„Hann var hér úr þessum friðhelga ræðustól að ráðast á starfsfólk RÚV“ Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gerði starfsfólk Ríkisútvarpsins að umtalsefni í ræðu sem hann flutti undir liðnum „um fundarstjórn forseta“ þar sem hann fullyrti að það væri viðtekin venja að Gísli Marteinn Baldursson og gestir hans hefðu í frammi „misnotkun og dónaskap“. 6.12.2022 16:17
„Við eigum ekki að hoppa á ódýrar tillögur Sjálfstæðisflokksins“ Sjálfstæðismenn í borgarstjórn leggja fram breytingatillögur á fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir næsta ár sem sparar borginni 7,2 milljarða króna. Í tillögunum felst meðal annars frestun fjárfestinga, hagræðing í miðlægri stjórnsýslu og að minnka yfirbyggingu. Borgarstjóri segir tillögurnar „ódýrar“ og að ekki sé hægt að fækka starfsfólki öðruvísi en að skerða þjónustu. 6.12.2022 13:11
Segir Japani vilja læra af Íslendingum í jafnréttismálum Japönsk yfirvöld eiga mikið verk fyrir höndum en þau vilja jafna stöðu kynjanna og læra af Íslandi í þeirri vegferð að sögn Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, en Japanir sitja í 116. sæti jafnréttislista Alþjóðaefnahagsráðsins. 5.12.2022 15:37
Líðan skjólstæðinganna batnað með sanngirni á þriðju vaktinni Mikil umræða hefur skapast í samfélaginu um hina svokölluðu þriðju vakt eftir að skoðanagrein á Vísi fór á mikið flug. Fréttastofa fór á stúfana og spurði hver það væri á heimilinu sem helst stæði þriðju vaktina. 3.12.2022 12:24
Ekki vænlegt að segja konum að „slaka bara á“ Hulda Tölgyes, sálfræðingur segir að hin svonefnda þriðja vakt sé streituvaldandi og að of mikil streita til lengri tíma sé afar skaðleg heilsunni. Þyngstu byrðar þriðju vaktarinnar séu vanalega í aðdraganda jóla. Pistill sem Hulda og Þorsteinn V. Einarsson, eiginmaður hennar, skrifuðu hefur vakið gífurlega athygli og er mest lesinn á Vísi þriðja daginn í röð. 2.12.2022 13:54
Funda hver fyrir sig í dag og hittast svo á ný á morgun Fundi Starfsgreinasambandsins, samflots iðn- og tæknimanna og Samtaka atvinnulífsins sem var á dagskrá hjá ríkissáttasemjara í dag hefur verið frestað til morguns. Ríkissáttasemjari segir í samtali við fréttastofu að hann telji tíma samningsaðila betur verið í vinnu með sínu baklandi en að þeir komi síðan aftur saman til fundar hjá sáttasemjara á morgun. 1.12.2022 13:56
Rétturinn til að gleymast ekki algildur Persónuvernd er sammála niðurstöðu Google LLC um að hagsmunir almennings vegi þyngra en einkalífshagsmunir þjóðþekkts einstaklings í máli þar sem viðkomandi reyndi að fá frétt um meint einelti afmáð af leitarvélum tæknirisans. Forstjóri Persónuverndar segir að á hverju ári leiti til Persónuverndar einstaklingar sem hafa fengið synjun frá Google. 30.11.2022 13:06
Stefnir í að nóvember kveðji með trompi og 15 stigum fyrir norðan Óvanalega hlýjum nóvembermánuði mun að öllum líkindum ljúka með trompi en á morgun er spáð að hiti fari upp í 15 stig á Norðurlandi. Þangað til í gær hafði hiti einhvers staðar á landinu náð átta stigum alla daga mánaðarins. Um mánaðamótin kemur síðan í ljós hvort nýtt nóvemberhitamet frá 1956 verður slegið á Akureyri. 29.11.2022 12:21
Tímapressa tilboðsdaganna til þess fallin að skapa gerviþörf „Þarf ég þetta virkilega?“ er spurning sem landsmenn ættu að velta vandlega fyrir sér áður en þeir taka ákvarðanir um kaup að mati forsvarsmanna Sorpu. Í dag er einn af stóru tilboðsdögum ársins sem hefur fest sig í sessi á síðustu árum og er annar slíkur á dagskrá eftir helgi. Meðalfjölskylda hendir að meðaltali rúmlega fimm hundruð kílóum af sorpi í óflokkuðu tunnuna á ári hverju. 25.11.2022 15:22
Tillaga Íslands og Þýskaland samþykkt af mannréttindaráði SÞ Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í dag ályktun Íslands og Þýskalands um að sett verði á fót sjálfstæð og óháð rannsóknarnefnd sem safna á upplýsingum og gögnum sem nýst geta til að draga þá til ábyrgðar sem ofsótt hafa friðsama mótmælendur í Íran undanfarnar vikur. 24.11.2022 18:18