Extreme Chill í fjórða sinn Íslenska raftónlistarhátíðin Extreme Chill Festival – Undir jökli verður haldin í fjórða sinn helgina 12.-14. júlí á Hellissandi við rætur Snæfellsjökuls. Í ár koma um tuttugu íslenskir tónlistarmenn fram, auk fjögurra erlendra tónlistarmanna. Tónlist 30. apríl 2013 13:00
Emilíana mætt til Íslands með nýju plötuna Emilíana Torrini er komin til landsins og er með eintak af væntanlegri plötu sinni í farteskinu. Tónlist 22. apríl 2013 13:30
Plötusalan aukaatriði Marcus Mumford úr hljómsveitinni vinsælu Mumford & Sons segir að plötusala skipti sveitina ekkert alltof miklu máli. „Við höfum beðið umboðsmanninn okkar um að láta okkur ekki vita hvernig plötusalan gengur. Við vitum vel hvernig miðasalan er á tónleikana okkar, vegna þess að við elskum að spila á tónleikum. Plötusala skiptir okkur í raun minna máli,“ sagði Mumford en plötur sveitarinnar hafa selst í milljónum eintaka. Tónlist 20. apríl 2013 11:00
Svona hljómar Ásgeir Trausti á ensku Hlustaðu á Ásgeir Trausta syngja lagið Heimförin á ensku í meðfylgjandi myndskeiði. Tónlist 19. apríl 2013 16:00
Nýdönsk með árlega tónleika "Eftir 25 ára afmælistónleikana í fyrra helltist yfir okkur löngun til að gera þetta aftur að ári. Þetta var svo einstök upplifun“, segir Jón Ólafsson, meðlimur í hljómsveitinni Nýdönsk. Hljómsveitin hefur nú ákveðið að blása til tónleika í Eldborgarsal Hörpunnar 21. september og er stefnan að stórtónleikar með sveitinni verði árlegur viðburður héðan í frá. Tónlist 18. apríl 2013 13:00
Forsala hafin á Sónar Í dag hefst forsala á tónlistarhátíðina Sónar Reykjavík sem fer fram dagana 13. til 15. febrúar 2014 í Hörpu. Takmarkað magn miða verður í sölu á sérstöku verði, en þriggja daga miðar verða á 12.900. Fullt verð á hátíðina er 16.900 fyrir alla þrjá dagana. Hátíðin vakti mikla lukku er hún var haldin í fyrsta sinn hér á landi í byrjun árs. Icelandair hefur hafið sölu á sérstökum pakkaferðum á hátíðina. Fyrstu listamennirnir verða kynntir í maí en umfang hátíðarinnar verður stærra en síðast þar sem spilað verður á sex sviðum í Hörpu. Tónlist 18. apríl 2013 12:00
Fleiri erlendir listamenn boða komu sína Það styttist í tónleikahátíðina Keflavík Music Festival sem verður haldin 7.-10. júní. Hefur nú verið greint frá komu þriggja erlendra atriða í viðbót. Tónlist 18. apríl 2013 12:00
Þjálfari með útvarpsþætti um íslenska tónlist "Ég er algert tónlistarnörd, þetta kemur í staðinn fyrir golfið hjá mér,“ segir Gunnlaugur Jónsson knattspyrnuþjálfari, sem síðustu mánuði hefur verið að undirbúa útvarpsþætti um íslenska tónlist sem nefnast Árið er… íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Tónlist 18. apríl 2013 09:00
Engill alheimsins - Nýtt lag og myndband frá Hjaltalín Vísir frumsýnir hér myndband við nýtt lag Hjaltalín úr leiksýningunni Englar alheimsins, sem verður frumsýnd í Þjóðleikhúsinu á laugardag. Tónlist 16. apríl 2013 17:30
„Djassgeggjarinn getur verið heima hjá sér“ Dr. Gunni losar sig við fimm metra af vínylplötum á kjördag. Tónlist 16. apríl 2013 16:10
Íslendingar bætast í hóp Spotify-notenda Ein fremsta tónlistarveita heims, Spotify, hefur starfsemi á Íslandi í dag. Tónlistarveitan býður tónlistarunnendum upp á einfalda leið til að hlusta á tónlist, án þess að greiða nokkuð fyrir. Tónlist 16. apríl 2013 07:00
Naut liðsinnis systra sinna við upptökur Ólöf Arnalds gaf nýverið út plötuna Sudden Elevation. Systur hennar, Dagný og Klara, aðstoðuðu hana við upptökur sem fóru fram í jakútískum sumarbústað. Tónlist 15. apríl 2013 15:00
Hefur lengi dreymt um þennan samning Dísa Jakobsdóttir vekur athygli með nýju lagi sínu, Sun. Lagið er innblásið af LoveStar eftir Andra Snæ Magnason. Dísa skrifaði nýlega undir samning við danska útgáfufyrirtækið Tigerspring, þar sem hennar uppáhaldssveitir eru fyrir. Tónlist 13. apríl 2013 07:00
Partístemning á Faktorý Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir kemur fram á styrktartónleikum fyrir Regnbogabörn. Tónlist 12. apríl 2013 07:00
Skálmöld á Þjóðhátíð í Eyjum Þungarokkssveitin spilar í fyrsta sinn á Þjóðhátíð. Meðlimir óþarflega spenntir. Tónlist 12. apríl 2013 07:00
Plata sem fjallar mest um ástina Listakonan Berglind Ágústsdóttir sendir frá sér sínu fjórðu plötu, I am your girl. Tónlist 11. apríl 2013 07:00
Zola Jesus á Airwaves Fjöldi listamanna hefur bæst við tónlistarhátíðina Iceland Airwaves sem verður haldin í fimmtánda sinn í haust. Tónlist 10. apríl 2013 14:15
XXX Rottweiler snýr aftur með nýja plötu Rappsveitin XXX Rottweiler er að undirbúa sína fyrstu plötu í rúman áratug. Tónlist 10. apríl 2013 12:00
Gangnam Style-goðið semur nýjan dans Suður-kóreski rapparinn Psy kynnir nýtt lag, Gentleman, innan tíðar en Psy er þekktastur fyrir YouTube-megasmellinn Gangnam Style. Tónlist 9. apríl 2013 13:00
Samaris samdi við One Little Indian Raftríóið bætist í hóp íslenskra flytjenda sem hafa samið við bresku útgáfuna. Tónlist 9. apríl 2013 12:00
Geirfinnsmálið hefði getað eyðilagt ferilinn Bubbi Morthens talaði opinskátt um Guðmundar- og Geirfinnsmálin í tónleikaferð árið 1983 en fékk slæm viðbrögð. Hann hefur nú samið lag um málin. Tónlist 8. apríl 2013 16:00
Sigraði í karókíkeppni háskólanna Kristín Inga Jónsdóttir sigraði í karókíkeppni og í verðlaun hlaut hún ferð fyrir þrjá á Eurovision í Malmö. Tónlist 8. apríl 2013 13:45
Fyrsta platan tilbúin Fyrsta plata Robert the Roommate, sem er samnefnd hljómsveitinni, kemur út í dag. Öll lögin eru frumsamin og má helst lýsa tónlistinni sem þjóðlagaskotinni popp- og rokktónlist undir áhrifum frá Led Zeppelin, Fleet Foxes og fleiri böndum. Tónlist 5. apríl 2013 14:00
Tribute-tónleikar nýjasta æðið á Íslandi "Þessi tribute kvöld hafa alveg slegið í gegn hjá okkur og hafa verið þau mest sóttu að undanförnu, fyrir utan stærstu nöfnin í tónlistinni í dag. Skálmöld fyllir auðvitað alltaf húsið og Retro Stefson líka, til að nefna dæmi, en þessi kvöld hafa oft komist mjög nálægt þeim í aðsóknartölum,“ segir Eiríkur Rósberg Eiríksson á Gamla Gauknum. Tónlist 5. apríl 2013 13:30
Lára Rúnars á nýrri tónleikaröð í kvöld Lára hefur verið á fullu að undanförnu og gaf til að mynda út sína fjórðu breiðskífu, Moment, í haust. Tónlist 5. apríl 2013 12:00
Jakobínarínumenn snúa aftur Fyrrum meðlimir Jakobínarínu hafa stofnað nýja hljómsveit, Grísalappalísu. Hér er hægt að heyra fyrsta lag sveitarinnar, Lóan er komin. Tónlist 5. apríl 2013 10:30
Engar málamiðlanir Sænski elektródúettinn The Knife gefur út sína fyrstu plötu í sjö ár, Shaking the Habitual, eftir helgi. Tónlistaráhugamenn hafa margir hverjir beðið hennar með mikilli eftirvæntingu, enda hlaut sú síðasta, Silent Shout, frábæra dóma og vefsíðan Pitchfork setti hana í efsta sæti yfir plötur ársins 2006. Tónlist 4. apríl 2013 19:00
Sólþurrkuð sixtísáhrif Eitt af því sem Hróarskeldufarar þessa árs verða sviknir um eru tónleikar með Kaliforníu-dúóinu Foxygen og líklegt að einhver hluti téðs tónlistaráhugafólks hafi rekið upp harmakvein þegar eftirfarandi fréttatilkynning barst frá bandinu í vikunni. Tónlist 4. apríl 2013 15:00