

Klippari
Máni Snær Þorláksson
Nýjustu greinar eftir höfund

Fékk hjálp úr óvæntri átt í miðjum skilnaði
Leikkonan Natalie Portman skildi við leikstjórann og danshöfundinn Benjamin Millepied í mars á þessu ári. Hún segir að tónlistar- og athafnakonan Rihanna hafi hjálpað henni í skilnaðinum þegar þær hittust í upphafi árs.

Lengi lifir í gömlum glæðum
Bandaríska söngkonan Camila Cabello og kanadíski söngvarinn Shawn Mendes sáust sitja saman á úrslitaleik Copa America í Flórída um helgina. Þau hafa tvisvar byrjað og hætt aftur saman á síðustu árum en það er spurning hvort allt sé þá þrennt er.

Hefur ekki hitt öll 26 systkini sín
Bandaríska leik- og söngkonan Jennifer Hudson dreymir um matarboð með allri fjölskyldunni sinni. Hún á þó ennþá eftir að hitta öll systkini sín en þau eru tuttugu og sex talsins. Matarboðið gæti því orðið ansi fjölmennt.

Danadrottning klæddi af sér kuldann með íslenskri hönnun
Dönsku konungshjónin sendu í dag kveðju á grænlensku þjóðina í tilefni þjóðhátíðardags Grænlands sem haldinn er hátíðlegur í dag. Með kveðjunni fylgdu myndir af konungshjónunum sem teknar voru á Grænlandi. Þar klæddist María Danadrottning íslenskri hönnun.

Tuttugu og sex pör „ganga í það óheilaga“ á einu bretti
Tuttugu og sex pör munu ganga í hjónaband á einu bretti í Ráðhúsinu í Reykjavík í dag. Veraldlega lífskoðunarfélagið Siðmennt sér um hjónavígslurnar sem eru ókeypis í tilefni alþjóðlegs dags húmanista sem fagnað er á sumarsólstöðum.

Ekki fyrir þá miklu athygli sem fylgir hjónabandinu
Bandaríski leikarinn Ben Affleck segist vera feiminn og að honum líði betur fyrir aftan myndavélina. Hann sé ekki fyrir mikla athygli, nóg sé þó búið að vera af henni síðan hann giftist Jennifer Lopez.

Beðnir um að loka gluggum vegna býflugna í milljónatali
Fimm milljónir býflugna sluppu úr búrum sínum í gær þegar bíll sem var að flytja þær rann til á veginum í kanadísku borginni Burlington. Bílstjórar voru beðnir um að loka gluggum sínum og gangandi vegfarendur voru varaðir við.

„Hvaða ráðherra notar símaveski?“
Ráðherrar lögðu síma sína til hliðar áður en ríkisstjórnarfundur hófst á Egilsstöðum í dag. Mynd af símunum vakti nokkra athygli á samfélagsmiðlum í dag. Upp spratt umræða um hvaða ráðherrar ættu hvaða síma.

Áttaði sig á því að börnin höfðu ekki fengið sömu upplifanir
Haraldur Þorleifsson, athafnamaður og forsprakki verkefnisins Römpum upp Ísland, vígði ramp númer átta hundruð á Egilsstöðum í dag. Hann segist hlakka til að geta sýnt börnunum sínum Ísland, það hafi ekki verið auðvelt áður en verkefnið hófst.

Tapið minna og sölutekjur meiri en í fyrra
Tap íslenska líftæknilyfjafélagsins Alvotech á fyrri helmingi þessa árs nemur 86,9 milljónum dollara, það samsvarar rúmum ellefu milljörðum í íslenskum krónum. Það er talsvert minna tap en á síðasta ári þegar tapið var 184,5 milljónir dollara. Þá voru sölutekjur félagsins næstum sexfalt meiri í ár en í fyrra.