að gera nánari grein fyrir orkuöflunaráformum. Innlent 8. júlí 2022 20:14
„Pútín mun ekki gráta það að hann sé farinn“ Rishi Sunak fyrrverandi fjármálaráðherra Bretlands lýsti því yfir í dag að hann sæktist eftir að verða næsti leiðtogi Íhaldsflokksins og þar með forsætisráðherra. Guðlaugur Þór Þórðarson, sem þekkir vel til innan Íhaldsflokksins, telur líklegt að annað hvort Sunak eða Liz Truss utanríkisráðherra hafi sigur í leiðtogakjöri. Innlent 8. júlí 2022 18:01
Ætla að mæta með leikskólalaus börn á fundi borgarstjórnar Fögur fyrirheit borgarstjórnar, um að öll börn tólf mánaða og eldri fái leikskólapláss í haust, virðast ekki ætla að ganga eftir. Foreldrar eru langþreyttir á ástandinu og hóta því að mæta með börn sín á áhorfendapalla Ráðhússins á næsta fund borgarstjórnar. Innlent 8. júlí 2022 14:49
Jöfn tækifæri til strandveiða Síðan strandveiðum var komið á af ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna árið 2009 hafa markmiðin verið sú að opna á takmarkaðar veiðar fyrir þá aðila sem ekki hafa aðgöngumiða, yfirráð yfir aflamarki eða krókaflamarki. Skoðun 8. júlí 2022 14:01
Ellefu sóttu um stöðu sveitarstjóra Skaftárhrepps Ellefu einstaklingar, níu karlar og tvær konur, sóttu um stöðu sveitarstjóra Skaftárhrepps. Meðal þeirra eru tveir fyrrverandi þingmenn, Karl Gauti Hjaltason og Vigdís Hauksdóttir. Innlent 8. júlí 2022 13:08
Leggur til að einkaþotur hætti að fljúga um Reykjavíkurflugvöll Borgarfulltrúi Vinstri grænna vill að einkaþotur hætti að fljúga um Reykjavíkurflugvöll og lagði fram tillögu þess efnis í borgarráði í gær. Hún telur að tillagan fái ágætan hljómgrunn innan borgarstjórnar og er einnig bjartsýn á afstöðu samgönguyfirvalda. Innlent 8. júlí 2022 11:29
Katrín nýr sveitarstjóri í Norðurþingi Katrín Sigurjónsdóttir hefur verið ráðin í starf sveitarstjóra Norðurþings. Alls voru sautján sem sóttu um stöðuna. Innlent 8. júlí 2022 09:02