Stórfiskaleikur, fallin spýta, skotbolti og „yfir“ öll kvöld í Breiðholtinu Jarþrúður Ásmundsdóttir, fagstjóri hugvits, nýsköpunar og tækni hjá Íslandsstofu heldur mest upp á þann tíma dagsins þegar eiginmaðurinn færir henni kaffi í rúmið og þau taka spjallið saman fyrir daginn. Í æsku var það kröftugur hópur krakka í Breiðholtinu sem hittist öll kvöld til að fara í útleiki eins og þeir gerðust bestir. 27.5.2023 10:01
„Það er ekki lengur asnalegt að vera frumkvöðull“ „Það er mjög áhugavert að velta fyrir sér hversu mikið hefur breyst á þeim fimmtán árum síðan ég byrjaði í þessu nýsköpunarumhverfi. Það er ekki lengur asnalegt að vera frumkvöðull eins og þótti þá. Það þykir ekki lengur furðulegt að feta þessa leið, frekar en að velja að starfa hjá rótgrónu fyrirtæki,“ segir Kristján Freyr Kristjánsson, framkvæmdastjóri 50skills. 26.5.2023 07:01
Forgangsröðunin verið sú að ríkið þjónustar almenning nú margfalt betur „Lykilþættirnir hingað til hafa verið að þjónusta almenning margfalt betur en áður og einfalda líf fólks,“ segir Andri Heiðar Kristinsson, stafrænn leiðtogi í fjármála- og efnahagsráðuneytinu sem síðustu rúm þrjú árin hefur leitt þá vegferð ríkisins að gera sem flesta þjónustu rafræna. 24.5.2023 07:00
Í sambúð með ADHD: „Upplifði oft eins og hann nennti ekki að hlusta á mig“ Síðustu árin hefur umræða um ADHD hjá fullorðnum aukist til muna. Enda var ADHD lengi vel fyrst og fremst tengt við greiningu barna. Jafnvel tengt við þau óþekkustu í bekknum. 21.5.2023 08:01
Alltaf kaffi í rúmið og auðvitað í dúndurstuð með S.H.Draumi Það er í nægu að snúast alla daga hjá Ragnari Þór Ingólfssyni formanni VR, sem er í hljómsveitinni Fjöll og að undirbúa endurkomu hljómsveitarinnar Los, að æfa sig undir átta daga hjólaferð til styrktar Umhyggju, að undirbúa frekari mótmæli við Austurvöll og almennt að finna eitthvað nýtt til að röfla yfir. Ragnar og eiginkonan byrja alltaf daginn með kaffi í rúmið. 20.5.2023 10:01
Smiður í mannauðsmálin: „Okkur vantar okkar Óla Stef í hjúkrunarfræðina“ „Ég segi fyrir mitt leyti að það hafði ekki tekist í grunnskóla að vekja áhuga minn á einhverju til að stefna á í framhaldsskóla. Ég fór í Verkmenntaskólann á Akureyri eftir grunnskóla en það var eiginlega bara af skyldurækni. Ég vissi ekkert hvað ég var að gera þar,“ segir Daníel Gunnarsson, mannauðssérfræðingur hjá Alvotech. 19.5.2023 07:00
Breytt viðhorf: Unga fólkið að velja nám á allt annan hátt en áður „Við lifum á mjög merkilegum tímum. Gervigreindin mun til dæmis hafa mikil áhrif á nám og það hvernig fólk mun læra, en við erum ekki enn farin að sjá hvernig,“ segir Hildur Elín Vignir framkvæmdastjóri Iðunnar fræðsluseturs. Sem meðal annars heldur utan um sveinspróf í iðngreinum. 17.5.2023 07:01
Nýsköpun í lagageiranum: Það á ekki að vera lúxus að leita réttar síns „Ég lít á lögmennskuna sem þjónustustarf. Allt sem við getum gert til að flýta fyrir málsmeðferð, lækka kostnað og auka á gagnsæi fyrir borgarana er því eitthvað sem við eigum stöðugt að vinna að. Því það að standa í málaferlum er oftast eitthvað sem leggst þungt á fólk,“ segir Margrét Anna Einarsdóttir eigandi og stofnandi nýsköpunarfyrirtækisins Justikal. 15.5.2023 07:01
Vildi oft deyja: „Ég fékk bara ógeð á sjálfri mér“ „Já ég man mjög vel eftir því. Það var einn daginn þegar að ég vaknaði einhvers staðar að ég held í Breiðholtinu eftir mikið djamm og leit í spegil. Og ég fékk bara ógeð á sjálfri mér,“ svarar Hafrún Ósk Hafsteinsdóttir aðspurð um það hvort hún muni eftir því augnabliki þegar hún tók ákvörðun um að snúa við blaðinu, hætta í neyslu, óska eftir aðstoð við andlegum veikindum sínum og hreinlega taka ákvörðun um að vilja lifa. 14.5.2023 08:01
Forstjórinn sem ákveður fríin jafnvel deginum áður og kvöldmatinn hálftíma of seint Anna Regína Björnsdóttir, forstjóri Coca-Cola á Íslandi, segir líkamann vakna við vekjaraklukkuna klukkan sjö, en heilabúið þegar fyrsti kaffibollinn er drukkinn. Anna segist svo heppin að eiga systur sem hún getur reglulega fengið tryllingsleg hlátursköst yfir. 13.5.2023 10:00