„Það er ekkert ólíklegt að þessi Sundhnúkssyrpa sé að koma að endalokum“ Eldfjallafræðingur telur að ef það gýs á næstunni á Sundhnúksgígaröðinni verði það líklega eitt síðasta eldgosið þar í bili. Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram. Staðan er nú orðin svipuð og hún var fyrir síðasta eldgos. 12.2.2025 15:22
„Kryddpíur“ í formlegt samtal Fimm stjórnmálaflokkar hafa ákveðið að hefja formlegar viðræður um samstarf í borgarstjórn Reykjavíkur. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna, sendir fyrir hönd oddvita VG, Sósíalista, Pírata, Samfylkingar og Flokks fólksins. Ekkert hefur verið rætt um það enn hver yrði mögulegt borgarstjóraefni. 12.2.2025 14:58
Ríki og framhaldsskólakennarar funda á morgun Samninganefndir ríkisins og framhaldsskólakennara funda á morgun hjá ríkissáttasemjara klukkan 11. Ekki hefur verið boðað til fundar hjá samninganefnd sveitarfélaga og grunn- og leikskóla frá því að slitnaði upp úr viðræðum í gær. 11.2.2025 21:01
Gos geti hafist hvenær sem er Áfram er hætta á eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni þar sem landris og kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram. Talið er að tímabilið þar sem hættan á eldgosi eykst geti staðið yfir í allt að mánuð eða jafnvel lengur. 11.2.2025 15:06
Tré felld svo hægt sé að opna flugbraut á ný Vinna við að fella fjörutíu til fimmtíu tré í Öskjuhlíðinni hófst í dag. Vonast er til að með þessu verði hægt að opna flugbraut Reykjavíkurflugvallar aftur. Henni var lokað þar sem hæð trjánna þótti ógna öryggi flugfarþega. 11.2.2025 14:36
Kæmi ekki á óvart ef drægi til tíðinda í dag Heiða Björg Hilmisdóttir oddviti Samfylkingarinnar vonast til að línur fari að skýrast í myndun nýs meirihluta í borginni og að jafnvel geti dregið til tíðinda í dag. Hún hefur rætt við oddvita allra flokka nema Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Hún segir borgarfulltrúa skulda borgarbúum það að ganga hratt til verks. 11.2.2025 12:32
Óvíst hversu langan tíma myndun meirihluta tekur Óvíst er hversu langan tíma tekur að mynda nýjan meirihluta í borginni en miklar þreifingar hafa átt sér stað á milli flokkanna þó engar formlegar viðræður séu enn hafnar. 10.2.2025 12:50
Fólk að „gambla“ með líf sitt ef það kaupir svona lyf Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar andlát karlmanns um fertugt en grunur leikur að dauða hans megi rekja til hættulegra falskvíðalyfja sem eru í umferð. Aðstoðaryfirlögregluþjón segir sölu ólöglegra lyfja hafa aukist og varar fólk við að taka þau. 28.1.2025 19:04
Hótanir Trumps eigi ekki að líðast í lýðræðissamfélagi Íslenskur þingmaður í Vestnorræna ráðinu, sem er samstarfsráð Íslands, Færeyja og Grænlands, segir að taka þurfi hótanir Donalds Trump Bandaríkjaforseta gagnvart Grænlandi alvarlega. Ráðið hefur sent frá sér ályktun þar sem lýst er yfir fullum stuðningi við Grænland. 28.1.2025 12:24
Telur efasemdir íbúa vegna áforma Carbfix eðlilegar Stjórnendur Carbfix vilja reisa kolefnisförgunarstöð í Ölfusi svipaða þeirri sem til stendur að byggja í Straumsvík. Íbúafundur vegna málsins fór fram í Ölfusi í kvöld. Bæjarfulltrúi segir efasemdir íbúa eiga við rök að styðjast. 27.1.2025 21:53